Fréttablaðið - 17.04.2014, Blaðsíða 42
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| HELGIN | 26
Í Mosfellsbæ bjuggu 9.075 íbúar þann 1. janúar síðastliðinn. Fjöldi íbúa hefur aukist jafnt og þétt síðasta áratuginn og er fjölgunin í Mosfellsbæ um 37 prósent á síðustu tíu árum.
Fjölgun íbúa hefur verið stöðug
undanfarið, eða um rúma 100 íbúa
á ári á yfirstandandi kjörtímabili.
Á kjörskrá í komandi kosning-
um er 6.441 kjósandi. Sex fram-
boð hafa gefið það út að þau ætli að
bjóða fram krafta sína. Það er fjór-
flokkurinn svokallaði, Íbúahreyfing
Mosfellsbæjar, sem náði inn manni
í bæjarstjórn í síðustu kosningum,
og Mosfellslistinn sem leiddur er af
Valdimar Leó Friðrikssyni, fyrrver-
andi alþingismanni.
Árið 2006 mynduðu Sjálfstæðis-
flokkurinn og Vinstri græn meiri-
hluta. Sá meirihluti hélt velli í
kosningunum 2010 og vel það.
Sjálfstæðismenn fengu þar hreinan
meirihluta og hefðu þar af leiðandi
ekki þurft á hjálp VG að halda til
að mynda starfhæfan meirihluta.
Samt sem áður héldu þessir flokkar
áfram samstarfi og eru því fimm
bæjarfulltrúar í meirihluta á móti
aðeins tveimur í minnihluta, full-
trúa Samfylkingar og Íbúahreyf-
ingarinnar. Framsóknarflokkurinn
kom ekki að manni í bæjarstjórn
árið 2010. Á næsta kjörtímabili
verður bæjarfulltrúum fjölgað í
Mosfellsbæ um tvo, úr sjö í níu.
Samstaða um stærstu málin
Haraldur Sverrisson er núverandi
bæjarstjóri Mosfellsbæjar og odd-
viti Sjálfstæðisflokksins. Hann
leiðir nú lista flokksins í annað
skipti. Haraldur tók við stöðu bæjar-
stjóra árið 2007 af Ragnheiði Rík-
harðsdóttur sem lét þá af embætti
sökum þingsetu.
Haraldur telur að starfið á kjör-
tímabilinu hafi gengið mjög vel í
langflestum tilvikum og samstaða
hafi verið um stærstu mál milli
meirihluta og minnihluta. Samstarf
við minnihluta hafi verið gott og
hann leggi verk sjálfstæðismanna
stoltur í dóm kjósenda. „Við höfum
tekið í gagnið nýtt hjúkrunarheim-
ili og nýtt þjónustuhús fyrir aldr-
aða á kjörtímabilinu. Samkvæmt
þjónustukönnun Capacent Gallup
mælist ánægja með búsetu mest í
Mosfellsbæ, af því erum við stolt.“
Karl Tómasson, oddviti VG á síð-
asta kjörtímabili, lætur nú af störf-
um eftir átta ára meirihlutasam-
starf með Sjálfstæðisflokki. Hann
er ánægður með árin átta og gengur
sáttur frá borði. „Mér finnst mikil-
vægt að láta af störfum nú þegar
allir eru glaðir og þetta gengur vel.
VG í Mosfellsbæ var fyrsta félagið
í sögu VG til að vera í meirihluta á
landinu, af því er ég einnig mjög
stoltur. Úrtölumenn höfðu miklar
efasemdir til að byrja með yfir
samstarfi VG við sjálfstæðismenn,
en þetta er líklega meira spurning
um fólk en flokka þegar kemur að
stjórnun sveitarfélags.“
Vantar upp á félagslegu hliðina
Bjarki Bjarnason, sagnfræðingur
og kennari, tekur við kefli oddvita.
Spurður að því hvort vænta megi
breytinga á áherslum VG með hann
sem oddvita og hvort honum hugnist
áfram samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn að loknum kosningum
svaraði hann því til að flokkurinn
gengi óbundinn til kosninga. Engin
stór mál hefðu komið upp og ekki
hefði slegið í brýnu milli flokkanna.
Óðinn Pétur Vigfússon er nýr
oddviti Framsóknarflokksins í
komandi kosningum. Framsókn-
arflokkurinn náði ekki inn manni
í kosningunum 2010. Hann telur
atvinnumál og fræðslumál verða
ofan á sem helstu kosningamál í
vor. „Það er svolítið einkennandi
fyrir bæjarfélög sem Sjálfstæðis-
flokkurinn stýrir að það vantar
aðeins upp á félagslegu hliðina,“
segir Óðinn Pétur.
Fræðslumál bæjarfélagsins eru
að mati Óðins Péturs í ólestri. „Það
þarf að endurskoða þessa „skúra-
stefnu“ í skólamálum. Það eru allt
of margar lausar kennslustofur á
lóðum skólanna í bænum.“
Um atvinnumálin segir Óðinn
Pétur að lítið sé að gerast í mála-
flokknum í sveitarfélaginu. „Það
þarf að auka framkvæmdir einka-
fyrirtækja og ég vil skoða þann
möguleika að létta undir með fyrir-
tækjum með einhvers konar íviln-
unum og niðurfellingu opinberra
gjalda. Mosfellsbær má ekki verða
svefnbær.“
Anna Sigríður Guðnadóttir er nýr
oddviti Samfylkingarinnar. Hún er
sammála því sem kemur fram hjá
oddvitum meirihlutaflokkanna að
ekki hafi verið mikil átök. Þó hafi
myndast núningur hvað varðar sam-
ráð við íbúa. „Aðalágreiningurinn
varð nú undir lok kjörtímabilsins,
um vandræði bæjarfélagsins í mál-
efnum skólamannvirkja. Það verður
stóra kosningamálið. Allt of mikið
af lausum kennslueiningum og sam-
ráðið við foreldra er sýndarleikur.
Foreldrum barna finnst ekki hlustað
á sig.“
Skólamálin ofarlega á baugi
Jón Jósef Bjarnason er núverandi
oddviti Íbúahreyfingarinnar, sem
fékk einn mann kjörinn í síðustu
kosningum. Íbúahreyfingin leggur
áherslu á gagnsæi og heilbrigt lýð-
ræði. „Íbúahreyfingin hefur verið
dugleg við að benda á lögbrot
meirihlutans á kjörtímabilinu,
til dæmis þegar bærinn skrifaði
undir sjálfskuldarábyrgð einka-
aðila í Helgafellsbyggingarmál-
inu svokallaða.“
Hann telur að skólamálin verði
ofarlega á baugi í komandi sveitar-
stjórnarkosningum. Um uppröðun
á lista sagði hann Íbúahreyfinguna
ekki vera búna að stilla upp lista.
„Ég verð í einu af efstu sætum
listans,“ sagði Jón Jósef.
Valdimar Leó Friðriksson mun
leiða nýjan lista, Mosfellslistann, í
kosningunum í vor. Á meðal helstu
stefnumála listans er að ráða ópóli-
tískan bæjarstjóra. „Tryggja verður
að hann sé framkvæmdastjóri allra
bæjarbúa.“
Einnig segir Valdimar Leó: „Eitt
af hlutverkum Mosfellsbæjar er að
skapa atvinnutækifæri og hlúa að
þeim fyrirtækjum sem fyrir eru.
Einnig er það gríðarlega mikil-
vægt fyrir bæinn okkar að ná niður
umferðarhraða í gegnum Mos-
fellsbæ og Mosfellsdal.“
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014 MOSFELLSBÆR
Bæjarfulltrúum fjölgað í níu
Sex framboð ætla að bjóða fram krafta sína í komandi sveitarstjórnarkosningum, eða fjórflokkurinn, Íbúahreyfing Mosfells-
bæjar og Mosfellslistinn. Á kjörskrá í kosningunum er 6.441 en fjölgun íbúa í Mosfellsbæ hefur verið mikil síðustu tíu ár.
D-listi og V-listi í meirihlutasam-
starfi 5 á móti 2 (Sjálfstæðisflokkur-
inn fékk hreinan meirihluta en ákvað
að taka Karl Tómasson með sér aftur).
Meirihlutasamstarf síðan árið 2006.
9.075
manns
var íbúafj öldi
1. janúar 2014.
6.441
verða á kjörskrá
þann 31. maí.
5.793
kusu árið 2010.
2010
kom Framsókn
ekki manni að.
D-listi
Sjálfstæðisflokkurinn
49,8%
4 fulltrúar
M-listi
Íbúahreyfingin
1 fulltrúi
15,2%
S-listi
Samfylkingin
1 fulltrúi
12,1%
V-listi
VG
1 fulltrúi
11,7%
B-listi
Framsóknarflokkurinn
0 fulltrúar
11,2%
Kosningaúrslit
2010
Sjálfstæðisflokkur
1. sæti
Haraldur Sverrisson
bæjarstjóri
2. sæti
Bryndís Haraldsdóttir bæjarfulltrúi
3. sæti
Hafsteinn Pálsson bæjarfulltrúi
4. sæti Kolbrún G. Þorsteinsdóttir
bæjarfulltrúi
Samfylking
1. sæti Anna Sigríður
Guðnadóttir
bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur
2. sæti Ólafur Ingi Óskarsson kerfis-
fræðingur
3. sæti Steinunn Dögg Steinsen
efnaverkfræðingur
4. sæti Rafn Hafberg Guðlaugsson
sölumaður
VG
1. sæti
Bjarki Bjarnason
rithöfundur og fram-
haldsskólakennari
2. sæti Bryndís Brynjarsdóttir vara-
bæjarfulltrúi, grunnskólakennari og
myndlistarkona
3. sæti Ólafur Snorri Rafnsson
íþróttakennari
4. sæti Íris Hólm Jónsdóttir, tónlistar-
kona og textasmiður
Framsókn
1. sæti
Óðinn Pétur Vigfússon
sagnfræðingur og
deildarstjóri
1. sæti Sandra Harðardóttir, sjúkra-
liði og laganemi
1. sæti Rúnar Þór Haraldsson,
framkvæmdastjóri
1. sæti H. Valey Erlendsdóttir, BA í
sálfræði
Mosfellslistinn
1. sæti Valdimar Leó
Friðriksson fram-
kvæmdastjóri leiðir
listann. Það á eftir að
raða niður listanum.
Íbúahreyf-
ingin
1. sæti Jón Jósep
Bjarnason bæjar-
fulltrúi verður í einu
af efstu sætunum. Ekki kominn listi.
D S V
FRAMBOÐSLISTAR Í MOSFELLSBÆ
B L
M
Kjósarhreppur
Mosfellsbær
Reykjavík
Sveinn
Arnarson
sveinn@frettabladid.is