Fréttablaðið - 13.05.2014, Side 26
KYNNING − AUGLÝSINGÚt að hlaupa ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 20146
Ágúst Kvaran telst seint til hefðbundinna langhlaup-ara. Hann hóf að stunda
hlaup um fertugt og hefur í aldar-
fjórðung hlaupið í öllum tegund-
um hlaupa hérlendis en einnig tekið
þátt í nokkrum spennandi hlaup-
um erlendis. Árið 2009 tók hann þátt
í eyðimerkurhlaupi í Sahara-eyði-
mörkinni og í fyrra hljóp hann fjalla-
hlaup í norðurhluta Grikklands. „Ég
hef hlaupið mörg skemmtileg lang-
hlaup um ævina en hlaupið í Sahara
hlýtur að teljast með þeim erfiðari og
skemmtilegri sem ég hef tekið þátt í.
Hlaupið er auglýst sem það erfiðasta í
heimi en um 800 manns tóku þátt og
stóð undirbúningur minn yfir í hálft
ár.“ Hlaupið tók fimm daga, sam-
tals 202 km, og endaði Ágúst í 140.
sæti. Þátttakendur þurftu að hlaupa
með allar vistir sjálfir utan vatns,
þar með talinn mat, eldunarbún-
að og svefnpoka. „Ein leiðin er allt-
af stöðluð maraþonvegalengd og svo
ein svokölluð „ultra“ hlaupaleið sem
í okkar tilfelli var 91 kílómetri og sú
lengsta í sögu keppninnar. Í það heila
var þetta hlaup rosaleg upplifun og
meiriháttar gaman að hafa lokið því.
Hitinn var mikill þessa daga en síð-
asta daginn vorum við að hlaupa í 40
stiga hita.“
Taldi ferilinn búinn
Árið 2012 fótbrotnaði Ágúst og reif
báða liðþófa. „Ég datt úr öllum
hlaupum í meira en eitt ár og leist satt
að segja ekkert á blikuna. Á þessum
tímapunkti taldi ég hlaupaferil minn
á enda en með mikilli vinnu kom ég
mér í gang aftur, ekki síst fyrir tilstilli
stöðugra styrktaræfinga.“
Ári síðar hljóp Ágúst tvö skemmti-
leg ofurhlaup. Það fyrra var Hengils-
hlaupið sem er árlegt fjallahlaup um
Hengilssvæðið. Það hlaup var und-
irbúningur fyrir annað fjallahlaup
í norðurhluta Grikklands sem hann
hljóp síðar um haustið. „Hengils-
hlaupið var 81 kílómetri þar sem
hlaupið er upp á hæstu tinda, upp
Hveradalinn og komið við á svæði
Orkuveitunnar. Hlaupið reyndist
mjög góð æfing fyrir Grikklandsferð-
ina því undirlagið er svipað í þessum
tveimur hlaupum.“ Ágúst hljóp á 12
klst. og 48 mínútum og lenti í þriðja
sæti. „Ég var virkilega ánægður með
árangurinn en fyrst og fremst var
þetta frábært hlaup í ótrúlega fallegu
veðri. Sannarlega með betri hlaup-
um sem ég hef tekið þátt í.“
Síðasta haust var stefnan tekin
til Grikklands þar sem hann hljóp
fjallahlaup í óbyggðum í norður-
hluta landsins. Um var að ræða 164
kílómetra hlaup í mikilli hækkun við
afar erfiðar aðstæður að sögn Ágústs.
„Raunar kom það mér á óvart hversu
erfitt hlaupið var. Ég hafði séð marg-
ar myndir frá þessum hlaupi en það
er greinilegt að ljósmyndarar hætta
sér ekki langt frá drykkjarstöðvum.
Hlaupaleiðin var mjög grýtt og brött
á köflum. Við vorum látin vita að
hugsanlega gætum við rekist á birni
og úlfa á leiðinni og hlupum með
flautur til öryggis.“ Ágúst kláraði
hlaupið á 38 og hálfri klukkustund og
var nokkrum klukkustundum undir
tímamörkum keppninnar.
Stundar fjallahlaupin
Ágúst, sem starfar sem prófessor í
efnafræði við Háskóla Íslands, hóf
að hlaupa tæplega fertugur að aldri.
„Ég hafði ekki stundað neina hreyf-
ingu af viti fyrir þann tíma, var hálf-
gerð fitubolla og reykti pípu. Á þess-
um tímapunkti fann ég bara að
ég þyrfti að gera eitthvað í mínum
málum líkamlega og því reimaði ég
á mig hlaupa skóna.“ Hann verður
62 ára síðar á árinu og segist hvergi
hættur. „Þessi árin stunda ég frek-
ar fjallahlaupin enda fara þau betur
með hnén á mér. Í góðu veðri er
hreinn unaður að hlaupa fjallahlaup
hér á landi og í raun erfitt að lýsa því.
Þar er maður sjaldnast að keppa við
aðra heldur fyrst og fremst að reyna
að sigra sjálfan sig.“
Markmiðið er að
sigra sjálfan sig
Ágúst Kvaran var tæplega fertugur þegar hann hóf að hlaupa. Um aldar-
fjórðungi síðar hleypur hann á fjöllum og í ofurhlaupum erlendis. Undanfarin
ár hefur hann tekið þátt í eyðimerkurhlaupi í Sahara-eyðimörkinni og
fjallahlaupi í norðurhluta Grikklands. Hann er hvergi nærri hættur.
Ágúst Kvaran, til vinstri, í Sahara-eyðimörkinni þar sem hann hljóp árið 2009. MYND/EINKASAFNI
Hlaupið í Sahara-eyðimörkinni. Hitinn fór stundum í 40 gráður. MYND/EINKASAFNI
Ágúst ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Þor-
steinsdóttur. MYND/EINKASAFNI
Styrktarhlaup líffæraþega fer fram í Fossvogsdalnum þriðjudag-
inn 20. maí og hefst klukkan 19. Allur ágóði af hlaupinu rennur í
ferðasjóð nokkurra íslenskra líffæraþega sem stefna á að taka þátt
í heimsleikum líffæraþega í Argentínu haustið 2015. Sams konar
hlaup var haldið í fyrsta sinn í fyrra og tókst svo vel til að það var
valið „Besta götuhlaupið 2013“ á hlaup.is. Forsprakkinn í fyrra var
hjartaþeginn Kjartan Birgisson en þá var safnað fyrir keppendur
sem hugðust taka þátt í heimsleikum líffæraþega í Durban í Suð-
ur-Afríku sama ár.
Í hlaupinu í ár verður hlaupin sama leið og í Fossvogshlaupi
Víkings. Ræst verður við Víkina, Traðarlandi 1. Boðið verður upp
á 5 og 10 kílómetra hlaup. 5 kílómetra hlaupið er einn hringur um
dalinn en 10 kílómetra hlaupið tveir. Vegalengdirnar eru mældar
og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Að hlaupinu standa Hjartaheill og heilsutorg.is, en þar fer
skráning í hlaupið jafnframt fram. Þeir sem vilja skrá sig á staðn-
um geta gert það frá 17.30 til 18.45 þann 20. maí en keppnisnúmer
verða afhent á sama stað frá klukkan 17.30.
Þátttökugjald er 2.000 krónur fyrir 22 ára og eldri en 1.000 krón-
ur fyrir 21 árs og yngri. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin
í kven- og karlaflokki í báðum vegalengdum. Þá verður fjöldi út-
dráttarverðlauna í boði. Að hlaupi loknu verður boðið upp á
hressingu.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til ferðalanganna sem taka þátt í
heimsleikunum árið 2015. Nánari upplýsingar er að finna á
hlaup.is og helsutorg.is.
Besta götuhlaupið í
fyrra endurtekið
Allur ágóði rennur til ferðalanganna sem taka þátt í heimsleikunum árið 2015.
100% lífrænt
Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa
eða 6 rauðrófur.
1 skot 30 mín. fyrir æfingar
blandað í 150 ml af vatni.
Endist 6 tíma í líkamanum.
Bætt blóðflæði 30 mín.
eftir inntöku.
BEETELITE örvar Nitric Oxide framleiðslu strax.
Bættir árangur íþróttafólks allt að 16-20%
Betra blóðflæði, 30% æðaútvíkkun, 30% meiri súrefnisupptaka,
réttur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og
úthald, hraðar bata eftir æfingar.
Meira úthald
Eitt skot = 6 rauðrófuritt t r r f r
WE BEET THE COMPETITION I I
U
m
b
o
ð
: w
w
w
.v
it
ex
.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum og World Class. Til í tveimur bragðtegundum