Fréttablaðið - 11.06.2014, Qupperneq 10
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
STJÓRNSÝSLA Landbúnaðarráðu-
neytið og fjármálaráðuneytið
hækkuðu leigu ríkisjarðar án þess
að hafa til þess heimild og stjórn-
sýslulög eru brotin með því að
óskum ábúandans um kaup á jörð-
inni hefur ekki svarað í meira en
átta ár.
Ofangreint er álit umboðsmanns
Alþingis en þangað kærði ábúand-
inn stjórnvöld. Þess má geta að
allar vísbendingar um hver ábú-
andinn eða jörðin er hafa verið
afmáðar úr áliti umboðsmanns.
Bæði embætti umboðsmanns og
Jarðadeild fjármálaráðuneytisins
neita að upplýsa um hvaða ríkis-
jörð er að tefla.
Fram kemur að jörðin er leigð
samkvæmt byggingarbréfi
útgefnu á árinu 1985. Þar er kveðið
á um að leigan skuli vera þrjú pró-
sent af fasteignamati. Árið 2011
hækkaði ríkið leiguna úr 22 þús-
und krónum á ári í 54 þúsund. Var
vísað til þess að leigan væri undir
lágmarksviðmiði. Einnig til auk-
inna hlunninda af heyjum og vax-
andi göngu sjóbirtings. Taka ber
fram að leigan er eingöngu fyrir
jörðina sjálfa en ekki húsakostinn
sem ábúandinn á sjálfur.
Umboðsmaður sagði ráðuneytið
ekki geta hækkað leigu einhliða á
grundvelli eigin reglna, grastekja
sé ekki hlunnindi og að ekki hafi
verið sýnt fram á auknar tekjur
af veiði. Hafi ríkið viljað hækkun
leigunnar vegna aukinna hlunn-
inda hefði það auðveldlega getað
óskað eftir hækkun fasteignamats
jarðarinnar.
Í samræmi við lög óskaði ábú-
andinn eftir því árið 2005 að fá
jörðina keypta. Sú ósk hefur verið
margítrekuð en aldrei verið svar-
að. Ríkið ber við ágreiningi um
landamerki við næstu jörð, sem
einnig er ríkisjörð.
„Lögbundinn réttur A [ábúand-
ans] til að kaupa ábúðarjörð sína er
þýðingarlítill ef stjórnvöld draga
von úr viti að afgreiða beiðni henn-
ar þar um,“ segir umboðsmaður
Alþingis.
„Náist ekki sættir um afmörk-
un jarðanna verður ráðuneytið á
endanum að höggva á hnútinn og
ákvarða landamerki þeirra jarða
sem í hlut eiga að því marki sem
það hefur sjálft forræði á þeim
ágreiningi og að því marki sem
það er nauðsynlegt til að taka
ákvörðun um beiðni A um kaup
á jörðinni,“ segir í álit umboðs-
manns.
Hjá Jarðadeildin fengust þau
svör að umrætt mál væri einstakt
og að álit umboðsmanns hefði því
ekki áhrif á leigugjald fyrir aðrar
ríkisjarðir. gar@frettabladid.is
Ráðuneyti brjóta á
ríkisjarðarleigjanda
Umboðsmaður Alþingis segir ríkisvaldið hafa margfaldað leigugjald fyrir ríkisjörð
án lagaheimildar og hafa brotið málshraðareglu stjórnsýslulaga með því að hafa
enn ekki eftir átta ár svarað ítrekuðum óskum ábúandans um að kaupa jörðina.
Í SVEITASÆLU Ábúandi ótiltekinnar ríkisjarðar benti á að nýtingarmöguleikar á sil-
ungsveiði hefðu verið skertir með banni við netaveiði í ánni á jörðinni sem væri of
straumhörð til að koma öðrum veiðiaðferðum við. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTAMÁL Skólastjórafélag Íslands og
Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu
undir kjarasamning hjá ríkissáttasemjara í
gærmorgun.
Samningurinn gildir til eins árs en jafn-
hliða honum var skrifað undir viðræðuáætl-
un og tímasetta aðgerðaáætlun þar sem
farið verður í vinnu við nýtt launamyndun-
arkerfi skólastjórnenda.
„Við náðum sömu byrjunarhækkun, það
er 2,8 prósentum, eins og á almenna mark-
aðnum auk leiðréttingar á mati á námi og
starfsreynslu til samræmis við önnur félög
innan Kennarasambands Íslands,“ segir
Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður
Skólastjóra félags Íslands.
Hún bendir á að samið hafi verið til eins
árs þar sem grunnskólakennarar muni ekki
kjósa fyrr en í febrúar um framhald síns
kjarasamnings. „Við vitum ekki fyrr en þá
hvernig þetta kemur út hjá þeim. Það er
fyrst og fremst þess vegna sem við vild-
um ekki gera lengri samning. Við komum
til með að undirbúa nýjan kjarasamning á
næsta vetri sem ætlað er að taka gildi 1. júní
2015.
Rafræn kosning um nýja samninginn fer
fram 12. til 19. júní. - ibs
Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifa undir kjarasamning til eins árs:
Munu vinna að nýju kerfi fyrir stjórnendur
SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR Inga Rún Ólafsdóttir,
formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitar-
félaga, Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og Svanhild-
ur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands.
SVÍÞJÓÐ Eftir að sænska lögreglan upplýsti hótel-
starfsmenn um hvernig uppgötva mætti vændis-
starfsemi er orðið æ algengara að vændi sé stundað
í íbúðum sem grunlausir Svíar leigja út þegar þeir
fara sjálfir í frí.
Á fréttavef sænska ríkisútvarpsins er sagt frá
Svía í Gautaborg sem leigði út íbúðina sína til
tveggja stúlkna í viku. Þær kváðust vera að heim-
sækja kærasta annarrar þeirra sem starfaði í borg-
inni. Leigusalann leitaði upplýsinga á netinu og
komst að því að önnur stúlkan var skráð á vændis-
síðu.
Haft er eftir lögreglumanninum Simon Hägg-
ström að slíkt gerist æ oftar. Hann segir algengt
að vændiskonur séu fluttar á milli staða, einkum
milli stórborganna, og séu þær um það bil eina viku
á hverjum stað. Nær undantekningarlaust sé um
skipulagða glæpastarfsemi að ræða.
Häggström ráðleggur Svíum að biðja nágranna
um að fylgjast með því hvort karlar komi oft í heim-
sókn í húsnæði sem er í útleigu. Þá sé ástæða til að
gera íbúðareigandanum viðvart og jafnvel lögregl-
unni. - ibs
Viðvörun frá sænsku lögreglunni vegna útleigu á íbúðum í sumarfríinu:
Vændi stundað í leiguíbúðum
STOKKHÓLMUR Glæpahringir senda vændiskonur á milli
stórborga í Svíþjóð.
Lögbundinn réttur A
[ábúandans] til að kaupa
ábúðarjörð sína er þýð-
ingarlítill ef stjórnvöld
draga von úr viti að
afgreiða beiðni hennar
þar um.
Umboðsmaður Alþingis
MÓTMÆLA Spænskir slökkviliðsmenn byggðu turn úr girðingum lögreglu þegar
þeir mótmæltu niðurskurðaraðgerðum spænskra stjórnvalda í Barcelona í gær.
Verkalýðsfélög á Spáni hafa kallað eftir allsherjarverkfalli frá 20. júní til að mótmæla
aðgerðum stjórnvalda. NORDICPHOTOS/AFP
Mótmæla niðurskurði stjórnvalda
UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra og
Paul LePage, ríkisstjóri Maine í
Bandaríkjunum, skrifuðu í gær
undir sam-
komulag um
aukið sam-
starf.
Samkvæmt
samkomulag-
inu verður
unnið að því að
efla viðskipta-
tengsl Íslands
og Maine meðal
annars með
áherslu á orkumál, viðskiptaþró-
un, samgöngur, nýtingu nátt-
úruauðlinda og menningarmál.
Rædd voru ný viðskiptatækifæri
sem skapast með beinum sigl-
ingum á milli Reykjavíkur og
Portland.
Þá munu stjórnvöld leita leiða
til að starfa saman að hags-
munamálum á norðurslóðum,
m.a. varðandi umhverfisöryggi
og leit og björgun, að því er
kemur fram í tilkynningu. - fb
Skrifuðu undir samning:
Aukið samstarf
við Maine
GUNNAR BRAGI
SVEINSSON
SJÁVARÚTVEGUR Sigurður Ingi
Jóhannsson sjávarútvegsráðherra
og kollegi hans frá Portúgal, Ass-
unção Cristas, hafa undirritað
viljayfirlýsingu um að tryggt verði
að ekki sé fluttur út saltfiskur
til Portúgals sem meðhöndlaður
hefur verið með fosfötum, nema
kaupandi óski þess sérstaklega.
Reglur Evrópusambandsins
leyfa fosföt við verkun saltfisks, en
efnin halda holdinu hvítu. Stjórn-
völd í Portúgal leituðu til ráðuneyt-
isins og óskuðu eftir samstarfi um
að tryggja áframhaldandi viðskipti
með saltfisk, sem verkaður er án
fosfatsprautunar. - shá
Kaupandinn ræður ferðinni:
Verka saltfisk
eftir hefðinni
HEILBRIGÐISMÁL Ríkissjóður
yfirtók í gær tæplega sex millj-
arða króna lífeyrisskuldbinding-
ar ellefu hjúkrunarheimila.
Þetta er gert til að koma til
móts við erfiða fjárhagsstöðu
hjúkrunarheimila sem rekin eru
af sjálfseignarstofnunum.
Í tengslum við samkomulagið
eru enn fremur gerðar upp skuld-
ir nokkurra hjúkrunarheimila
vegna ógreiddara lífeyrishækk-
ana til lífeyrissjóða sem safnast
hafa upp undanfarið ár. - jme
Til móts við hjúkrunarheimili:
Ríkið yfirtekur
sex milljarða
SALTFISKVERKUN Portúgal er mikilvæg-
ur markaður fyrir saltfisk. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE