Fréttablaðið - 17.04.2014, Blaðsíða 52
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni og Kringlunni / 569 7700
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
Spennandi framtíð
FERMING 2014
ACTIONCAM - SMÍÐUÐ FYRIR ÆVINTÝRI
HDRAS30VB
Full HD upptökuvél með Carl Zeiss Tessar linsu
Sterkbyggð og vatnsheld (í köfunarhylki)
Mögnuð hristivörn og GPS
Bike eða Wearable Kit fylgir
VERÐ 64.990.-
POTTÞÉTTUR OG VATNSHELDUR XPERIA
SONY XPERIA Z ANDROID SNJALLSÍMI
5” TFT snertiskjár með HD upplausn
13 megapixla myndavél, LED flass
HD videoupptaka
TILBOÐ 79.990.- VERÐ ÁÐUR 139.990.-
Fermingartilboð
79.990.-
Fermingartilboð
99.990.-
EINN SÁ SNJALLASTI Í HEIMI
SONY XPERIA Z1 ANDROID SNJALLSÍMI
4.3” TFT snertiskjár með HD upplausn
20.7 megapixla myndavél, LED flass
HD videoupptaka
TILBOÐ 99.990.- VERÐ ÁÐUR 109.990.-
HÁRFÍN HLJÓMGÆÐI MEÐ NOICE CANCEL
MDRNC8
30mm hátalarar
Noice Cancel þurrkar út utanaðkomandi hljóð
Lengd kapals 1.2m
TILBOÐ 9.990.- VERÐ ÁÐUR 12.990.-
Fermingartilboð
9.990.-
www.sonycenter.is
smá
SONY CENTER
Í KRINGLUNNI
NÝ VERSLUN
LÍFIÐ
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR
„Þegar hátíð ber að garði er svo
gott að nýta tímann með vinum.
Gleðjast yfir góðum mat og nær-
ast þannig andlega og líkamlega,“
segir Helga Mogensen, sem deilir
páskamatseðlinum á sínu heimili
með lesendum Fréttablaðsins.
„Maturinn skiptir miklu máli hjá
mér og alltaf gaman að breyta til
þótt íhaldssemi sé alltaf einhver.
En svona lítur kvöldmatseðill út
á mínu heimili yfir páskana.“
Föstudagurinn langi
Bökuð bleikja með grænu salati og
sítrónubakaðar kartöflur.
Ofan á bleikjuna er gott að setja
sweetchili-engifersósu.
Sweetchili-engifersósa
Hristið saman:
1 msk. sweetchili-sósa
50 ml ólífuolía
Dálítið af grófu salti
1 msk. ferskur engifersafi
Baðið bleikjuflökin í sósunni og bakið
í góðu eldföstu formi í 10 mínútur við
190°C.
Grænt blandað salat með krydd-
jurtum og jarðarberjum
Smátt saxað spínat
Smátt saxað klettasalat (rucola)
Handfylli af steinselju
Handfylli af kóríander
Handfylli af mintu
Saxið kryddjurtirnar smátt og setjið
saman við græna salatið. Þvoið jarðar-
berin vel og skerið í fernt, blandið
saman við og stráið smá balsamik yfir
og skreytið með fetaosti.
Sítrónubakaðar kartöflur
50 ml olía
2 msk. nýkreistur sítrónusafi
3 hvítlauksgeirar kreistir saman við
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
2-3 stk. kartöflur á mann
Hitið ofninn og byrjið á því að skera
kartöflurnar í grófa bita. Setjið í gott
ofnfast form. Hristið saman olíu og
krydd ásamt sítrónusafa og hellið yfir
kartöflurnar. Bakið við 200°C í um 30
mín. Skreytið með söxuðu dilli.
Páskadagur
Bakaður lambahryggur með
rauðrófuappelsínusalati og sveppa-
bláberja sósu.
Lambahryggurinn er bakaður
eins og hver og einn kýs best.
Rauðrófuappelsínusalat
2 stk. rauðrófur
1 tsk. salt
½ tsk. pipar
Ólífuolía
3 appelsínur
Handfylli af steinselju
100 g saxaðar valhnetur
Pakkið rauðrófunum inn í álpappír
og setjið inn í heitan ofninn og bakið
við 190°C í 30-40 mín. Kælið niður og
skrælið rauðrófurnar. Skerið niður í
litla munnbita, skrælið appelsínurnar
og skerið niður í munnbita, blandið
vel saman og hellið salatsósunni yfir
og skreytið með steinselju.
Salatsósa
2 tsk. Dijon-sinnep
2 msk. eplaedik
100 ml ólífuolía
1 tsk. salt
½ tsk. pipar
Hristið allt vel saman og bætið
mögulega meira salti saman við.
Hristið allt vel saman og setjið yfir
rauðrófuappelsínusalatið. Skreytið
með saxaðri steinselju.
Annar í páskum
Hnetusteikin góða með bökuðum
sætum kartöflum, sveppasósu og
fersku asísku salati. Í eftirrétt
verður súkkulaðikaka með blá-
berjarjóma.
Sveppasósa
500 g sveppir
1 laukur meðalstór
100 g smjör
2 stk. hvítlaukur
1 tsk. sítrónusafi
Handfylli af saxaðri steinselju
1 tsk. paprikuduft
Hnífsoddur af cayenne-pipar
1 -2 pk. kókoskrem
3 tsk. salt
2 tsk. svartur pipar
2 tsk. tamari- eða sojasósa
2 tsk. sætt sinnep
Þvoið sveppina og saxið gróflega.
Skrælið laukinn og hvítlaukinn og
skerið gróflega niður. Bræðið smjörið
í góðum potti og byrjið á því að mýkja
laukinn og hvítlaukinn ásamt 1 tsk.
af salti.
Bætið sveppunum saman við
og kryddum, sinnepi og sojasósu,
látið malla þar til sveppirnir eru
orðnir mjúkir. Þá er kókoskremið sett
saman við og áfram heldur sósan að
malla. Smakkið til með grófu salti
og grófum pipar. Maukið sósuna
með töfrasprota. Hérna set ég smá
rauðvín saman við en það er alls ekki
nauðsynlegt.
Smakkið sósuna til með grófu salti og
svörtum pipar.
Það sem er gott við þessa sósu er
að hún er bragðgóður grunnur og
auðvelt að laga að þínum smekk!
Bætið t.d. kjötsoði saman við eða
notið einungis rjóma. Sumum
finnst gott að nota örlítið af rifs-
berjasultu og gera hana sæta.
Rauðvín er dásamlegt saman við
en alls ekki nauðsynlegt.
Síðan er gott að frysta þessa
sósu og eiga fyrir næstu veislu.
Páskamatseðill
Helgu Mogensen
Helga Mogensen deilir páskamatseðli á sínu heimili með lesendum Fréttablaðsins.
KOKKURINN Helga Mogensen er fræg fyrir hnetusteikina sína. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HNETUSTEIKIN Ásamt bökuðum sætum kartöflum, sveppasósu og fersku asísku
salati. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BLEIKJUMÁLTÍÐ Ásamt sítrónubök-
uðum kartöflum og grænu salati.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM