Fréttablaðið - 01.05.2014, Qupperneq 46
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
Ég verð að segja að ég er mjög
ánægður með þessa bók og stolt-
ur af henni,“ segir Anton Helgi
Jónsson þegar honum er óskað
til hamingju með nýju ljóða-
bókina, Tvífari gerir sig heima-
kominn. „Ég náði held ég ýmsu
sem mig hefur lengi langað til
að gera og það var ýmislegt
sem kom heim og saman.“ Beð-
inn um dæmi segir Anton Helgi:
„Til dæmis eins og að leika mér
með ýmsar myndlíkingar þann-
ig að þær verði skemmtilegar um
leið og þær eru hversdagslegar í
hversdagslegu umhverfi, eins og
í fyrsta ljóðinu um verslunarferð
þar sem tilgangur lífsins mætir
á svæðið.“
Ljóðin í bókinni eru nánast öll
tengd Reykjavík og því eðlilegt
að spyrja hvort Anton Helgi sé
tekinn við af Tómasi Guðmunds-
syni sem Reykjavíkurskáld. „Það
held ég varla, þau eru svo mörg
fremri mér í því,“ segir Anton og
hlær. „En mig hefur lengi lang-
að til að gera borgarljóðabók og
það sem ýtti við mér var að fyrir
nokkrum árum eignaðist ég ljóða-
og textasafn Pauls McCartn ey
sem kom út upp úr aldamótunum
og þegar ég las í gegnum það þá
allt í einu mundi ég hvað það var
sem hafði sterkust áhrif á mann
þegar maður var krakki og ung-
lingur og að mig hafði langað að
gera svona bók þegar ég var rúm-
lega tvítugur. Kannski má segja
að þessi bók sé ort fyrir sjálfan
mig tvítugan.“
Anton Helgi heldur því fram
að þetta sé að mörgu leyti gamal-
dags ljóðabók eins og marka megi
af tilvitnuninni í McCartney sem
eru einkunnarorð hennar. „Ég er
að nota alls konar trix sem ekki
hafa verið mikið uppi á yfirborð-
inu á undanförnum árum og and-
blær sjöunda áratugarins er mjög
sterkur í bókinni. Þó ég geti ekki
annað en vonað að hún höfði til
ungs fólks þá er mjög greinilegt
að þarna skrifar gamall karl sem
horfir um öxl.“
Til hvers vísar tvífarinn í titlin-
um? „Tvífarinn er kannski fram-
andleikinn í manni sjálfum eða
ýmislegt sem maður nær ekki
sambandi við. Eða kannski er
tvífarinn bara veruleikinn sjálf-
ur. Mörg þessara ljóða fjalla um
ákveðið sambandsleysi og einmana
fólk og þar er ég kannski að miðla
einhverri tilfinningu sem hefur
hangið með mér lengi, en þetta er
líka sýn mín á samfélagið og hvar
við höfum verið stödd allmörg
undanfarin ár.“
Og af því stafar þessi nostalgía
eftir sjöunda áratugnum? En þá
varst þú bara barn. „Já, verður
maður ekki fyrir sterkustu áhrif-
unum þegar maður er barn og ung-
lingur? Þegar ég var þrettán, fjór-
tán ára þá lögðust þeir á mig með
fullum þunga Dylan, Bítlarnir, Ston-
es og bara öll sú familía og ég hef að
einhverju leyti verið staddur í þeim
tíma síðan.“ fridrikab@frettabladid.is
Bók fyrir sjálfan mig tvítugan
Ljóðabókin Tvífari gerir sig heimakominn eft ir Anton Helga Jónsson kom út hjá Forlaginu í síðustu viku. Að
sögn höfundarins svífur andi sjöunda áratugarins yfi r vötnum í ljóðunum enda segist hann ungur hafa vígst
inn í familíu Dylans, Bítlanna og Stones og tilheyri henni að vissu leyti enn þá.
ANTON HELGI „Mig hefur lengi langað til að gera borgarljóðabók og það sem ýtti
við mér var að fyrir nokkrum árum eignaðist ég ljóða- og textasafn Pauls McCartney.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hvers vegna nefnir enginn
hjartapuntinn
sem bara vex í Grafarvogi?
Það hvín oft í stráum
og grösum í sveitinni.
Hlustum frekar á hjartapuntinn
sem hvergi vex nema í Grafarvogi.
Við gætum átt svo góðar stundir.
Förum og leitum að hjartapunt-
inum
sem bara vex í Grafarvogi.
➜ Ljóðið um
hjartapuntinn
Sýningin er eins konar ullar-
innsetning þar sem ég vinn með
hljóð, vídeó og skúlptúra, skoða
meðal annars hin smæstu ullar-
hár og þeirra fíngerðustu hreyf-
ingar,“ segir Lilý Adamsdótt-
ir myndlistarkona. Hún leikur
sér með íslensku ullina á annan
hátt en margur annar og lætur
hana leiða sig í hinar heimspeki-
legustu vangaveltur um upphaf,
endi, orsök, afleiðingu, tækifæri
og fegurð.
Lilý opnar sína fyrstu einka-
sýningu í Deiglunni á Akur-
eyri á laugardaginn klukkan
15 en hefur tekið þátt í sýning-
um og verkefnum hér á landi og
erlendis og vinnur með gjörn-
inga, vídeó, teikningar, textíl og
innsetningar.
gun@frettabladid.is
Lætur íslensku ullina
leiða sig áfram
Með íslenskan ullarþráð í hendi veltir Lilý Adams-
dóttir myndlistarkona fyrir sér upphafi og endi. Hún
opnar sýningu í Deiglunni á Akureyri á laugardaginn.
Á SÝNINGUNNI Prjónaðar ullarvöfflur, stórar, smáar, fínar og grófar. MYND/ÚR EINKASAFNI
Björn Roth, sýningarstjóri,
sonur og samstarfsmaður Diet-
ers Roth, spjallar við gesti um
sýninguna Hnallþóra í sólinni
sunnudaginn 4. maí.
Hnallþóra í sólinni er sýning
á úrvali prent- og bókverka eftir
Dieter Roth en á sýningunni er
lögð áhersla á framlag lista-
mannsins til prentmiðilsins, sem
hann hafði mikinn metnað fyrir.
Sýnd eru grafík- og bókverk
frá árunum 1957 til 1993, en
sýningunni er skipt upp í ellefu
mismunandi tímabil sem veita
greinargóða innsýn í listsköpun
og ævistarf Dieters Roth. Sýn-
ingin var upphaflega sett upp
í Skaftfelli á Seyðisfirði og eru
verkin fengin að láni frá Nýlista-
safninu og fjölskyldu Dieters
Roth.
Sýningarstjóraspjall Björns
hefst klukkan 15 og er aðgangur
ókeypis.
Björn spjallar
um Hnallþóru
BJÖRN ROTH Roth spjallar við gesti um
sýninguna Hnallþóra í sólinni sunnu-
daginn 4. maí.
Opnunarhátíð í dag
Áfram Kópavogur!
Um leið og við óskum íslensku launafólki til hamingju með daginn
bjóðum við öllum Kópavogsbúum til opnunar kosningamiðstöðvar
okkar að Bæjarlind 2 milli kl. 14 og 17.
Við erum stolt af árangri núverandi meirihluta og höldum til kosn-
ingabaráttunnar með jákvæðni og uppbyggjandi kraft að leiðarljósi.
Opnun kosningamiðstöðvar
1. maí kl. 14-17
Bæjarlind 2
Allir velkomnir!
Blöðrumeistari frá Sirkus Íslands skemmtir
börnunum og veitingar í boði fyrir alla fjöl-
skylduna.