Fréttablaðið - 01.05.2014, Síða 20
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20
8.
38
7
7.
67
5
Afkoma Reykjavíkurborgar getur
sveiflast mjög milli ára af ástæð-
um sem eru utan áhrifavalds
stjórnmálanna. Þannig vega líf-
eyrisskuldbindingar þungt í
afkomubata borgarsjóðs (A-hluta
reikninganna) umfram áætlanir
á síðasta ári.
Afkoma samstæðu Reykja-
víkurborgar (bæði A-hluta og
B-hlutans þar sem eru fjárhags-
lega sjálfstæð fyrirtæki að meiri-
hluta í eigu borgarinnar) verður
hins vegar að teljast nokkuð góð,
með afgang upp á um 8,4 milljarða
króna. Þarna er um að ræða 11,1
milljarðs króna sveiflu frá árinu
áður þegar afkoman var neikvæð
um 2,7 milljarða króna. Þá er nið-
urstaðan 711 milljónum króna
betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Sé einvörðungu horft til rekstr-
arniðurstöðu A-hluta var afkoman
jákvæð um 3.008 milljónir króna
á meðan áætlun gerði ráð fyrir að
hún yrði jákvæð um 304 milljón-
ir. Þá er niðurstaðan 3.051 milljón
króna betri en árið 2012.
Þarna skiptir töluverðu máli
upphæð gjaldfærslu vegna lífeyr-
isskuldbindinga upp á 159 milljón-
ir króna, en fjárhagsáætlun borg-
arinnar gerði ráð fyrir að hún
yrði 2.600 milljónir króna.
„Oftar en ekki hefur þetta
verið á hinn veginn, að við höfum
verið yfir áætlun,“ segir Birgir
Björn Sigurjónsson, fjármála-
stjóri Reykjavíkurborgar. Skuld-
bindingarnar ráðist hins vegar
af tveimur þáttum. Annars vegar
sé það hvort lífeyrisskuldbind-
ingar vegna starfsmanna hækki,
en þær eru beintengdar við laun
eftirmanna og fylgja því kjara-
samningum. „Og á síðasta ári
voru engir kjarasamningar og
því ekkert að gerast á þeim vett-
vangi.“ Hins vegar séu skuldbind-
ingarnar tengdar ávöxtun eigna-
safnsins sem er að baki. „Og stór
hluti af eignasafninu eru skulda-
bréf sem fengust við sölu á hlut
borgarinnar í Landsvirkjun. Þessi
bréf hafa þannig ávöxtunarskil-
mála að þeir eru beintengdir við
ávöxtunarkröfu á tilteknum degi á
Íbúðalánasjóðsskuldabréfaflokki
sem er kallaður HFF34.“ Birgir
Björn segir að í fyrra hafi ekki
verið gert ráð fyrir því að ávöxt-
unarkrafan færi neitt upp, frekar
en árið þar á undan. „En ávöxtun-
arkrafan rauk upp á síðustu mán-
uðum ársins og það svo mjög að
eignirnar jukust með þeim hætti
að þessi áætlaða gjaldfærsla var
2,4 milljörðum of rúm.“
Birgir Björn segir viðbúið að
þróun lífeyrisskuldbindinga verði
öndverð á þessu ári, enda hafi
kjarasamningar áhrif auk þess
sem ávöxtunarkrafa eignanna
gæti sigið á ný. „Og þannig ástand
var nú reyndar bara 2011, annars
vegar kostnaðarsamir kjarasamn-
ingar og snarlækkandi ávöxtunar-
krafa sem gerði það að verkum að
við lentum í gjaldfærslu upp á 4,4
milljarða ef ég man rétt.“ Þetta
segir Birgir Björn ekki atriði sem
stjórnmálamenn eða stjórnendur
hjá borginni ráði miklu um, en
hafi gífurleg áhrif engu að síður.
„Árin 2008 og 2009 voru til dæmis
engir kjarasamningar og ávöxt-
unarkrafan hlaupandi upp allan
skalann og þá vorum við með nei-
kvæða gjaldfærslu á lífeyrisskuld-
bindingum þannig að það átti heil-
mikinn þátt í jákvæðri afkomu
þeirra ára,“ bendir hann á.
Einn þeirra þátta sem höfðu
áhrif til bættrar stöðu B-hluta
samstæðunnar var svo breytt
reikningsskilaaðferð Félagsbú-
staða, sem hækkaði eigið fé sam-
stæðunnar um 18,1 milljarð
króna. Þessi breyting segir Birgir
Björn að hafi þannig áhrif á sam-
stæðuniðurstöðuna að hún batni
um 1,9 milljarða króna.
Séu áhrif lífeyrisskuldbindinga
og endurmats eigna Félagsbú-
staða tekin saman er hlutur
þeirra 4,3 milljarðar króna í 8,4
milljarða króna afgangi samstæð-
unnar. Mismunurinn er 4,1 millj-
arður.
Í tilkynningu borgarinnar um
afkomuna er niðurstaða reikning-
anna sögð sýna að rekstur sam-
stæðunnar sé að styrkjast, auk
þess sem fjárhagslegur styrk-
ur A-hluta borgarsjóðs sé mikill
hvort sem litið sé til eiginfjár-
stöðu eða hefðbundinna skulda-
þekjuhlutfalla. Langtímaskuldir
samstæðu Reykjavíkur lækkuðu
um 29,2 milljarða króna milli 2012
og 2013 og stóðu í 231,5 milljörð-
um króna í lok síðasta árs.
Oftar en
ekki hefur
þetta verið á
hinn veginn,
að við höfum
verið yfir
áætlun.
Birgir Björn Sigurjónsson.
Samstæða 2009 2010 2011 2012 2013
Eiginfjárhlutfall 26,4% 30,8% 31,5% 31,4% 40,1%
Arðsemi eigin fjár -1,6% 12,4% -3,4% -1,8% 5,7%
Veltufjárhlutfall 1,06 1,05 0,91 0,87 0,92
Skuldsetningarhlutfall 239,2% 191,1% 184,9% 176,3% 120,6%
Uppgreiðslutími 16 ár 16 ár 11 ár 10 ár 9 ár
Skuldahlutf. skv. sveitarstj.lögum 329% 327% 292% 268% 221%
Veltufé frá rekstri 19% 19% 24% 24% 23%
Rekstrartekjur 23% 21% 23% 26% 29%
Heimild: Skýrsla Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar
➜ Kennitölur úr samstæðu Reykjavíkur
Heimild: Skýrsla Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar
Raun 2013 Áætlun 2013
150.000
120.000
90.000
60.000
30.000
0
-30.000
Tekjur Laun
og
launat.
gjöld
Breyt.
lífeyris.
skuldb.
Annar
rekstr-
arkost.
Af-
skriftir
Fjár-
magns-
liðir
Tekju-
skattur
Matsbr.
fjárf.
eigna
Hlutd. í
afkomu
tengdra
félaga
Rekstr-
arnið-
urstaða
12
9.
58
0
12
7.
16
4
19
5
2.
64
649
.0
33
48
.2
74
42
.8
59
42
.4
61
13
.9
13
14
.2
70
1.
89
1
1.
33
4
-9
.0
21
-1
0.
64
1
-7
.5
45
-2
.5
31
-5
17
0
➜ Áætlun og niðurstaða samstæðureiknings
milljónir króna
Áætlun og endanleg niðurstaða
Með fróðleik í fararnesti
Fuglaskoðun í Grafarvogi 3. maí 2014 kl. 11:00
Valitor er stuðningsaðili
Ferðafélags Íslands.
Allar nánari upplýsingar á hi.is
Safnast verður saman á bílastæðinu við Grafarvogskirkju á tilsettum tíma.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
Ferðin er hluti af samstarfsverkefni HÍ og FÍ og farin
í samvinnu við Ferðafélag barnanna. Hún er því
tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Reynsla og þekking
fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og
vísindamanna háskólans blandast saman í
áhugaverðum gönguferðum sem farnar eru
undir heitinu „Með fróðleik í fararnesti”.
Farfuglarnir okkar eru sannir vorboðar. Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent við Líf- og
umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, leiðir ferð í Grafarvog þar sem farfuglar
safnast fyrir á leirunni. Mælst er til að þátttakendur taki með sér sjónauka.
Sjón er sögu ríkari.
Markmiðið með samstarfinu er að vekja
áhuga almennings á fræðslu og hollri
útivist og fjölga valkostum í þeim efnum.
Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi
á fjölbreyttri starfsemi Háskóla Íslands og
Ferðafélagsins.
PIPA
R
\TBW
A
SÍA
141253
Sveifla utan áhrifavalds stjórnmála
Reykjavíkurborg skilaði 8,4 milljarða króna afgangi 2013. Þróun sem dró úr ætluðum lífeyrisskuldbindingum og endurmat eigna Félagsbú-
staða hjálpaði til. Að þeim þáttum frádregnum er hagnaður samt 4,1 milljarður. Niðurstaðan er 711 milljónum króna betri en áætlað var.
Til A-hluta reksturs Reykjavíkurborgar telst starfsemi sem að hluta eða öllu
leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en
rekstur þeirra að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Þar á meðal
eru Bílastæðasjóður, Faxaflóahafnir, Félagsbústaðir, Orkuveitan, Skíðasvæði
höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgar svæðisins, Sorpa og Strætó.
➜ A og B hluti?
FRÉTTASKÝRING
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Ársreikningur Reykjavíkurborgar
2013 er nýbirtur
Hlutabréf í fyrirtækinu Twitt-
er sem á samnefnt vinsælt sam-
skiptaforrit féllu í gær og hafa
aldrei verið lægri síðan fyrirtækið
fór á markað í New York í nóvem-
ber síðastliðnum.
Fjárfestar munu hafa áhyggjur
af getu forritsins til að bæta við
sig notendum og halda þeim sem
nú þegar nota það við efnið.
Talsmenn Twitter segjast vera
að einblína á að ná til fleiri og fá
notendur til að vera virkari, en það
hefur ekki tekist nægilega hratt
fyrir fjárfesta þeirra.
Um 255 milljónir manns nota
forritið mánaðarlega samkvæmt
tölum frá því í mars, sem er 25
prósentum meira en í fyrra.
- fbj
Fjárfestar hafa áhyggjur af getu til að bæta við notendum :
Hlutabréf í Twitter falla
HARÐUR BRANSI Fjárfestum finnst Twitter ekki stækka nógu hratt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Jón Sigurðsson, forstjóri stoð-
tækjafyrirtækisins Össurar,
keypti í gær bréf í fyrirtækinu
fyrir sem samsvarar 21,5 millj-
ónir íslenskra króna, eða eina
milljón danskra króna. Össur er
skráður í Kauphöllina bæði
á Íslandi og í Danmörku.
Jón keypti 80.900 hluti í gær
og á því alls 458.834 hluti í fyrir-
tækinu að verðmæti 120 millj-
óna íslenskra króna miðað við
kaupverð á hlutnum í gær. Hann
á jafnframt kauprétt á 1.250.000
hlutum.
- fbj
Keypti 80.900 hluti fyrir 21,5 milljónir króna í gær:
Forstjóri Össurar fjárfestir