Fréttablaðið - 11.06.2014, Qupperneq 8
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
ÍRAK, AP Núrí al Maliki, forsætis-
ráðherra Íraks, lagði hart að þjóð-
þingi landsins að lýsa yfir neyðar-
ástandi, sem gæfi honum aukin
völd til að bregðast við innrás her-
skárra múslíma í borgina Mosul.
Uppreisnarmennirnir hafa náð
þessari næststærstu borg lands-
ins að mestu á sitt vald. Þeir lögðu
undir sig höfuðstöðvar héraðs-
stjórans í Niniveh, en Mosul er
höfuðborg þessa héraðs í norður-
hluta Íraks.
Þeir hafa farið um borgina,
vopn aðir byssum og veifandi
svörtum fánum, og hröktu bæði
hermenn og lögregluþjóna á brott.
Margir íbúar borgarinnar forðuðu
sér einnig hið snarasta.
Íbúarnir sögðu innrásarmenn-
ina vera liðsmenn samtakanna
Íslamskt ríki í Írak og Austurlönd-
um nær, en þau samtök náðu fyrr
á árinu á sitt vald annarri borg,
Fallujah, sem er í suðvesturhluta
landsins. Stjórnarhernum hefur
enn ekki tekist að ná borginni úr
höndum þeirra.
„Ástandið í borginni er algjör
ringulreið og enginn hjálpar
okkur,“ segir Umm Kamm, rík-
isstarfsmaður í Mosul sem býr
skammt frá höfuðstöðvum héraðs-
stjórans. Hún flúði borgina ásamt
fjölskyldu sinni í gærmorgun: „Við
erum hrædd. Það er engin lögregla
eða her í Mosul.“
Árangur uppreisnarmanna er
verulegt áfall fyrir stjórn al Mal-
ikis. Hann er nú í óða önn að reyna
að mynda nýja stjórn eftir að hafa
unnið sigur í þingkosningum í síð-
asta mánuði.
Sjálfur er Al Maliki sjía-músl-
ími og hefur einkum reitt sig á
stuðning sjía-múslíma á þingi, en
súnní-múslímar og Kúrdar hafa
sakað hann um að einoka völdin.
Sjálfstjórnarsvæði Kúrda nær
að hluta til inn í Niniveh-hérað,
og hafa leiðtogar Kúrda harðlega
gagnrýnt stjórn al Malikis fyrir
að hafa ekki viljað starfa með
Kúrdum að því að verja Mosul.
Það hefði getað komið í veg fyrir
innrásina.
gudsteinn@frettabladid.is
Herskáir íslamistar
ná Mosul á sitt vald
Næststærsta borg Íraks er í höndum herskárra íslamista, sem hrakið hafa stjórnar-
herinn og lögreglu burt úr borginni. Íbúar hafa einnig flúið borgina í stórum stíl.
Núrí al Maliki forsætisráðherra vill að þingið lýsi sem fyrst yfir neyðarástandi.
ALMENNINGUR FORÐAR SÉR Íbúar borgarinnar hafa margir hverjir haft sig á brott
eftir atburði gærdagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Staðið að grimmdarverkum í Sýrlandi
Samtökin Íslamskt ríki í Írak og Austurlöndum nær hafa haft tengsl við
al-Kaída og hafa tekið virkan þátt í átökum gegn stjórn Bashars al Ass-
ads forseta í nágrannalandinu Sýrlandi. Liðsmenn þeirra hafa staðið að
mörgum verstu grimmdarverkum stríðsins og fengu fljótlega aðra upp-
reisnarmenn í Sýrlandi upp á móti sér.
Leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al Baghdadi, hefur einnig bakað sér
óvild al-Kaída, sem vilja ekki lengur hafa samtökin innan sinna vébanda.
KJARAMÁL „Samkvæmt þeim tölum sem ég hef
tekið saman verða rúmlega 90 prósent allra leik-
skóladeilda á öllu landinu lokuð 19. júní, hafi samn-
ingar ekki tekist við leikskólakennara fyrir þann
tíma,“ segir Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður
Félags stjórnenda á leikskólum.
Ingibjörg segist hafa fengið svör frá stjórnend-
um 517 leikskóladeilda og af þeim verði 480 lokað
eða 93 prósentum. Margar þeirra deilda sem verða
opnar eru í litlum leikskólum á landsbyggðinni en
þó eru dæmi um deildir á höfuðborgarsvæðinu sem
verða opnar.
„Þó að deildirnar verði opnar, vegna þess að
forstöðumaður þeirra er ekki í Félagi leikskóla-
kennara, verður boðið upp á skerta starfsemi.
Leikskólakennarar koma að starfsemi langflestra
deilda með einum eða öðrum hætti. Til dæmis
koma þeir inn á deildirnar og sinna sérstökum
verkefnum,“ segir Ingibjörg.
Samninganefndir Félags leikskólakennara og
Sambands íslenskra sveitarfélaga hittust á fundi í
gær. „Það færðist heldur nær en fjær,“ sagði
Haraldur F. Gíslason, formaður FL.
Hann segir að enn beri mikið í milli í deilunni.
Leikskólakennarar vilja sömu launahækkanir og
grunn- og framhaldsskólakennarar sömdu um, eða
allt að 30 prósenta hækkun launa. - jme
Mikið ber enn í milli í kjaradeilu leikskólakennara og sveitarfélaganna:
Nær öllum leikskóladeildum lokað
VERKFALL YFIRVOFANDI Nær öll leikskólabörn á landinu
sitja heima 19. júní ef ekki takast samningar í kjaradeilu leik-
skólakennara og sveitarfélaganna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
WASHINGTON, AP Fimm bandarísk-
ir hermenn og einn afganskur
hermaður létu lífið í sunnanverðu
Afganistan í loftárás á vegum
bandaríska hersins á mánudag.
Þetta segir lögregla á svæðinu.
Loftárásin hafði verið fyrirskipuð
til að hjálpa mönnunum, sem lent
höfðu í fyrirsát talíbana.
Dauði sérsveitarmannanna fimm
þykir sýna að átökunum í Afganist-
an, sem nú hafa staðið yfir í nærri
fjórtán ár, er hvergi nærri lokið.
John Kirby, talsmaður varnar-
málaráðuneytis Bandaríkjanna,
sagði í gær að atvikið væri til
rannsóknar en gat ekki staðfest að
mennirnir hefðu fallið í loftárás á
vegum Bandaríkjahers. Talsmenn
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
vildu ekki tjá sig um atvikið.
„Við hugsum til fjölskyldna þeirra
látnu og biðjum fyrir þeim,“ sagði
Kirby í yfirlýsingu sinni.
Spenna hefur lengi ríkt milli yfir-
valda í Afganistan og Bandaríkja-
hers vegna loftárása þeirra síðar-
nefndu á landið. - bá
Hermenn í Afganistan féllu í loftárás sem átti að koma þeim til bjargar:
Felldu sex menn úr eigin liði
ORRUSTUFLUGVÉL Í AFGANISTAN
Loftárásin var fyrirskipuð til að bjarga
sérsveitarmönnunum fimm sem létust.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Gott rval notaðra b la staðnum.
Komdu heims kn eða skoðaðu heimas ðuna;
www.hyundai.is og smellir flipann notaðir b lar
S mi 575 1200
ALLT AÐ 80% FJ RM GNUN
BEINT M TI IKEA
HYUNDAI i30 STYLE
Nýskr 09/2008, ekinn 78 þús.
bensín, beinskiptur
KIA SORENTO III LUXURY
Nýskr 04/2011, ekinn 37 þús.
dísil, sjálfskiptur
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr 05/2013, ekinn 25 þús.
dísil, sjálfskiptur
HYUNDAI SANTA FE II CRDI
Nýskr 06/2008, ekinn 151 þús.
dísil, sjálfskiptur
HONDA JAZZ 1.4i LS
Nýskr 05/2008, ekinn 66 þús.
bensín, sjálfskiptur
TOYOTA AURIS SOL
Nýskr 03/2008, ekinn 133 þús.
dísil, sjálfskiptur.
HYUNDAI GETZ GLS
Nýskr 07/2008, ekinn 67 þús.
bensín, beinskiptur
VERÐ:
5.490.000 kr.
VERÐ:
5.290.000 kr.
VERÐ:
2.990.000 kr.
VERÐ:
1.490.000 kr.
VERÐ:
1.890.000 kr.
VERÐ:
1.150.000 kr.
HYUNDAI
VERÐ
1.980 þús.
HYUNDAI
NOTAÐIR
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES.
Kaupt ni 1- (Beint m ti IKEA)
Nr. 130788
Nr. 120364
Nr. 281294
Nr. 191312
Nr. 120416
Nr. 131083
Nr. 120326