Fréttablaðið - 17.04.2014, Blaðsíða 50
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
VIÐ ÓSKUM LANDSMÖNNUM GLEÐILEGRA
PÁSKA OG MINNUM Á AÐ EF EITTHVAÐ
VANTAR ÞÁ ER OPIÐ ALLAN
SÓLARHRINGINN Í 10-11.
OPIÐ ALLA
PÁSKANA
„Núna um páskana erum við að
bjóða foreldrum og börnum að
koma og hlýða á tónlist og eiga
fallega stund saman,“ segir Ásta
Kristrún Ragnarsdóttir en hún
var að setja á fót menningarstof-
una Bakkastofan ásamt eiginmanni
sínum, Valgeiri Guðjónssyni, á
Eyrarbakka.
„Hann var að gefa út sína þriðju
fuglaplötu, Fuglakantata sem inni-
heldur lög Valgeirs við ljóð Jóhann-
esar úr Kötlum,“ segir Ásta en
hjónin búa saman í Bakkastofu á
Eyrarbakka þar sem þau bjóða fjöl-
skyldum heim til sín í vinnustofur
sem þau nefna Tónlist og náttúra.
„Fuglarnir eru friðaðir hér og
það er endalaust af þeim, sem
er alveg yndislegt,“ segir Ásta.
„Þegar fólk er búið að syngja með
Valgeiri þá er hægt að fara út og
njóta náttúrunnar.“ Takmarkað
pláss er hjá hjónunum og því til-
valið að skrá sig á bakkastofa.is en
fyrsta heimboðið er í dag klukkan
tvö og verða fleiri á hverjum degi
út hátíðirnar.
Bjóða í Bakkastofu
Hjónin Ásta Kristrún Ragnarsdóttir og Valgeir
Guðjónsdóttir bjóða fj ölskyldum í fuglasöng.
FALLEG FEÐGIN Dóttir hjónanna, Vigdís Vala Valgeirsdóttir, mun kannski taka lagið
í Bakkastofu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2014
Tónleikar
16.00 Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur 6. sinfóníu Mahlers í Hofi. Hljóm-
sveitin hefur aldrei áður verið svo fjölmenn en 100 manns stíga á stokk. Miðasala
á menningarhus.is.
17.00 100 börn úr ýmsum kórum af höfuðborgarsvæðinu syngja ásamt Lög-
reglukórnum og djasshljómsveit. Sérstakir gestir eru Auður Guðjohnsen og Egill
Ólafsson en kynnir er Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir. Tónleikarnir eru í
Hallgrímskirkju og er aðgangur ókeypis.
18.30 Jón Svavar Jósefsson bassabaritón útskrifaðist sem óperusöngvari frá Tón-
listarháskólanum í Vínarborg. Hann syngur kvæði í Sögusafninu, Grandagarði 2.
Aðgangseyrir eru 1.500 krónur.
20.00 Spunameistararnir Hilmar Jensson og Borgar Magnason leiða saman hesta
sína á tónleikum í Mengi, Óðinsgata 2. Miðaverð er 2000 krónur.
20.00 Hljómsveitin VAR mun stíga á stokk á Hlemmur Square og flytja nokkur
lög af komandi breiðskífu þeirra Hve ótt ég ber á, sem er væntanleg í sumar.
Aðgangur er ókeypis.
22.00 Trúbadorarnir Eggert Jóhannsson, Kormákur Bragason og Magnús Einarsson
halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastígur 8. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2014
Tónleikar
15.00 Á þessum lokatónleikum stígur Megas á stokk ásamt Möggu Stínu sem
bregður sér í hlutverk Jesú. Stórsveitin Píslarbandið leikur undir og Söngfjelagið
flytja útsetningar valinna tónskálda á sálmunum. Miða má nálgast á heimasíðu
midi.is og kostar miðinn 3.900 krónur.
20.00 Flutt verða 14 atriði úr rokkóperunni Jesus Christ Superstar í Hjallakirkju í
Kópavogi. Kór Hjallakirkju ásamt átta einsöngvurum, píanó- og orgelleikara flytja.
Aðgangur er ókeypis.
Kvikmyndir
20.00 Bíómyndin Metéora verður frumsýnd í Bíó Paradís á Hverfisgötu en tíma-
setningin er vel við hæfi því að í myndinni takast munkurinn Theodoros og nunnan
Uriana á við trúarsannfæringu sína.
Uppákomur
00.00 Roland Hartwell skemmtir á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastígur 8. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
21.00 Uppákoman er tilraun til þess að samtvinna myndlist, tónlist & hljóðlist. Dodda Maggý sýnir og flytur ný og eldri
verk, sum sem hafa ekki verið sýnd áður opinberlega á Íslandi í Mengi, Óðinsgata 2. Miðaverð er 2.000 krónur.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is.