Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 58

Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 58
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 visir.is Frekari umfjöllun um Meistaradeildina MADRÍDARSLAGUR Atlético Madrid vann 3-1 sigur á Chelsea á Brúnni í gær og tryggði sér sæti í úrslitaleik Meist- aradeildarinnar þar sem liðið mætir nágrönnum sínum í Real. Fernando Torres kom Chelsea yfir en Atlético svaraði með mörkum frá Adrian Lopez, Diego Costa (víti) og Arda Turan. Atlético í úrslit SPORT 1. sæti ??? 2. sæti ??? 3. sæti Breiðablik 4. sæti Stjarnan 5. sæti Valur 6. sæti ÍBV 7. sæti Þór 8. sæti Fram 9. sæti Keflavík 10. sæti Víkingur 11. sæti Fylkir 12. sæti Fjölnir Breiðablik náði frábærum árangri í Evrópudeildinni á síðasta tímabili en því miður fyrir liðið náði það ekki Evrópusæti. Þrátt fyrir nokkurn mannamissi er liðið mjög vel mannað og getur hæglega barist um titilinn. Stærsta breytingin á liðinu kemur til skjalanna þegar sex umferðir verða búnar af mótinu því þá yfirgefur arkitektinn að uppgangi Blika undanfarin ár, Ólafur Kristjánsson, tekur við Nordsjælland í Danmörku. Guðmundur Benediktsson mun taka við Breiðabliki en hann hefur verið aðstoðarmaður Ólafs undanfarin ár og þekkir leikmannahópinn inn og út. Það verður fróðlegt að sjá hversu mikil áhrif þessi breyting hefur. Finnur Orri Margeirsson Fyrirliðinn átti frábært sumar í fyrra en hann hefur verið ein af þöglu hetjum deildarinnar um árabil. Hann er ekki nema 23 ára gamall en lék sinn 150. deildarleik síðasta sumar. Finnur er óþreytandi miðjumaður sem spilar lykilhlutverk hjá Breiðabliki, sama hvaða uppstillingu liðið vinnur með. Í nýja 3-5-2 kerfinu sem Ólafur byrjaði að nota í fyrra átti Finnur marga af sínum bestu leikjum. Arnór Sv. Aðalsteinss. (Hönefoss) Damir Muminovic (Víkingi Ó.) Jordan Halsman (Fram) Stefán Gíslason (Leuven) FYLGSTU MEÐ ÞESSUM Damir Muminovic: Þessi 24 ára gamli varnarmaður hefur gengið í gegnum ýmislegt á sínum fótbolta- ferli en hann sýndi loks hvers hann er megnugur með Ólsurum í fyrra. Nú er hann kominn í mun betra lið og fær tækifæri til að láta ljós sitt skína enn frekar. Ólafur H. Kristjáns- son verður 46 ára í maí en hann er á sínu níunda og síðasta ári með Blika. Guð- mundur Benediktsson tekur við í júní þegar Ólafur gerist þjálfari Nordsjælland. GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL > 2008 (8. sæti) - 2009 (5. sæti, Bikarmeistari) - 2010 (Íslandsmeistari) - 2011 (6. sæti) - 2012 (2. sæti) - 2013 (4. sæti) Íslandsmeistarar: 1 sinni (2010) / Bikarmeistarar: 1 sinni (2009) ➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ LIÐSTYRKURINN ★★★★★ HEFÐIN ★★★★★ Breiðablik hafnar í 3. sæti ➜ Lykilmaðurinn ➜ Þjálfarinn ➜ Nýju andlitin TÖLURNAR Í FYRRA Mörk skoruð 4. sæti (1,68 í leik) Mörk á sig 3. sæti (1,23 í leik) Stig heimavelli 3. sæti (24 af 33, 73%) Stig á útivelli 5. sæti (15 af 33, 46%) HEFST 4. MAÍ SPÁ FRÉTTABLAÐSINS Körfubolti Íslandsmeistarar Grindavíkur fá KR í heimsókn í fjórða leik liðanna í kvöld í úrslitaeinvígi Dominos-deildar karla. KR leiðir 2-1 og tryggir sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. Gulklæddir heimamenn knýja fram oddaleik með sigri. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndir beint á Stöð 2 Sport. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, segir mögu- leika Grindavíkur standa og falla með frammistöðu eins manns, Earnest Lewis Clinch Jr. Clinch verður að eiga stórleik „Möguleiki Grindavíkur felst í því að Clinch eigi stórleik. Þeir þurfa algjört toppframlag frá honum,“ segir Benedikt, sem hefur komið víða við á þjálfaraferli sínum. Bæði Grindavík og KR hafa notið krafta hans þótt Vesturbæjarliðið sé það félag sem Benedikt tengist sterkustu böndum. „Kannski er KR-ingur inni í mér alltaf að þvælast fyrir mér þegar kemur að KR,“ segir Benedikt létt- ur um vangaveltur sínar um mögu- leika liðanna. Engin spurning sé þó hvorum megin gæðin liggi. „Ef þú berð saman þessi lið þá eru gæðin klárlega KR-megin. Þeir hafa breiddina,“ segir Bene- dikt. Bendir hann á að marg- reyndir landsliðsmenn á borð við Brynjar Þór Björnsson og Magna Hafsteinsson komist ekki í byrjun- arlið þeirra svörtu og hvítu. „Það eru leikmenn sem myndu byrja inni á í nánast hvaða liði sem er.“ Munar rosalega um Þorleif Á sama tíma séu Grindvíkingar vængbrotnir vegna meiðsla Þor- leifs Ólafssonar. Þorleifur sleit krossband í átta liða úrslitunum gegn Benedikt og félögum og segir þjálfarinn muna rosalega um Þor- leif. „Hann er eiginlega hjartað og karakterinn í þessu liði,“ segir Benedikt en hrósar um leið karakt- er Grindvíkinga. „Þeir hafa risa- hjarta og eru búnir að fara mjög langt þrátt fyrir að verða fyrir skakkafalli.“ Ólafur Ólafsson, bróðir Þorleifs, verður aftur á móti með í kvöld en hann slapp við bann eftir að hafa verið kærður til aganefndar fyrir afar óheppileg ummæli sín eftir tapið í DHL-höllinni á mánudag. Þótt líkurnar séu meiri á sigri KR segist Benedikt alls ekki þora að afskrifa Grindavíkurliðið. Þar séu leikmenn með mikla reynslu og sigurhefð sem gætu vel snúið við blaðinu eftir slátrunina í síð- asta leik. Það kæmi Benedikt ekk- ert á óvart ef Grindavík hefði betur í kvöld. „Hins vegar sé ég ekkert lið vinna KR þrisvar í einni seríu.“ kolbeinntumi@frettabladid.is Lífl ínan í hendi Lewis KR getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í Röstinni í kvöld. Benedikt Guðmundsson segir gæðin vissulega hjá KR og sigurlíkurnar þeim megin. STIG AÐ MEÐALTALI Í LEIK Í sigurleikjunum (7): 24,1 Í tapleikjunum (5): 15,6 FRAMLAG AÐ MEÐALTALI Í LEIK Í sigurleikjunum (7): 23,0 Í tapleikjunum (5): 12,2 3JA STIGA KÖRFUR Í LEIK Í sigurleikjunum (7): 3,1 Í tapleikjunum (5): 1,6 3JA STIGA SKOTNÝTING Í sigurleikjunum (7): 46 prósent Í tapleikjunum (5): 30 prósent Mikilvægi Lewis Clinch í úrslitakeppninni MIKILVÆGUR Lewis Clinch þarf að eiga góðan leik í kvöld ætli Grindvíkingar að tryggja sér oddaleik á laugardaginn. 1991 1993 1994 1995 1996 1997 1999 2000 2001 2003 2004 2010 2012 2014 3. sæti 5. sæti 5. sæti 2. sæti 2. sæti 5. sæti 1. sæti 1. sæti 7. sæti 1. sæti 6. sæti 4. sæti 4. sæti ? sæti 9 Rétt 56% 7 Vitlaus 44% KR SPÁÐ TITLINUM ÖÐRUM FÉLÖGUM SPÁÐ TITLINUM KÖRFUBOLTI „Við erum fyrst og fremst gríðarlega ánægð fyrir hans hönd,“ segir Benedikt um vistaskipti Ragnars Nathanaelssonar. Miðherjinn hávaxni samdi í vikunni við Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Hlutirnir gerðust hratt og er ljóst að Benedikt á ærið verkefni fyrir höndum að fylla í hans skarð. „Við tókum drenginn að okkur síðasta sumar og framfarir hans hafa verið ótrúlegar,“ segir Benedikt. Hann viðurkennir að liðið veikist við brotthvarf Ragnars, enda missi það frábæran leikmann. Leikmannasamningar í körfuboltanum hér heima geri þjálfurum erfitt fyrir að byggja upp til lengri tíma. Í tilfelli Ragnars hafði hann nýlokið árs samningi en skrifað undir nýjan samning. Í honum var hins vegar klausa sem gerði honum kleift að halda utan í atvinnumennsku. „Það gerir starfið erfitt,“ segir Benedikt. - ktd Framfarirnar eru ótrúlegar BLESS ÍSLAND Ragnar Nathanelsson er á leið út í atvinnumennsku til Svíþjóðar. TITILPRESSAN ERFIÐ Í VESTURBÆNUM – árleg spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara 1985-2013 í tölum Sæti KR-liðsins á þeim árum sem þeim hefur verið spáð Íslandsmeistaratitlinum. HANDBOLTI Þetta er risadagur í íslenska handboltanum því að í dag fara fram tveir oddaleikir um sæti í úrslitum Olís-deildar karla. Haukar og ÍBV tryggðu sér oddaleik með sigri á útivelli í fjórða leiknum á þriðjudaginn og verða því á heimavelli í kvöld. Það ætti að koma sér vel enda hafa síð- ustu fjórtán oddaleikir í úrslita- keppni karla í handbolta unnist á heimavelli. Það eru allir leikir síðan að KA tryggði sér Íslands- meistaratitilinn með sigri í odda- leik á Hlíðarenda 10. maí 2002. FH vann tvo fyrstu leikina á móti deildarmeisturum Hauka sem hafa svarað með tveimur sannfærandi sigrum. Síðustu tveir leikir ÍBV og Vals hafa hins vegar verið æsispennandi og unnist á einu marki. Þrjú félög geta tryggt sér sæti í lokaúrslitum í dag því að á undan karlaleiknum í Eyjum mætast ÍBV og Valur í fjórða leik sínum í undanúrslitum Olís- deildar kvenna. Vinni Valskonur leikinn tryggja þær sér sæti í lokaúrslitunum á móti Stjörnunni en vinni ÍBV verður oddaleikur í Vodafone-höllinni á laugardaginn. Karlaleikirnir hefjast klukkan 16.00 en kvennaleikurinn er klukkan 14.00. - óój Taplaus í odda - leik í tólf ár BÚNIR AÐ JAFNA Haukarnir lentu 0-2 undir en geta komist í úrslit í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÖRFUBOLTI KR-ingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Grindavík í kvöld með sigri á heimavelli Íslandsmeistara síð- ustu tveggja ára. Takist KR að vinna í Röstinni og lyfta Íslands- bikarnum í leikslok yrði liðið fyrsta liðið í 26 ár til að vinna titilinn á heimavelli fráfarandi meistara. Það hefur ekki tekist hjá neinu liði síðan Haukarnir unnu titilinn í Njarðvík 19. apríl 1988. -óój Leikur KR eft ir afrek Hauka? FÓTBOLTI Karlalið KR mun verja Íslandsmeistaratitilinn sinn rætist spá fyrirliða, þjálfara og forráða- manna félaganna í Pepsi-deild- inni sem var kynnt í gær á Kynn- ingarfundi fyrir Pepsi-deild karla í sumar. FH endar í öðru sæti og Breiðablik í því þriðja en nýliðar Fjölnis og Víkings fara hins vegar beint niður samkvæmt þessari árlegu spá. Það hefur vanalega ekki boðað gott fyrir Vesturbæjarliðið að fá á sig titilpressuna en KR-ingar hafa aðeins unnið titilinn í þremur af þrettán skiptum og síðustu þrem- ur titlaspám félagsins (2004, 2010 og 2012) þá náði liðið ekki einu af þremur sætunum í deildinni. Til hliðar má sjá yfirlit yfir gengi KR í sínum titlaspám. Það hefur reyndar gengið illa hjá meistaraefnum síðustu ára að landa titlinum en það eru liðin fimm ár síðan fyrirliðar, þjálf- arar og forráðamenn spáðu rétt um Íslandsmeistara (FH 2009). Liðið sem hefur endað í öðru sæti í spánni hefur aftur á móti unnið titilinn síðustu þrjú ár. - óój KR-liðinu spáð titlinum í fj órtánda sinn – ekki inni á topp þremur í síðustu þremur titlaspám Stigin í spánni: 1. KR 401 stig, 2. FH 389 stig, 3. Breiðablik 357, 4. Stjarnan 321, 5. Valur 283, 6. ÍBV 230, 7. Keflavík 172, 8. Fylkir 169, 9. Fram 155, 10. Þór 146, 11. Víkingur 105, 12. Fjölnir 80. 3 Rétt 23% 10 vitlaus 77% FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.