Fréttablaðið - 13.05.2014, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGÚt að hlaupa ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Bryndís Hauksdóttir, s. 5125434, bryndis@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
„Ég fann mun um leið og ég fór að
nota Boost-skóna,“ segir Helen Ólafs-
dóttir, sem er í ólympíuhópi Frjáls-
íþróttasambands Íslands og hleyp-
ur hátt í 70 kílómetra á viku. „Ég á
allar týpurnar af Boost-skónum. Ég
nota Supernova Glide í lengri hlaup-
um, Energy Boost í hraðari hlaup
og adiZero í keppni,“ segir Helen.
Áður notaði hún ýmsar tegundir af
hlaupa skóm en eftir að hún prófaði
Boost-skóna var ekki aftur snúið, sér-
staklega eftir að hún keppti í fyrsta
sinn í maraþoni á þeim. „Ég fann
ótrúlegan mun á endurheimt líkam-
ans sem var í ótrúlega góðu standi
eftir hlaupið. Vöðvar, sinar, hné og
mjaðmir voru miklu betri en ég átti
að venjast áður,“ segir Helen. Hún var
valin langhlaupari ársins 2013 og átti
besta tíma kvenna í hálfu og heilu
maraþoni í fyrra.
„Ég mæli óhikað með þessum skóm
við mína félaga.“
Líkaminn aldrei í betra standi
Boost-efnið er algjör bylting í hlaupa-skóm,“ segir Bjarki Magnúsarson, markaðsstjóri adidas á Íslandi, um
glænýja tækni sem adidas hefur þróað í
samvinnu við BASF. „Allir hlaupaskór und-
anfarna áratugi hafa verið með sóla sem er
að mestum hluta búinn til úr efni sem kall-
ast EVA,“ segir Bjarki og bendir á að EVA
hafi marga galla. „Til dæmis verður það
hart í kulda en mjúkt í hita. Þá þjappast
efnið smám saman saman með tímanum
og missir þannig eiginleika sína. Boost er
hins vegar alltaf eins,“ útskýrir hann.
Boost er afrakstur mikillar þróunar-
vinnu en adidas lagði upp með að hanna
efni sem myndi sameina mýkt og viðbragð.
„Þeir vildu eins mikla mýkt og mögulegt
væri. Vandamálið við mjúka skó er hins
vegar að þeir draga úr orku. Það tekur
meiri orku að stíga upp af þeim, líkt og að
hlaupa í sandi eða stíga upp af mjög mjúk-
um sófa. Því vildu þeir einnig hámarka
viðbragð efnisins,“ útskýrir Bjarki. Hann
bendir á að ekki sé nóg að nota harð-
ari EVA-blöndu þar sem það minnki
dempunina og geri skóinn harðari
og óþægilegri. Niðurstaðan
var því að hanna nýtt efni
í sólana og úr varð Boost.
„Efnið er samsett úr
mörgum litlum kúlum
af TPU. Hver kúla er
lítil og hörð í upphafi
en þegar hún er hituð
og lofti blásið í hana
fær hún þá eiginleika
að hún er mjúk við-
komu en er líka eins og
skopparabolti. Þegar
fjöldi slíkra uppblás-
inna kúla er límd-
ur saman verður til
Boost-plata sem
sólar eru skorn-
ir úr.“
Ól í k t E VA
heldu r Boost
eiginleikum
sínum óháð ytri að-
stæðum. „Boost er alveg eins
hvort sem er í heitu eða köldu veðri.
Þá endist það von úr viti. Meðan sólar úr
EVA endast 1.000 til 1.500 kílómetra eru
Boost-skórnir í lagi allt þar til efra byrð-
ið eða sólinn slitnar,“ segir Bjarki og bætir
við að skór með sóla úr Boost-efni séu án
efa framtíðin.
Fyrsti skórinn úr hinu nýja efni, adidas
Energy Boost, var kynntur til leiks á síðasta
ári en síðan hafa bæst við tvær týpur til
viðbótar, Supernova Glide og keppnisskór-
inn adiZero adios Boost. „Reynslan hefur
verið afar jákvæð. Ég hef leitað upplýsinga
víða og aðeins fundið jákvæðar umsagn-
ir bæði um efnið og skóna,“ segir Bjarki
en stærstu vandræðin á síðasta ári
voru þau að allir skórnir seldust
upp hér á landi. „Hlauparar
sem við þekkjum eru afar
ánægðir og tala um
að þeir hafi meiri
orku og séu fljót-
ari að jafna sig
eftir löng hlaup
e n á ð u r.
Þá hef ég
heyrt sögur
frá fólki sem
alltaf fékk bein-
himnubólgu við
hlaup en er nú
laust við hana,“
segir Bjarki.
Boost-
skórnir frá
adidas
fást í Úti-
l í f i, adi-
das Con-
cept Store
Kringl-
unni,
M ú s í k &
Sport, Skóbúð Sel-
foss, Axel Ó og Ozone.
Nánari upplýsingar má
nálgast á www.adidas.is.
Frábær reynsla af Boost-tækninni
Íþróttavöruframleiðandinn adidas framleiðir hlaupaskó með sóla úr byltingarkenndu nýju efni sem kallast Boost. Efnið sameinar
mýkt og viðbragð og heldur eiginleikum sínum óháð tíma, notkun og hitastigi. Boost-efnið er framtíðin í hlaupaskóm.
„Reynslan hefur verið afar jákvæð. Ég hef leitað upplýsinga víða og aðeins fundið jákvæðar
umsagnir bæði um efnið og skóna,“ segir Bjarki. MYND/GVA
adi-
Zero
adios
Boost.
Léttur
keppnis-
hlaupaskór
með þynnri 90
prósenta Boost-
sóla og léttasta
efri hluta sem er í
boði. Sigurvegarar
í vel flestum stórum
maraþonum eru í
slíkum skóm.
Super-
nova Glide
6 Boost.
Frábær skór
varð enn betri
þegar Glide fékk
Boost. Runner‘s
World-tímaritið veitti
þessum skó Editor‘s
Choice-verðlaunin fyrir
vor/sumar 2014. Supernova
Glide er líkari hefðbundnum
hlaupaskóm og er ódýrari en
Energy Boost.
Energy
Boost. 80%
Boost í sólanum
og techfit í efri hluta.
Energy Boost var fyrsti
skórinn með Boost-tækninni
og er enn til í aðeins nýrri
útgáfu.
Ármann Eydal Albertsson fór að æfa
hlaup af fullum krafti á ný fyrir nokkrum
árum. Hann hefur náð góðum árangri
og sigraði til að mynda í hálfmaraþoni í
haustmaraþoni félags maraþonhlaup-
ara 2013. „Ég hafði alltaf hlaupið á skóm
með sóla úr efninu EVA. Þegar mér var
boðið að fara yfir í Boost-skóna frá adi-
das var ég rosalega stressaður en um leið
og ég hljóp fyrsta túrinn varð ég rosalega
hrifinn,“ segir Ármann. Hann notar adi-
das Energy Boost í lengri hlaup og síðan
léttu adiZero-skóna í keppni. „Þetta eru
dásamlegir skór. Maður fær ofsalega mýkt
úr þeim en samt sem áður veitir Boost-
efnið manni kraft og fjöðrun. Þá er mik-
ill kostur hvað skórnir eru léttir og góðir,“
segir hann.
Ármann notar innanfótarstyrkingu en
innleggið hefur oft verið til vandræða í
hlaupaskóm. „En ekki í Boost- skónum,
innleggin virðast skorðast mjög vel í
þeim.“
Dásamlegir skór
Boost er alveg eins
hvort sem er í heitu eða
köldu veðri. Þá endist það von
úr viti. Meðan sólar úr EVA
endast 1.000 til 1.500 kílómetra
eru Boost-skórnir í lagi allt þar
til efra byrðið eða sólinn slitnar.