Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 38
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Elskulegur sonur minn og bróðir okkar,
SIGURÞÓR SIGÞÓRSSON
lést á líknardeild Landspítalans
hinn 26. apríl sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Auður Antonsdóttir
Anton G. Sigþórsson
Valdimar H. Sigþórsson
Þorbjörg A. Sigþórsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELSABET JÓNSDÓTTIR
Eskifirði,
andaðist fimmtudaginn 24. apríl.
Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju
föstudaginn 2. maí kl. 14.00.
Jóhanna Kristín Friðgeirsdóttir Ómar Jónsson
Steinn Friðgeirsson Liselotte Widing
Helga Friðgeirsdóttir Ásmundur Þórisson
Drífa Friðgeirsdóttir Einar Jónsson
Kristgeir Friðgeirsson Birna Kjartansdóttir
Inga Jóna Friðgeirsdóttir Óskar B. Hauksson
Brynja Rut Sigurðardóttir Páll Ragnar Þórisson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA S. JÓNSDÓTTIR
Suðurvangi 6, Hafnarfirði,
andaðist miðvikudaginn 23. apríl. Útförin fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
5. maí kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem viljast
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Kristbjörg Einarsdóttir Guðlaugur Ellertsson
Ingibjörg Magnúsdóttir Júlíus Jón Jónsson
Sólbjörg Harðardóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELENA HÁLFDANARDÓTTIR
sjúkraliði,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 22. apríl.
Útförin verður gerð frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 2. maí kl. 13.00.
Baldur Rafnsson Elinóra Kristín Guðjónsdóttir
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir Stefán Jóhann Stefánsson
Brynhildur Björk Rafnsdóttir Sigursteinn Magnússon
Arnheiður Edda Rafnsdóttir Erling Erlingsson
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐLAUG GUÐRÚN TORFADÓTTIR
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 26. apríl sl. Útförin fer fram
frá Lágafellskirkju föstudaginn 2. maí
kl. 11.00.
Auður Axelsdóttir Eiríkur Guðmundsson
Torfi Axelsson Geirlaug Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
GEIRS ZOËGA.
Sigríður E. Zoëga og fjölskylda.
Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins
er í dag, 1. maí. Rætur hans má rekja til
þess þegar tillaga frá Frökkum var sam-
þykkt á þingi evrópskra verkalýðsfélaga í
París árið 1889 um að 1. maí skyldi verða
alþjóðlegur frídagur verkafólks. Frakkar
lögðu til að verkafólk notaði daginn til
fjöldafunda til að fylgja eftir kröfum um
átta stunda vinnudag og aðrar umbætur
á kjörum.
Fyrsta kröfugangan á 1. maí var gengin
á Íslandi árið 1923 og dagurinn varð lög-
skipaður frídagur árið 1972.
Á þessum degi er ávallt leikinn alþjóða-
söngur verkalýðsins, Internasjónalinn sem
oft er líka kallaður Nallinn. Hann var fyrst
fluttur opinberlega í júlí árið 1988 en höf-
undur er Eugène Pottier. Sveinbjörn Sigur-
jónsson þýddi sönginn yfir á íslensku og
er lagið eftir Pierre De Geyter.
Hinn 1. maí er hefð fyrir hátíðahöldum
um allt land og fara landsmenn í kröfu-
göngur og hlýða á ræður forsvarsmanna
verkalýðsfélaganna.
1. MAÍ ÁRIÐ 1923: FYRSTA KRÖFUGANGAN Á 1. MAÍ Á ÍSLANDI
Ákveðið að gera daginn að baráttudegi árið 1889
ALDREI UPPISKROPPA MEÐ EFNI „Við spilum bara lög sem aðrir eru hættir að nota og spilum á hljóðfæri sem aðrir eru hættir að nota.“
„Við uppgötvuðum það einhvern dag-
inn að við værum tvítugir í ár. Það
eru tímamót í sjálfu sér. Við bendum
gjarnan á það að við höfum verið að
næstum því helmingi lengur en Bítl-
arnir,“ segir Hjörleifur Hjartarson.
Hann skipar dúettinn Hundur í óskil-
um ásamt Eiríki G. Stephensen. Sveit-
in, sem þekkt er fyrir gamansemi og
glaum, fagnar tuttugu ára afmæli sínu
í ár.
„Við byrjuðum í einhverju part-
íi eins og hljómsveitir byrja gjarnan.
Síðan er partíið búið að standa í tutt-
ugu ár. Eiríkur félagi minn flutti norð-
ur til Dalvíkur þar sem ég bjó í Svarf-
aðardal og fundum okkar bar saman
í Leikfélagi Dalvíkur. Þar spiluðum
við eitthvað í partíum og það samstarf
stendur enn,“ segir Hjörleifur. Það var
þó aldrei meiningin að stofna hljóm-
sveit.
„Það var ekkert planað að vera
svona lengi í hljómsveit. En samstarf-
ið blómstrar sem aldrei fyrr. Þetta er
búið að vera alveg ótrúlega farsælt
hjónaband. Við erum löngu komnir yfir
öll leiðindi. Við sitjum bara þegjandi í
bílnum þegar við keyrum á tónleika.
Í mesta lagi les ég Séð og Heyrt upp-
hátt á meðan Eiríkur keyrir. Við erum
löngu orðnir svo leiðir hvor á öðrum
að við erum hættir að taka eftir því.“
Hljómsveitin fagnar afmælinu með
nokkrum tónleikum á Café Rósenberg,
þar á meðal næstkomandi föstudags-
kvöld klukkan 22.00. Þótt líftími sveit-
arinnar sé langur hefur Hundur í óskil-
um ekki gefið út mikið efni.
„Við erum ekkert ofsalega duglegir
við að halda tónleika, enda miðaldra
menn og verðum latari með árunum.
Við höfum gefið út tvær plötur sem
báðar innihéldu tónleika sem voru
teknir upp því við nenntum ekki í
stúdíó. Við erum ekki einu sinni með
heimasíðu. En meðan er eftirspurn
eftir okkur erum við til. Við bókuð-
um nokkra tónleika á Rósenberg því
þá neyðumst við til að mæta þegar
tónleikarnir eru auglýstir. Það held-
ur okkur við efnið,“ segir Hjörleifur á
léttum nótum en sveitin hefur þó nóg
fyrir stafni.
„Við höfum verið uppteknir í leikhús-
inu undanfarin ár. Við vorum meðal
annars með leiksýningu sem hét Saga
þjóðar. Hún gekk og gekk og við höfð-
um ekki tíma í tónleikahald á meðan.
Við spilum líka talsvert á árshátíðum
og eigum tvær Grímur fyrir leikhús-
tónlist. Þótt við séum ekki duglegir að
gefa út höfum við ekki setið aðgerða-
lausir.“
Hjörleifur segir þá félaga aldrei
verða uppiskroppa með efni.
„Við spilum bara lög sem aðrir eru
hættir að nota og spilum á hljóðfæri
sem aðrir eru hættir að nota. Það er
alltaf nóg af slíku efni. Það má segja
að við séum í endurvinnslu og höfum
gefið okkur út fyrir að vera hljóm-
sveit hins nýja tíma á Íslandi þar sem
hlutirnir eru nýttir í botn. Við spilum
til dæmis jólalög allt árið um kring.
Við spilum á eldhúsáhöld sem enginn
vill spila á – hárþurrkur og hækjur til
dæmis,“ segir Hjörleifur. Hann segir
afmælisárið lofa góðu.
„Við erum að leggja drög að nýrri
sýningu. Saga þjóðar heldur allt-
af áfram að lengjast í annan endann
þannig að það er kominn efniviður í
nýja sýningu. Síðan vorum við með
sýninguna Hestaat í samstarfi við
Hilmi Snæ í Hörpu fyrir stuttu og það
verða einhverjar sýningar á því í lok
maí í Þjóðleikhúskjallaranum,“ segir
Hjörleifur sem nýtur þess að vera tví-
tugur á ný.
„Við erum barnungir. Við eigum
fjörutíu ár eftir af ferlinum.“
liljakatrin@frettabladid.is
Ótrúlega farsælt hjóna-
band Hunds í óskilum
Hljómsveitin Hundur í óskilum fagnar tvítugsafmæli sínu í ár. „Það var ekkert planað að
vera svona lengi í hljómsveit,“ segir Hjörleifur Hjartarson, annar meðlimur sveitarinnar.
Þeir Eiríkur G. Stephensen halda upp á afmælisárið með tónleikaröð.
Við sitjum bara þegj-
andi í bílnum þegar við
keyrum á tónleika. Í mesta
lagi les ég Séð og Heyrt
upphátt á meðan Eiríkur
keyrir. Við erum löngu
orðnir svo leiðir hvor á
öðrum að við erum hættir
að taka eftir því.
Hjörleifur Hjartarson.