Fréttablaðið - 01.05.2014, Qupperneq 10
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
BANDARÍKIN, AP „Það var hræði-
legt að horfa upp á þetta. Þetta var
algjört klúður,“ sagði David Autry,
lögmaður fanga sem tekinn var af
lífi í Oklahoma í fyrrinótt.
Fanginn, sem hét Clayton Lock-
ett, varð að sögn lækna meðvitund-
arlaus tíu mínútum eftir að ban-
vænni lyfjablöndu var sprautað í
hann. Þremur mínútum síðar tók
hann samt að anda þungt, engj-
ast um á aftökubekknum og gnísta
tönnum.
Tjöld voru á endanum dregin
fyrir svo áhorfendur þyrftu ekki að
horfa upp á þetta erfiða dauðastríð.
Stuttu síðar lést fanginn af völdum
hjartaáfalls.
Yfirvöld í Oklahoma ákváðu í
kjölfarið að fresta um hálfan mánuð
aftöku annars fanga, sem taka átti
af lífi tveimur stundum síðar. Lock-
ett var fyrsti fanginn í Oklahoma
sem átti að lífláta með nýrri lyfja-
blöndu. Bandarísk stjórnvöld hafa
um nokkurt skeið átt erfitt með að
útvega þau lyf sem áður hafa verið
notuð í þessum tilgangi. - gb
Ný lyfjablanda reyndist illa þegar hún var notuð við aftöku í Oklahoma:
Dauðastríð fangans varð erfitt
ANNAR LIFIR, HINN DÓ Þeir Clayton
Lockett og Charles Warner hlutu báðir
dauðadóm fyrir morð og nauðgun.
NORDICPHOTOS/AFP
NÍGERÍA Tugir ungra kvenna og
stúlkna, sem hryðjuverkasam-
tökin Boko Haram námu á brott
úr skóla í Nígeríu nýverið, hafa
verið þvingaðar í hjónaband með
mannræningjunum og félögum
þeirra.
Mannréttindasamtök í Nígeríu
hafa skýrt frá því að stúlkurn-
ar séu seldar fyrir tvö þúsund
naírur, en svo nefnist gjaldmið-
ill Nígeríu. Þetta er jafnvirði
tæplega 1.400 króna.
- gb
Boko Haram selja feng sinn:
Þvingaðar í
hjónaband
Málsvari byggingamanna
VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ FÉLAGA OKKAR
Í KRÖFUGÖNGUM Í REYKJAVÍK OG
Á AKUREYRI Í DAG, Á DEGI VERKALÝÐSINS.
Eftir kröfugöngur er félagsmönnum Byggiðnar
boðið í kaffi:
Fjölmennum!
REYKJAVÍK
Grand hóteli Reykjavík,
Gullteig, Sigtúni 38
AKUREYRI
Hofi, Strandgötu 12
V
E
R
T
Að lokinni kröfugöngu og útifundi á Ingólfstorgi
býður FIT félagsmönnum sínum í 1.maí kaffi að
Grand hóteli (Setrið) við Sigtún.
Félagar fjölmennum í hátíðarhöld dagsins!
Gullteig) við Sigtún.
UMHVERFISMÁL Félagsbúið á Mið-
hrauni á Snæfellsnesi hefur misst
leyfi til að bera áburð úr fiski á
tún sín. Umhverfisráðuneytið
segir um að ræða aukaafurð úr
dýri en ekki úrgang og því hafi
ekki verið á sviði Heilbrigðis-
nefndar Vesturlands að leyfa
vinnsluna.
Fjöldi nágranna Félagsbús-
ins kærði dreifingu áburðarins.
Meðal þeirra er Ólafur Ólafs-
son í Samskipum, sem á fjórar
nálægar jarðir og vill fá lögbann
á lagningu íbúanna á Miðhrauni
2 á hitaveitu meðfram þjóðvegin-
um um land hans.
Á Miðhrauni er rekin fisk-
þurrkun og því sem af gengur er
breytt í lífrænan áburð, að sögn
Bryndísar Huldu Guðmundsdótt-
ur. „Umhverfisstofnun er sam-
mála okkur um að þetta sé rétta
leiðin en þetta snýst í raun um
hvaða embætti á að gefa okkur
þetta leyfi,“ segir hún.
Ástþór Jóhannsson, ábúandi á
Dal, kveðst ekkert hafa á móti
fiskverkuninni annað en „und-
arlega staðsetningu“ langt inni
í landi. „Og fyrir utan ólykt og
aukaverkanir vegna úrgangs-
ins sem frá þeim fellur og hefur
skolast út í vatnslindirnar neðan
við verkunina á ýmsum tímum,
og umhverfisráðuneytið hefur nú
lýst óhæfu, þá er ekið með hrá-
efni langt að til vinnslunnar og
það getur varla talist vistvænt,
eins og rekstraraðilarnir hafa
haldið fram.“
- gar
Umhverfisráðuneytið fellir úr gildi heimild frá heilbrigðisnefnd til dreifingar á fiskáburði á Miðhrauni:
Fiskislóg sagt hráefni en ekki úrgangur
FISKUR Á TÚNI Áburður úr fiskafgöng-
um er plægður ofan í túnið á Miðhrauni
2. MYND/AÐSEND
ÍRAK Mestar líkur þykja á að
Dawa, flokkur Núrí al Malíkis
forsætisráðherra, fari með sigur
af hólmi í þingkosningum í Írak,
sem haldnar voru í gær.
Gríðarlegur fjöldi lögreglu-
þjóna og hermanna var sendur
út á götur og torg í landinu til
að gæta öryggis við kosningarn-
ar. Í höfuðborginni Bagdad voru
eftirlitsstöðvar með um það bil
fimm hundruð metra millibili og
vopnaðar öryggissveitir óku um
borgina, sem að öðru leyti var að
mestu laus við umferð bifreiða.
Ofbeldi hefur verið mikið
í aðdraganda kosninganna,
sprengjuárásir tíðar og hótunum
um frekari árásir ætlað að fæla
fólk frá því að mæta á kjörstað.
Ástandið hefur ekki verið verra
síðan 2008. Undanfarna viku hafa
á annað hundrað manns látið lífið
í árásum af ýmsu tagi.
Þrátt fyrir öryggisráðstafanir
tókst andófsmönnum að gera árás-
ir á nokkrum stöðum í landinu, með
þeim afleiðingum að í það minnsta
fimm manns létu lífið.
Þetta eru þriðju þingkosningarn-
ar þar frá því Saddam Hussein var
steypt af stóli árið 2003.
Al Malíki hefur verið forsæt-
isráðherra í átta ár. Hann þykir
engan veginn líflegur stjórnmála-
maður, en þeim mun harðari gegn
andstæðingum sínum.
Hann er sjíamúslími, en þeir eru
í meirihluta í landinu og fastlega er
reiknað með því að flokkur al Mal-
íkis beri sigur úr býtum í kosning-
unum.
Súnnímúslímar hafa verið ósáttir
við al Malíki og segja hann draga
taum sjía á kostnað súnnía.
Ofbeldið undanfarið hefur að
mestu verið á ábyrgð súnnískra
skæruliðasamtaka, sem nefnast Ísl-
amskt ríki í Írak og Austur löndum
nær. Liðsmenn þeirra hafa einnig
barist í Sýrlandi gegn Bashar al
Assad forseta, og hafa notað reynslu
sína af átökunum þar óspart til að
herja á sjíamúslíma í Írak.
Í kosningunum árið 2010 lagði al
Malíki mikla áherslu á að ná breiðri
sátt í landinu á milli sjía, súnnía og
kúrda. Illa gekk þó að koma saman
samsteypustjórn og al Malíki virð-
ist hafa misst áhugann á sáttum. Að
minnsta kosti varð hann æ harðari
gagnvart andstæðingum sínum og
stendur nú í stórræðum gegn upp-
reisnaröflunum, sem eflast með
hverjum mánuðinum.
gudsteinn@frettabladid.is
Írakar létu hótanir
ekki hindra sig
Hermenn og lögregluþjónar voru á hverju strái í Bagdad og öðrum borgum Íraks
þegar landsmenn kusu sér nýtt þing. Þetta voru þriðju þingkosningarnar frá því
Saddam var steypt af stóli. Stjórn Núri al Malíkis forsætisráðherra er spáð sigri.
Á KJÖRSTAÐ Í BASRA Kona heldur á barni sínu og atkvæðaseðli, þar sem hún býr sig undir að kjósa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
➜ Undanfarna
viku hafa á annað
hundrað manns látið
lífið í árásum af
ýmsu tagi.