Fréttablaðið - 12.06.2014, Side 6
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Mammut dagar
30% afsláttur af Mammut fatnaði fimmtudag til laugardags
ÖRYGGISMÁL Vinnuslysum starfs-
fólks í fiskvinnslu hefur fjölgað
ár frá ári um langt skeið. Tilkynnt
vinnuslys voru helmingi fleiri árið
2011 en áratug fyrr. Vinnueftirlitið
réðst í sérstakt eftirlitsátak vegna
þessa í fyrra.
Helgi Haraldsson, deildarstjóri
hjá Vinnueftirlitinu, leiddi verk-
efnið. Hann segir fjölgun vinnu-
slysa í fiskvinnslu koma á óvart
og afar neikvætt að staðan sé með
þessum hætti. „Menn velta fyrir
sér ástæðunum, hvort tölfræð-
in ýki vandann. En þegar kafað
er dýpra sést að skýringin er til
dæmis ekki sú að fyrirtækin séu
duglegri að tilkynna slysin en áður
var. Þetta eru einnig alvöru slys,
ef svo má segja, og ekki um frek-
ari skráningu smáslysa að ræða
sem skýrir þetta,“ segir Helgi og
hnykkir á því að áþekka fjölg-
un vinnuslysa er ekki að finna í
öðrum atvinnugreinum.
Tilkynningar um útvortis og
innvortis blæðingar og tognanir
hafa aukist en fjöldi beinbrota er
áfram um 20 á ári, svipað og liðna
tvo áratugi þrátt fyrir fækkun
starfsmanna í greininni.
Vinnueftirlitið réðst snemma árs
2013 í sérstakt eftirlitsátak vegna
þessarar stöðu. Þrjár skilgreindar
ástæður voru fyrir verkefninu; vís-
bendingar um fjölgun slysa, nýleg
alvarleg slys og ítrekuð dæmi
um að vélbúnaður uppfyllti ekki
ákvæði reglna og reglugerða.
En hverjar eru ástæður þessar-
ar fjölgunar slysa?
Helgi segir að ekkert eitt standi
upp úr en eftirtektarvert sé að slys-
um meðal ungra starfsmanna hefur
fjölgað og eru þau langalgengust
í yngstu aldurshópunum, bæði
undir 18 ára og á aldursbilinu 19 til
24 ára. Því megi spyrja sig hvort
þjálfun, fræðsla og upplýsingagjöf
starfsmanna sé ekki ein skýring-
anna. Hann segir að hafa beri hug-
fast í samhengi við fjölgun slysa að
fiskvinnslan er ein fárra atvinnu-
greina sem halda úti sérstökum
námskeiðum, en þau nái frekar til
reyndari hóps starfsmanna.
Í því ljósi liggur fyrir að erlendu
verkafólki hefur fjölgað í fisk-
vinnslu, og spurður hvort það geti
verið hluti skýringarinnar útilok-
ar Helgi það ekki, tungumálaörð-
ugleikar auðveldi sannarlega ekki
þjálfun og upplýsingagjöf.
svavar@frettabladid.is
Fjölgun vinnuslysa í
fiskvinnslu margföld
Slysaskráning Vinnueftirlitsins sýnir stöðuga fjölgun vinnuslysa hjá fiskvinnslu-
fyrir tækjum um langt árabil. Betri skráning slysa er ekki skýringin. Athyglin bein-
ist að þjálfun og upplýsingagjöf starfsmanna; bæði ungs fólks og erlends vinnuafls.
FISKVINNSLA Vinnuslysum í fiskvinnslu fjölgar langt umfram aðrar atvinnugreinar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á slysaskrá Vinnueftirlitsins voru skráð fjórfalt fleiri slys árið 2012 en árið
1991 eða 400 slasaðir á hverja 10.000 starfandi. Allt tímabilið frá 1991 til
dagsins í dag sýnir stöðuga fjölgun.
Hafa verður í huga að fiskvinnslufólki hefur fækkað mikið á tímabilinu;
fjöldinn var rúmlega 6.000 árið 2002 en rétt losaði 4.000 árið 2012, sam-
kvæmt gögnum Samtaka fiskvinnslustöðva. Fjöldi alvarlegra slysa eins og
beinbrota á hverju ári breytist ekki þrátt fyrir mikla fækkun starfsfólks.
Fjórfalt fleiri vinnuslys skráð árið 2012
1. Hvenær nam asparglytta land hér?
2. Hvaða Íslendingur er markahæst-
ur í norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu?
3. Hver leikur Gunnar á Hlíðarenda í
Stundinni okkar næsta vetur?
SVÖR:
STJÓRNMÁL Fyrsti undirbúnings-
fundur nýs stjórnmálaafls sem
hefur fengið vinnuheitið Viðreisn
var haldinn á Grand Hóteli í gær.
Fundargestir þurftu að greiða
1.500 krónur í aðgangseyri og
myndaðist löng biðröð fyrir utan
fundarsalinn.
Unnið var í hópum á fundinum
og fjallað var um gjaldeyrismál,
menntamál og heilbrigðismál, svo
dæmi séu tekin. Hóparnir skiluðu
af sér skjölum sem verða notuð til
að útfæra stefnu flokksins.
Benedikt Jóhannesson er einn
af stofnendum flokksins, sem telst
vera Evrópusinnaður hægriflokk-
ur. Hann er hæstánægður með
mætinguna á fundinn. „Við bjugg-
umst við 120 manns en við urðum
að fá annan sal því það komu svo
margir.“
Hann bætir við að fjölbreytileg
viðhorf hafi komið fram í einhverj-
um málum, eins og búist hafi verið
við, en að víðast hvar hafi sam-
hljómurinn verið mikill.
- fb
Fyrsti undirbúningsfundur nýs stjórnmálaafls var haldinn á Grand Hóteli:
Fjöldinn fór fram úr væntingum
FYRIR FUND Benedikt Jóhannesson
skömmu fyrir undirbúningsfundinn sem
var haldinn á Grand Hóteli í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SNYRTILEGUR Kínverskur hermaður lagar kaskeiti kollega síns er þeir búa sig undir
að taka á móti Renzi fyrir framan Höll fólksins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÍNA Matteo Renzi, nýr forsætisráðherra Ítalíu, er um þessar mundir
staddur í Kína. Heimsóknin er hluti af opinberu ferðalagi um Asíu sem
miðar að því að styrkja viðskiptastöðu Ítala í álfunni. Í gær hittust þeir
Renzi og Xi Jingping, forseti Kína, í Höll fólksins í Peking og lýsti sá
síðarnefndi yfir aðdáun sinni á efnahagsáætlun nýrrar ríkisstjórnar
Ítalíu.
Á mánudaginn varð Renzi fyrsti forsætisráðherra Ítalíu til að heim-
sækja Víetnam opinberlega. Hann mun einnig koma við í Kasakstan á
ferð sinni um Asíu. - bá
Forsætisráðherra Ítalíu er á ferðalagi um Asíu:
Renzi og Jingping funda í Kína
BRUSSEL Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins ætlar að rann-
saka alþjóðlegu fyrirtækin Apple,
Starbucks og Fiat í tengslum við
skattasamkomulag þeirra við
þrjú lönd í Evrópusambandinu.
Frá þessu greinir BBC. Löndin
sem um ræðir eru Írland, Hol-
land og Lúxemborg. Í fyrra sak-
aði rannsóknarteymi bandaríska
öldungaþingsins Írland um að
veita Apple sérstaka meðferð í
skattamálum.
Framkvæmdastjórnin mun
kanna hvort skattamál fyrir-
tækjanna standist reglugerðir
Evrópu sambandsins. - bá
Skattamál Apple rannsökuð:
Stórfyrirtæki
skoðuð af ESB
JAFNRÉTTISMÁL Talið er að allt að
15 þúsund konur, þar af um 200
íslenskar, séu komnar til að taka
þátt í Nordisk Forum í Malmö í
Svíþjóð.
Á ráðstefnunni er fjallað
um fjölmarga þætti er tengjast
kvenna- og jafnréttisbaráttu,
jafnt á Norðurlöndunum sem ann-
ars staðar í heiminum.
Ráðstefnan hefst í dag og henni
lýkur á sunnudag.
Þetta er í þriðja sinn sem Nor-
disk Forum er haldin, fyrsta ráð-
stefnan var í Ósló í Noregi 1998
og sex árum síðar var ráðstefna í
Turku í Finnlandi. - jme
Konur fjölmenna til Malmö:
Jafnréttisbarátt-
an í brennidepli
REYKJAVÍK Verslunarmiðstöð-
in Smáralind hefur ákveðið að
gefa Reykjavíkurborg högg-
myndina Hafmeyjuna eftir Nínu
Sæmundsson. Jón Gnarr borgar-
stjóri tekur formlega á móti
höggmyndinni í Hljómskálagarð-
inum klukkan tvö í dag.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá borginni. Hafmeyjan
á sér skrautlega sögu en önnur
afsteypa Nínu af höggmyndinni
var sprengd í loft upp í Reykja-
víkurtjörn á nýársdag 1960. - bá
Smáralind gefur höggmynd:
Hafmeyjan í
Reykjavík á ný
1. Árið 2005. 2. Viðar Örn Kjartansson.
3. Hafþór Júlíus Björnsson.
VEISTU SVARIÐ?