Fréttablaðið - 10.06.2014, Page 48

Fréttablaðið - 10.06.2014, Page 48
10. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Sex daga stríðið var stríð milli Ísraels annars vegar og Egyptalands, Jórdaníu og Sýrlands hins vegar. Stríðið var háð 5.-10. júní árið 1967. Írak, Sádi-Arabía, Súdan, Túnis, Marokkó og Alsír lögðu einnig til hersveitir til stuðnings arabalöndunum. Í maí árið 1967 rak Nasser Egypta- landsforseti friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna frá Sínaí-skaga. Lðið hafði verið þar frá árinu 1957 í kjölfar innrásar ísraelskra, breskra og franskra hersveita í Súez-deilunni. Egyptaland kom fyrir 1.000 skriðdrekum og um það bil 100.000 her- mönnum við landamæri Ísraels og lokaði Tíran-sundi öllum skipum undir fána Ísraels eða fluttu hergögn eða mikilvæg efni til hergagnaframleiðslu. Egyptar nutu mikils stuðnings frá öðrum arabalöndum. Þann 5. júní gerði Ísrael árás á flugher Egyptalands. Jórdanía hafði undirritað varnarsamning við Egyptaland 30. maí og gerði því árás á Vestur-Jerúsalem og Netanya. Í stríðslok hafði Ísrael náð yfirráðum yfir Sínaí-skaga, Gasasvæðinu, Vesturbakka Jórdanár, Austur-Jerúsalem og Gólanhæðum. Talið er að í liðum arabalandanna hafi um 21 þúsund manns farist og um 45 þúsund særst en um 800 Ísraelsmenn létu lífið í átökunum og 2.563 særðust. ÞETTA GERÐIST 10. JÚNÍ 1967 Tugir létust í sex daga stríðinu Tæpu hálfu ári eftir stofnun Golfklúbbs Reykjavíkur fyrir 80 árum var fyrsti golfvöllurinn á Íslandi opnaður í Laug- ardal. „Golfklúbburinn, sem hét fyrst Golf- klúbbur Íslands, var stofnaður 14. des- ember 1934. Nafninu var svo breytt í Golfklúbb Reykjavíkur ári seinna þegar golfklúbbur var stofnaður á Akureyri,“ segir Garðar Eyland, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. Það voru Íslendingar sem verið höfðu við nám erlendis sem komu með írþótt- ina heim og stofnuðu fyrsta golfklúbb- inn, að sögn Garðars. „Þá var auðvitað engin aðstaða til golf- iðkunar en eins og gengur fóru menn að reyna að fá land undir völl. Þetta byrj- aði allt í Laugardalnum þar sem íþrótta- mannvirkin eru núna. Völlurinn þar var sex holur og var vígður 12. maí 1935.“ Á vef golfklúbbsins segir að fyrsta golfmótið hafi verið haldið sumarið 1935. Það hafi þótt stórviðburður í borg- arlífinu og margir héldu að um væri að ræða eitthvert stundargaman hjá heldra fólki sem fljótt félli í gleymsku. Nokkrum árum síðar var völlurinn í Laugardalnum lagður niður og nýr völl- ur, sem var níu holur, tekinn í notkun í Öskjuhlíð. Urðu kylfingar í fyrstu að deila svæðinu, sem var í landi Leyni- mýrar, með beljum Reykvíkinga. Á vefn- um segir að Ingiríður, krónprinsessa Danmerkur og Íslands, hafi slegið fyrsta höggið en hún var mætt til að vera við vígsluna. Hún var ð verndari klúbbsins. Borgin tók golfvöllinn í Öskuhlíð loks undir byggingar og varð klúbburinn að flytja í óræktarland við Grafarholt sem með eljusemi tókst að breyta í góðan og fallegan völl. „Það var byrjað að leika á vellinum 1963 á aðeins nokkrum holum en nú er þar 18 holu völlur. Þrjátíu árum síðar var ráðist í gerð nýs 18 holu vallar við Korpúlfsstaði,“ greinir Garðar frá. Sjálfur hefur hann hefur stundað golfíþróttina frá því um 1980. „Félagar mínir voru í þessu og ég prófaði og fékk þá bakteríuna. Þeir sem byrja fá flestir bakteríuna og segjast þá sjá eftir að hafa ekki byrjað miklu fyrr.“ Stofnendur klúbbsins voru 57, þar af sjö konur, en félagar eru nú um 2.900. „Í gegnum árin hafa karlmenn verið fjöl- mennari í klúbbnum en síðari ár hefur konum fjölgað talsvert. Má segja að þær séu nú um 30 prósent félaganna.“ Að sögn Garðars var vefurinn golf- myndir.is settur upp í tilefni stórafmæl- isins. „Þar er saga klúbbsins rakin í máli og myndum. Við erum nýbúin að vera með mót fyrir félagsmenn og þann 14. júní verður haldið mót fyrir velunnara og gesti.“ ibs@frettabladid.is Deildu svæði með beljum borgarbúa Golfk lúbbur Reykjavíkur fagnar 80 ára afmæli í ár. Fyrsta mótið stórviðburður í borgar- lífi nu. Margir héldu fyrst að um væri að ræða stundargaman hjá heldra fólki sem félli fl jótt í gleymsku. Félagar í klúbbnum eru nú um 2.900. MEÐ GOLFBAKTERÍUNA Garðar Eyland, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, segist hafa verið orðinn alltof gamall þegar hann byrjaði að stunda golf. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MERKISATBURÐIR 1190 Þriðja krossferðin: Friðrik 1. keisari drukknar í ánni Salef á leið með her sinn til Jerúsalem. 1596 Willem Barents og Jacob van Heemskerk finna Bjarnarey. 1898 Bandarískir landgönguliðar ganga í land á Kúbu. 1928 Menja, togari smíðaður í Hamborg árið 1920, sekkur úti á Hala án skýringa. Slysið síðar nefnt Menjuslysið. 1947 Saab framleiðir fyrsta bílinn sinn. 1977 Apple fyrirtækið setur fyrstu Apple II-tölvuna í sölu. 1993 Steinboginn yfir Ófærufoss í Eldgjá, sem lengi hefur gert garðinn frægan, er fallinn þegar ferðamannahópur kemur að honum. Ástkær sambýliskona mín, móðir, systir og amma, INGA HULD HÁKONARDÓTTIR blaðamaður og rithöfundur, lést þriðjudaginn 27. maí. Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. júní kl 15.00. Aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir,tengdafaðir,afi og langafi, GUÐMUNDUR SÓLBJÖRN GÍSLASON frá Hellissandi, lést á Sólvangi Hafnarfirði mánudaginn 2. júní. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Birna Axelsdóttir Fjóla Guðmundsdóttir Kristinn Rafn Hjaltason Hafdís Guðmundsdóttir Kristín Alda Guðmundsdóttir Kjartan Skaftason Lilja Guðmundsdóttir Þorvarður Helgason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU Ó. GUÐLAUGSDÓTTUR Skúlagötu 40, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis Grundar. Arnbjörg Guðmundsdóttir Ólafur J. Sigurðsson Elín Guðmundsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir Óli Valur Guðmundsson Jan Ola Hjelte barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, SIGURÐUR ÖRN ÚLFARSSON lést mánudaginn 2. júní. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 12. júní kl. 13.00. Hildur Steindórsdóttir Hermann Örn Sigurðarson Drífa Hrönn Jónsdóttir Guðrún Hulda Sigurðardóttir Heiðrún Hulda Guðmundsdóttir Björn Matthíasson Guðrún Sólveig Steindór Pétursson Sólborg Gígja Guðmundsdóttir Kjartan Þorvaldsson og aðrir ástvinir. Elsku hjartans maðurinn minn, pabbi okkar og afi, sonur, bróðir, og frændi, GUÐGEIR HALLUR HEIMISSON Byggðavegi 143, Akureyri, sem lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu að kvöldi sjómannadagsins 1. júní verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 12. júní kl. 13.30. Innilegar þakkir til allra þeirra sem hafa stutt okkur í veikindum hans. Sérstakar þakkir fá hjúkrunarfræðingar Heimahlynningar á Akureyri. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Sigríður Benjamínsdóttir Þröstur Guðgeirsson Rósa Dröfn Guðgeirsdóttir Benjamín Ingi Guðgeirsson Sigríður Karen, Guðgeir Rúnar og Fenrir Ingi Heimir Björn Ingimarsson - Stefanía Rósa Sigurjónsdóttir Sigþór, Lára, Hafþór og fjölskyldur Anna, Ármann, Gréta, Eggert, Sævar og fjölskyldur Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta önnumst við alla þætti þjónustunnar Þegar andlát ber að höndum Með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Reynsla – Umhyggja – Traust Elskuleg móðir okkar, amma, dóttir, systir og mágkona, ELÍSABET MARKÚSDÓTTIR Sævangi 4, lést föstudaginn 30. maí á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 13. júní kl. 15.00. Viktoría Guðmundsdóttir Fannar Freyr Guðmundsson Markús Sigurgeir Kristjánsson Bára Magnúsdóttir Sigurlaug Markúsdóttir Hilmar Frímannsson Sigurður Gunnar Markússon Valborg Elísabet Jóhannesdóttir Reynir Smári Markússon Bergþóra Pálína Björnsdóttir Kristín Bára Gautsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.