Fréttablaðið - 11.06.2014, Side 36
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
Chili- og súraldinflögur
3 russet-kartöflur
Ólífuolía
Safi úr hálfu súraldini
1/4 tsk. rautt chiliduft
sjávarsalt
Hitið ofninn í 190°C. Hreinsið og
skrælið kartöflur. Skerið þær í afar
þunnar sneiðar. Setjið bökunarpappír
á ofnplötu og burstið með olíu. Setjið
kartöflusneiðarnar á plötuna, án
þess þó að stafla hverri ofan á aðra.
Setjið smá olíu og sjávarsalt ofan á
sneiðarnar og bakið í fimmtán til
tuttugu mínútur. Setjið sneiðarnar á
eldhúspappír og leyfið mestu olíunni
að fara úr þeim, blandið síðan
súraldinsafanum og chilidufti saman
við á meðan sneiðarnar eru enn
heitar. Leyfið þeim að kólna áður en
þær eru bornar fram.
Fengið af http://www.paperplatesblog.
com
Gráðaostsídýfa
1 lítill pakki rjómaostur, mjúkur
1/2 bolli fersk steinselja
1/4 bolli laukur
1/2 bolli sýrður rjómi
2 msk. hvítvínsedik
1 hvítlauksgeiri
1 tsk. sterk sósa, til dæmis tabasco
1 tsk. sítrónubörkur
1/2 tsk. pipar
1/2 bolli niðurskorinn gráðaostur
Setjið öll hráefnin nema gráðaost í
matvinnsluvél og blandið vel saman.
Bætið síðan gráðaostinum við og
blandið létt saman. Berið fram með
snakki, grænmeti eða kjúklinga-
vængjum.
Fengið af http://www.thesweetslife.com
Eitthvað til
að bíta í með
boltanum
Um að gera að búa til sitt eigið snakk og ídýfu.
Fylgstu með þessum á HM
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst á morgun í Brasilíu. 32 landslið keppa
um titilinn og lýkur mótinu þann 13. júlí. Fréttablaðið kíkti á nokkra fótbolta-
menn sem eru ekki aðeins góðir með knöttinn heldur einnig afar fagrir á velli.
Sykursætur Sergio Mais Oui
Hárprúður
Vígalegur í vörninni
Maðurinn á miðjunni
Kólumbískur kynþokkiStöngin inn Tyrkneski tarfurinn
Rándýrt augnaráðBongiorno
Æðislegur Úrúgvæi Reffi legur Rússi
JAMES TROISI
SÓKNARSINNAÐUR MIÐJUMAÐUR
ÁSTRALÍA
ALDUR: 25 ÁRA
HÆÐ: 1,80 M
LIÐ: ATALANTA
EDINSON CAVANI
SÓKNARMAÐUR
ÚRÚGVÆ
ALDUR: 27 ÁRA
HÆÐ: 1,84 M
LIÐ: PARIS SAINT-GERMAIN
ALEKSANDR KERZHAKOV
SÓKNARMAÐUR
RÚSSLAND
ALDUR: 31 ÁRS
HÆÐ: 1,76 M
LIÐ: ZENIT ST. PETERSBURG
SERGIO RAMOS
VARNARMAÐUR
SPÁNN
ALDUR: 28 ÁRA
HÆÐ: 1,83 M
LIÐ: REAL MADRID
OLIVIER GIROUD
SÓKNARMAÐUR
FRAKKLAND
ALDUR: 30 ÁRA
HÆÐ: 1,92 M
LIÐ: ARSENAL
GABRIEL ACHILIER
VARNARMAÐUR
EKVADOR
ALDUR: 29 ÁRA
HÆÐ: 1,80 M
LIÐ: EMELEC
ALFREDO TALAVERA
MARKMAÐUR
MEXÍKÓ
ALDUR: 31 ÁRS
HÆÐ: 1,88 M
LIÐ: TOLUCA
GÖKHAN INLER
MIÐJUMAÐUR
TYRKLAND
ALDUR: 29 ÁRA
HÆÐ: 1,83 M
LIÐ: NAPOLI
JAMES RODRÍGUEZ
SÓKNARSINNAÐUR MIÐJUMAÐUR
KÓLUMBÍA
ALDUR: 22 ÁRA
HÆÐ: 1,80 M
LIÐ: MONACO
DIEGO FORLÁN
FRAMHERJI
ÚRÚGVÆ
ALDUR: 35 ÁRA
HÆÐ: 1,80 M
LIÐ: CEREZO OSAKA
CLAUDIO MARCHISIO
MIÐJUMAÐUR
ÍTALÍA
ALDUR: 28 ÁRA
HÆÐ: 1,79 M
LIÐ: JUVENTUS
NEYMAR
FRAMHERJI
BRASILÍA
ALDUR: 22 ÁRA
HÆÐ: 1,75 M
LIÐ: BARCELONA
ORKUBÚNT
FUJITSU GÆÐARAFHLÖÐUR
Fujitsu alkaline rafhlöðurnar eru öflugar,
endast vel og eru auðvitað á góðu verði.
Skútuvogi 1c · 104 Reykjavík · Sími 550 8500 · Fax 550 8510 · vv@vv.is · www.vv.is
Fást í fjölda verslana um land allt. Dreifing á Íslandi:
LÍFIÐ