Fréttablaðið - 01.05.2014, Síða 50
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 42
FRUMSÝNINGAFMÆLISBARN DAGSINS VISSIR ÞÚ...
Leikkonan Emilia Clarke er 27 ára
í dag.
Hún er þekktust fyrir að leika Daenerys
Targaryen í Game of Thrones.
Transcendence,
vísindaskáldskapur
AÐALHLUTVERK: Johnny Depp,
Rebecca Hall, Morgan Freeman, Kate
Mara, Cillian Murphy, Paul Bettany.
Aldurstakmark: 12 ár
6,4/10
42/100
18/100
… að leikarinn Leonardo DiCaprio
var nefndur eftir listmálaranum
Leonardo DaVinci. Sagan segir að
móðir hans hafi fundið hann sparka
í fyrsta sinn þegar hún stóð fyrir
framan mynd af DaVinci á safni í
Flórens á Ítalíu.
Sony Pictures tilkynntu að kvikmynd-
in Pixels, sem skartar Adam Sandler,
Kevin James og Michelle Monaghan,
verði frumsýnd þann 15. maí á næsta
ári. Chris Columbus leikstýrir mynd-
inni en tökur hefjast í næsta mánuði.
Framleiðslufyrirtæki Sandlers, Happy
Madison, framleiðir myndina ásamt
Allen Covert, 1492 Pictures, Michael
Barnatham og Mark Radcliffe.
FRUMSÝND Í MAÍ 2015
Leikarinn Rob Lowe hefur landað hlut-
verki í kvikmyndinni Monster Trucks
hjá Paramount. Myndin verður frum-
sýnd 29. maí á næsta ári. Aðrir leikarar
í myndinni eru til dæmis Danny Glov-
er, Jane Levy og Amy Ryan en mikil
leynd hvílir yfir söguþræði hennar. Rob
er líka með hlutverk í sumarmynd í ár
þar sem hann leikur á móti Cameron
Diaz og Jason Segel í Sex Tape.
LEIKUR Í MONSTER TRUCKS
KVIKMYND ★ ★★★ ★
That Awkward Moment
Aðalhlutverk: Zac Efron, Miles Teller,
Michael B. Jordan og Imogen Poots
Eftir að þessari mynd lauk varð
mér hugsað til setningar í sjón-
varpsþáttunum Friends þegar Joey
fékk að heyra eftir leiklistarprufu
að hann væri „not believable as a
human being“ eða ótrúverðugur
sem manneskja.
Mig langar næstum því að segja
það sama um Zac Efron. Ég gaf
honum séns og beið eftir því að
hann myndi sanna að hann væri
ekki bara fallegt andlit með six-
pakk og tindrandi augu. Það gekk
ekki eftir. Hann er svo lélegur leik-
ari að stundum gat ég ekki einu
sinni horft á hvíta tjaldið þegar
hann var að tala.
Restin af leikaraliðinu er svo
sem ekki mikið skárri. Mig grun-
ar líka að sjö ára barn hafi skrif-
að handritið, sem oft og tíðum er
miklu meira en skelfilegt.
Hér er allt á yfirborðinu. Allar
tilfinningar eru utanáliggjandi
og enginn reynir að gera þær svo
mikið sem fimm prósent persónu-
legar. Og í þeim leik er Zac Efron
meistari. Lilja Katrín Gunnarsdóttir
NIÐURSTAÐA: Ekkert kemur á óvart
og hér er farið illa með gott tækifæri
til að láta fólk hlæja og jafnvel fella
nokkur tár.
Allt á
yfirborðinu
ÞRÍR VINIR Zac, Miles og Michael leika
þrjá góða vini.
Grínmyndin The Other Woman
var frumsýnd hér á landi í gær en
hún fjallar um þrjár konur sem
allar hafa átt vingott við sama,
svikula manninn.
Leikkonurnar Cameron Diaz og
Leslie Mann eru í aðalhlutverkum
ásamt fyrirsætunni Kate Upton.
Myndin hefur ekki fengið mikið
lof gagnrýnenda en hefur aldeil-
is trekkt fólk að í kvikmyndahús.
Myndin rakaði inn 24,7 milljón-
um Bandaríkjadala frumsýning-
arhelgina, tæpum þremur millj-
örðum króna. Myndin skaust beint
í fyrsta sæti listans yfir myndir
sem náðu mestri miðasölu þá helgi
og náði toppsætinu af ofurhetju-
myndinni Captain America: The
Winter Soldier, sem hafði hald-
ið því sæti í þrjár vikur í röð. 75
prósent þeirra sem sáu myndina á
frumsýningarhelginni voru konur.
Söngkonan Nicki Minaj fer
einnig með lítið hlutverk í mynd-
inni en þetta er hennar fyrsta
hlutverk á hvíta tjaldinu. Hún er
þó ekki ókunn bíóbransanum því
henni bregður fyrir í teiknimynd-
inni Ice Age: Continental Drift,
sem var frumsýnd árið 2012.
Nicki segist vilja leika meira og
er hvergi nærri hætt.
„Ég fer í prufur og ég er að
reyna að finna rétta hlutverkið
með rétta leikstjóranum og réttu
handritshöfundunum. Mig lang-
ar að vera hluti af einhverju frá
byrjun næst og ég vil að hlutverk-
ið sé sérsniðið fyrir mig,“ segir
Nicki í viðtali við MTV New. Hún
segist þó ekki vera að leita sér að
stóru hlutverki þessa dagana,
enda að vinna að nýrri plötu. „Ég
er mjög fjölhæf. Stundum langar
mig að leika í grínmynd með Will
Ferrell og stundum langar mig
að leika í mynd í anda Set it Off
með öðrum, ungum, þeldökkum
leikkonum. Og stundum væri ég
til í að leika í X-Men-mynd.“ Auk
kvennanna fjögurra fara þeir
Nikolaj Coster-Waldau og Taylor
Kinney með hlutverk í myndinni.
liljakatrin@frettabladid.is
Konurnar hrifsuðu topp-
sætið af Captain America
Grínmyndin The Other Woman var frumsýnd á Íslandi í gær. Myndin náði fyrsta sæti í Bandaríkjunum yfi r
mestu miðasölu en fyrir frumsýningarhelgina hafði myndin Captain America: The Winter Soldier trónað á
toppi listans í þrjár vikur. Í myndinni stígur söngkonan Nicki Minaj sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu.
Þetta er þriðja mynd fyrirsætunnar Kate Upton en hún
lék lítil hlutverk í Tower Heist og The Three Stooges.
Mikið grín hefur verið gert að línunum sem hún fær
í The Other Woman og hafa fjölmargar vefsíður tekið
saman allar línurnar sem hún á í myndinni. Þykja
mörgum þeir afar heimskulegar en eru sammála um að
Kate komist ágætlega frá þeim. Hér fylgja nokkrar af
línum hennar í myndinni:
● Hæ.
● Hvað er að gerast?
● Ég trúi því ekki að hann hafi logið að mér. Ég hélt að
við værum sálufélagar. Ó Guð, fyrirgefðu. Ég trúi því
ekki að ég hafi sagt þetta. Þú ert sálufélagi hans! Ég er
hóra.
● Þú hlýtur að hata mig svo mikið núna en ef það er
þér einhver huggun þá hata ég mig meira.
● Þú virðist vera svo indæl og allan þennan tíma lét
hann mig halda að þú værir djöfullinn.
● Er ykkur sama þótt ég reyki?
● Við gætum sparkað í eistun á honum!
➜ Við gætum sparkað í eistun á honum!
ÞRUSULEIKARALIÐ Konurnar trekkja að. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Á UPPLEIÐ Nicki vill leika meira.
26/1009/1006,4/10