Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 2
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 NÁTTÚRA Aldrei hefur sést eins mikið af smáfiðrildinu birkikembu frá því að það fannst fyrst hér á landi árið 2005. Fiðrildið veldur miklum skaða á birki. Hlýju og góðu vori er um að kenna. Minna er hægt að fullyrða um viðgang geitunga, en þeir gerðu þegar vart við sig í maí. Frá þessu greinir Erling Ólafs- son, skordýrafræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands (NÍ), spurður um hvort merkja megi áhrif óvenjulega hagstæðs tíðarfars á smádýralífið hér á landi. „Það er helst að ég búist við ljót- um ummerkjum á birki í görðum okkar nú þegar líður á mánuðinn. Það hefur nefnilega aldrei sést eins mikið af þessu smáfiðrildi og þetta vorið, þegar það var að verpa á birkibrumin. Lirfur birkikemb- unnar eru nú á fullu gasi við að éta innan úr laufum birkitrjánna svo eftir standa sölnaðir brúnir belgir á greinum,“ segir Erling. Hann segir að þrátt fyrir miklar skemmdir þar sem fiðrildið nær sér helst á strik muni flest birkitrén ná sér þegar líður á sumarið. Birkikembu varð fyrst vart í Hveragerði árið 2005. Í fyrravor var ljóst orðið að fiðrildinu hafði vaxið mjög ásmegin og fannst víða í Reykjavík og suður í Hafnarfjörð. Auk þess var það mætt til leiks í trjárækt Skógræktar ríkisins að Mógilsá í Kollafirði og í görðum á Selfossi. Í vor var sagt frá því í fréttum að mikið sást af fiðrildinu í Fossvogi. Þeir sem búa í austur- hluta Reykjavíkur, og reyndar mun víðar í borginni, hafa orðið varir við bjölluna asparglyttu, en eins og birkikemban getur hún valdið miklum skaða á trjám. Það fer ekk- ert á milli mála hvar hún fer um, en Erling segir að sums staðar mori allt af þessari annars afar fallegu laufbjöllu. Hún er kúpt, skelin er hágljáandi og slær á hana breyti- legum litum, grænum, blágrænum, fjólubláum, allt eftir því hvernig ljósið fellur á, eins og útskýrt er á pödduvef NÍ. Flestir líta með meiri áhyggjum til þess að hlýtt vor geti orðið til þess að geitungar nái sér verulega á strik, en þeir eru óvíða aufúsu- gestir. „Ég hef lært að spá ekki um gengi geitunga. Þeir geta verið ólík- indatól sem taka stefnu á annan veg en maður spáir,“ segir Erling. svavar@frettabladid.is Aldrei sést meira af höfuðóvini birkisins Smáfiðrildið birkikemba hefur aldrei verið eins áberandi og í vor. Birki getur farið mjög illa þar sem hún er fjölliðuð. Allt morar í hverfum í austurhluta Reykjavíkur af asparglyttu, stórtækri laufætu. Báðar tegundirnar námu land fyrir um áratug. ASPARGLYTTA Nam land árið 2005 og fjölgaði stórum árið 2007 og olli miklum skemmdum á trjágróðri. MYND/ERLING Trjárækt og húsagarðar með birki eru kjör- lendi birkikembu. Fiðrildin eru á ferð á vorin en þau skríða úr púpum í fyrrihluta apríl og hverfa með öllu fyrir miðjan maí. Flugtími er því mjög skammur. Á þessum tíma verpa þau á brum birkis og eggin klekjast þegar tré fara að laufgast. Lirfurnar smjúga þá inn í laufblöðin, koma sér þar fyrir og éta inn- vefi þeirra. Eftir því sem lirfurnar dafna taka blöðin að sölna og á endanum standa ein- ungis eftir ysta lag efra- og neðraborðs blaðs sem blæs út eins og brúnn belgur. Fullvaxnar lirfur skríða út úr belgnum og hverfa niður í svörð þar sem þær púpa sig og bíða næsta vors á því stigi. Birkikemba liggur í vetrardvala á púpustigi. Heimild: www.ni.is/poddur/nattura ➜ Milt vor hentar birkikembu fullkomlega BIRKIKEMBA Hlýtt vor veldur því að kjöraðstæður eru fyrir birkikembu. EFNAHAGSMÁL Hundraða milljarða króna eignir Íbúðalánasjóðs og þar með skattgreiðenda gætu verið í uppnámi verði verðtryggingin dæmd ólögmæt. Í dag verður flutt mál fyrir EFTA-dómstólnum þar sem tek- ist verður á um hvort verðtrygg- ing gangi í berhögg við tilskipanir Evrópusambandsins. Meðal spurninga sem lagðar voru fyrir dómstólinn er hvort verðtryggð lán séu í samræmi við tilskipun ESB um neytendalán, jafnvel þótt verðtryggingin styðj- ist við sett lög Alþingis og hvort verðtryggingin sé í samræmi við tilskipun ESB um óréttmæta skil- mála í neytendasamningum. Það væri algjör undantekning og í raun stórtíðindi ef íslenskir dóm- stólar myndu ekki dæma í sam- ræmi við ráðgefandi álit EFTA- dómstólsins í málinu. Stöð 2 óskaði eftir viðtali við full- trúa Seðlabankans um hvaða áhrif það hefði ef verðtryggingin yrði dæmd ólögmæt. Þau svör fengust að að svo stöddu gætu sérfræðingar bankans ekki veitt álit. - þþ Tekist á um lögmæti verðtryggingar lána fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxemborg: Eignir Íbúðalánasjóðs í hættu FYRIR DÓM Málið verður tekið fyrir hjá EFTA-dómstólnum í dag. Sveinbjörg, ertu svona fjölhæf? Já, ég er í sjöunda himni. Sveinbjörg Zophoníasdóttir varð um helgina Norðurlandameistari í sjöþraut yngri en 23 ára. Árangur hennar er annar besti árangur Íslendings frá upphafi. SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Lista Grind- víkinga hafa skrifað undir sam- starfssamning um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grinda- víkur. Flokkarnir stefna að því að endurráða núverandi bæjar- stjóra, Róbert Ragnarsson. Samkomulag er á milli flokk- anna um að starfa saman þvert á alla flokka í vinnu sinni fyrir Grindavíkurbæ. - sks Nýr meirihluti í Grindavík: Bæjarstjórinn endurráðinn MANNRÉTTINDAMÁL Þrír íslenskir ráðherrar sýndu stuðning sinn við alþjóðlega herferð gegn beitingu kynferðisofbeldis í stríðsátökum í verki í gær með því að rita nöfn sín á veggspjald í breska sendiráðinu í Reykjavík. Í gær hófst fjögurra daga ráðstefna í London sem markar hápunkt alþjóðlegrar herferðar bandarísku leikkonunnar Angelinu Jolie og Williams Hague, utanríkisráðherra Bretlands. Markmiðið er að binda enda á beitingu kynferðisofbeldis í stríði. „Það er lygi að nauðganir séu óumflýjanlegur hluti af stríðsátökum. Nauðgun er vopn sem beint er að saklausum borgurum og notað til að pynta og niðurlægja fólk, oft mjög ung börn. Við, sem alþjóðasam- félag, berum ábyrgð,“ sagði Angelina Jolie við opnun ráðstefnunnar í London í gær. - rkr Ráðherrar taka þátt í herferð gegn kynferðisofbeldi í stríði: Sýndu stuðninginn í verki KJARAMÁL Starfsgreinasamband- ið (SGS) gekk frá stofnanasamn- ingi við Veðurstofuna í gær. Þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar sem þessir aðilar gera sín í milli. Samningurinn tekur til þeirra sem starfa við mælagæslu, úrkomumælingar og skeytastöðv- ar vítt og breitt um landið. Starfsfólk hækkar í áföngum um allt að sjö launaflokka eftir menntun, starfsaldri og eðli starfs. Fyrstu launaflokkahækk- anirnar koma til framkvæmda um næstu mánaðamót. - jme Veðurstofan semur við SGS: Hækka um allt að sjö flokka LÖGREGLUMÁL Lögreglan fargaði sönnunargögnum tengdum morðinu á Karli Jónssyni sem átti sér stað á Egilsstöðum í maí í fyrra. Þetta kom fram við mál- flutning í Hæstarétti í gær. Friðrik Brynjar Friðriksson var sakfelldur fyrir morðið í Héraðsdómi Austurlands en málinu var áfrýjað til Hæstaréttar. Verjandi hans, Sveinn Andri Sveinsson, krefst sýknu yfir Friðriki en til vara að málinu verði vísað aftur heim í hérað. Mjög sjald- gæft er að morðmálum sé vísað aftur heim í hérað en Sveinn er bjartsýnn á að Hæstiréttur verði við kröf- unni. Tveir dómkvaddir matsmenn hafa gert alvarleg- ar athugasemdir við rannsókn lögreglunnar á málinu. Við málflutning í Hæstarétti í gær kom meðal ann- ars fram að lögreglumenn á Egilsstöðum hefðu haft afskipti af Friðriki Brynjari kvöldið sem Karl Jóns- son var myrtur. Þegar þeir höfðu fundið líkið síðar um nóttina og börðu að dyrum Friðriks hafi þeir borið kennsl á fötin sem hann hafði verið í fyrr um kvöldið og þeir gerðu ráð fyrir að hann hefði verið í þegar morðið var framið. Skipuðu lögreglumennirnir Frið- riki að fara aftur í fötin í stað þess að ganga frá þeim á fullnægjandi hátt sem sönnunargögnum í málinu. Við þetta gerir verjandi Friðriks athugasemdir og segir lögreglu ekki hafa staðið rétt að málum. Friðrik Brynjar neitar enn að hafa banað Karli Jónssyni en dómsuppkvaðning verður í næstu viku. - ssb Verjandi krefst þess að hinn dæmdi í Egilsstaðamorðmálinu verði sýknaður: Lögregla henti sönnunargögnum AFSKIPTI Lögreglumenn höfðu afskipti af Friðriki Brynjari Friðrikssyni áður en Karl Jónsson var myrtur það sama kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BORGARMÁL „Það er stefnan að kynna niðurstöðu viðræðna síðdeg- is,“ segir S. Björn Blöndal oddviti Bjartrar Fram- tíðar í Reykjavík. Um leið verður tilkynnt hverjir skipa æðstu embætti. Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata, er ánægður með þann mál- efnasamning sem kynntur verður. Þar sé að vinna víðtækar lýðræðis og stjórnsýsluumbætur. - jme Búið að semja í Reykjavík: Nýr meirihluti kynntur í dag HALLDÓR AUÐAR SVANSSON SPURNING DAGSINS 25% NÝTT afsláttur af öllum styrkleikum og pakkningastærðum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.