Fréttablaðið - 17.04.2014, Blaðsíða 36
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og Fólk og Tíska. Hafdís Huld Þrastardóttir. Hvað gera frægir um páskana? Hönnun. Samskiptamiðlarnir.
GÓ
www.gudrunolof.
com/umgudurun/
Guðrún Ólöf Gunnars dóttir
er fjögurra barna móðir
sem er fædd og uppalin í
Reykjavík. Hún er keramiker
og mikill fagurkeri en hún
bloggar um tísku, hönnun,
lífsstíl og prjónamennsku
sem er henni hugleikin.
Bloggið hennar, GÓ, er vett-
vangur fyrir hugmyndaheim
hennar þar sem hún vonast
til að veita öðrum innblástur.
BLOGGARINN GLAÐLEGT ÍSLENSKT BLOGG
Belgíska barnafataverslunin Miss
and Mister Miyagi býður upp á
skemmtilega fjölbreytt úrval af evr-
ópskum gæðamerkjum fyrir börn
og unglinga á aldrinum átta til
fjórtán ára. Þekkt merki sem ber
að nefna eru American Outfitters,
Finger in the nose, AZZA BY KIK
KID, Supertrash Girls og Pepper-
corn Kids. Hér er að finna margt
sem gleður augað.
Miss and Mister Miyagi
www.mistermiyagi.be
Hin kanadíska Trish Papakados
heldur úti verslun og bloggi með
fögrum myndum og póstar reglu-
lega í gegnum Instagram. Lífið
getur verið dásamlega einfalt
þegar það veitir ákveðna ró að
skoða myndirnar hennar. Þar getur
jafnvel einfaldur kaffibolli dregið
mann inn í rómantískan hugarheim
Papakados.
Trishpapadakos
http://instagram.com/
trishpapadakos
Who What Wear er bandarískt
veftískutímarit sem fylgist gaum-
gæfilega með stjörnutískunni, því
nýjasta á tískupöllunum og öðru
tískutengdu efni. Á Pinterest er að
finna fjölmargt sem gaman er að
fylgjast með til að fá innblástur,
hvort sem það er götutískan, dress
dagsins eða fegurðarráð.
Who What Wear
http://www.pinterest.com/
WhoWhatWear/