Fréttablaðið - 13.05.2014, Síða 40
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Söru
McMahon
„Þetta voru um 700 hamborgarar sem við seld-
um. Við ætluðum að vera með opið til klukkan 22
en allt kjötið var búið um klukkan átta svo þetta
gekk alveg vonum framar,“ segir Guðmundur
Kristján Gunnarsson, einn af forsvarsmönnum
Hamborgarabúllu Tómasar sem var opnuð í Berl-
ín á föstudaginn. Fullt var út úr dyrum á opnun-
arkvöldinu en meðfylgjandi myndir tók Baldur
Kristjánsson ljósmyndari. kristjana@frettabladid.is
Allt kjötið kláraðist í Berlín
Hamborgarabúlla Tómasar var opnuð með pompi og prakt í Berlín um helgina. Kjötið kláraðist fyrir lokun
en alls voru um 700 hamborgarar steiktir. Ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson tók myndir á opnunardaginn.
HVERNIG SMAKKAST? Tómas Tómasson, sem Búllan er kennd við, fær að smakka
fyrsta Berlínarborgarann.
ALLT BÚIÐ Alls hurfu 700 hamborgarar
ofan í svanga gesti á föstudaginn.
SÖGUFRÆGT HÚSNÆÐI Að sögn Guðmundar er húsnæðið upprunalegt en inn-
réttingarnar eru frá 1880. MYNDIR/BALDUR KRISTJÁNSSON
BEÐIÐ EFTIR BORGURUM Starfsmenn Búllunnar höfðu í nógu að snúast á
opnunardeginum.
REYNSLUNNI MIÐLAÐ Tommi ræðir
við sitt fólk í Berlín.
BAD NEIGHBOURS 5:50, 8, 10:10
LÁSI LÖGGUBÍLL 6
THE OTHER WOMEN 8, 10:20
SPIDERMAN 2 3D 7, 10
RIO 2D 5
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
“IT COULD BE HIS BEST FILM SO FAR” -
THE GUARDIAN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Miðasala á:
BAD NEIGHBOURS
LÁSI LÖGGUBÍLL
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
HARRÝ OG HEIMIR
GRAND BUDAPEST HOTEL
KL. 8 - 10.10
KL. 5.40
KL. 10.25
KL. 6 - 9
KL. 6 - 8
KL. 5.45 - 10.15
VONARSTRÆTI
BAD NEIGHBOURS
BAD NEIGHBOURS LÚXUS
LÁSI LÖGGUBÍLL
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
RIO 2 2D ÍSL. TAL
HARRÝ OG HEIMIR
KL. 8 (FORSÝNING)
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 3.30 - 5.40 - 8 - 10.10
KL. 3.30
KL. 5.30 - 8 - 10.25
KL. 5 - 8
KL. 3.30
KL. 3.30 - 6
-T.V.,
BÍÓVEFURINN.IS
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
LOS ANGELES TIMESCHICAGO SUN TIMES
THE
BATTLE FOR
THE STREET
BEGINS.
SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS
Rihanna er ekki par sátt við
Drake þessa dagana en sá síðar-
nefndi sagði söngkonuna vera
einum of þurfandi. „Hún er mjög
ástfangin af honum og vill að
hlutirnir gangi upp á milli þeirra
en hún er ekkert lamb að leika
sér við þegar það kemur að ástar-
málunum og Drake fær að finna
fyrir því,“ sagði heimildarmaður
söngkonunnar við slúðurmiðlana
ytra. Alveg frá því að rappar-
inn lét ummælin falla hefur Ri-
hanna neitað að hafa samband við
hann. Þannig vonast hún til þess
að hann sjái að sér og biðji hana
afsökunar.
Rihanna þykir
of þurfandi
EKKI SÁTT Rihanna er fúl út í Drake en
honum finnst hún einum of þurfandi
þessa dagana.
UM páskana ætluðum við systkinin, makar
og eitt barn að heimsækja mömmu okkar og
stjúpa í Vestmannaeyjum. Miðar með Herj-
ólfi voru bókaðir langt fram í tímann svo
öruggt væri að fólk og farartæki kæmust
öll með í sömu ferð. Að því loknu var aðeins
hægt að bíða og vona það besta; skyldi
skipið sigla frá Landeyjahöfn eins og
áætlað var?
HEIMSÓKNUM mínum til Eyja
fækkar til muna yfir vetrartím-
ann því það virðist varla taka
því að veltast um í óðum hafsjó í
þrjár klukkustundir frá Þorláks-
höfn fyrir eina, stutta helgi. Sér-
staklega ekki þegar heimsóknin
litast af sjóriðu, lystarleysi og
flökurleika. Bara ef Landeyja-
höfn héldist opin allt árið um
kring! Tilhugsunin um að
veltast um í slæmum sjó í ekki
nema hálftíma er töluvert þol-
anlegri. En um leið og veður
gerast válynd, þá lokast Land-
eyjahöfn. Eitt árið lét ég mig
hafa það að sigla frá Þorláks-
höfn í átta metra ölduhæð (nú
fussa líklega vanir sjómenn yfir eymingja-
skapnum) og maginn á mér hentist upp og
niður og til hægri og vinstri í takt við skips-
skrokkinn.
AÐGENGI Vestmannaeyinga, og aðstand-
enda þeirra uppi á landi, að þjóð-„vegin-
um“ til og frá Eyjum er í besta falli stop-
ult. Ferðir geta fallið niður vegna veðurs,
stundum siglir maður frá Landeyjahöfn
en óvænt heim til Þorlákshafnar og bíllinn
situr eftir á bílaplani austur af Hvolsvelli.
Flugsamgöngur eru þokkalegar en kosta
auðvitað sitt.
UMRÆÐUR um jarðgöng hugnast mér
ekki, svona prívat og persónulega. Mér
þykir tilhugsunin um að aka í gegnum jarð-
göng sem liggja um svo virk gossvæði sem
Eyjar og Suðurland eru ekki skemmtileg.
En ég hef heldur aldrei talist áhættusækin.
EN snúum okkur aftur að byrjuninni,
páskaferðinni til Vestmannaeyja. Hún var
auðvitað aldrei farin því Herjólfi var siglt
frá Þorlákshöfn í aftakaveðri og við systk-
inin, makar og barn urðum eftir uppi á
landi.
Skyldi skipið sigla?