Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 32
FÓLK|TÍSKA ■ VÖRN Þegar sólin skín glatt er ekki bara nauðsyn- legt að setja sól- arvörn á börn. Það þarf að verja augu þeirra. Börn ættu að velja sér sól- gleraugu sjálf svo þau vilji nota þau. Það þarf að bera reglulega á börnin yfir daginn, verja augu þeirra og höfuð. Ekki er gott að hafa heitar húfur en léttar sumarhúfur eru nauðsynlegar. Börn yngri en ársgömul ættu ekki að vera í sól þar sem húð þeirra er afar viðkvæm. Ef börn eru í sólarlandi ættu þau að vera innandyra frá 11-15. Látið barnið vera í bol í sundi eða á strönd og berið vel á þau. SÓLGLERAUGU Á BÖRNIN Drífa Líftóra Thoroddsen útskrifaðist úr fata-hönnun frá Listaháskóla Íslands um nýliðna helgi. Innblásturinn fyrir útskriftarlínu hennar er sóttur í vísindakvikmyndir. „Í BA-ritgerðinni minni var ég mikið að fjalla um búninga í vísindakvikmynd- um og hvort að búningahönnun í þess konar myndum væri stöðnuð. Ég var að skila ritgerðinni þegar ég var að byrja að vinna í útskriftarlínunni og mig langaði að tengja það efni inn í línuna mína. Það er eiginlega hægt að flokka vísindakvikmyndir í tvo flokka, annars vegar myndir sem gerast á jörðinni og litið er til baka úr framtíðinni og hins vegar myndir þar sem litið er til framtíðar. Í því síðarnefnda eru búningarnir svolítið sterílir og þröngir og mikið um silfur. Í hinni týpunni eru búningarnir víðari og meira flæðandi. Mig langaði að blanda þessu saman í útskriftarlínunni minni, að hafa þægileg efni á móti harðara efni sem erfiðara er að eiga við og ég held að það hafi tekist ágætlega,“ segir Drífa. NENNIR EKKI AÐ SAUMA Hún segist ekki eiga neina sérstaka tískufyrirmynd en finnst hönnuðirnir Christopher Kane, Gareth Pugh og Margiela vera flottir. „Ég fíla tísku sem er svolítið út úr kassanum. Stundum sé ég eitthvað sem mér finnst al- veg sjúkt á pöllunum og hugsa að þetta væri eitthvað sem ég myndi klæðast en svo fæst það hvergi. Það er kannski svolítið skrítið að vera fatahönnuður og sauma ekki en ég nenni yfirleitt ekki að laga fötin mín. Mér finnst mikilvægt að blanda fötum héðan og þaðan saman. Ég hef fengið slatta af dóti frá mömmu, sauma svolítið sjálf þegar ég nenni og kaupi líka eitthvað. Blanda saman gæðafötum við eitthvað ódýrara dót. Mér finnst nefnilega hálfóþægilegt þegar fólk getur séð hvar ég keypti dótið mitt.“ EKKI HENTUGUR STÍLL Drífa elskar að klæða sig í mörg lög af fötum og seg- ist eiginlega ekki kunna að klæða sig á sumrin af því að þá klæðir hún sig alltaf of mikið. „Ég hef undan- farið gengið í gegnum nokkurs konar buxnaæði, mig vantar boli en kaupi mér samt bara buxur. Ég er líka með vesti á heilanum og hef meira að segja verið í þremur vestum í einu. Þá var ég í bol og vesti yfir hann, fór svo í peysu og vesti yfir hana og að lokum jakka og vesti yfir hann. Þetta hljómar kannski skringilega en kom ágætlega út,“ segir Drífa og hlær. Aðspurð segist hún vera í svolitlum vandræðum með þennan stíl á sumrin. „Jú, þetta á kannski frekar við í norðannæðingi. Ég elska skammdegi, snjó og regn. Mig langar oft út að ganga þegar aðrir kvarta yfir veðrinu, ég heiti nú einu sinni Drífa.“ INNBLÁSTUR ÚR VÍSINDAKVIKMYNDUM FATAHÖNNUN Drífa Líftóra ákvað að verða fatahönnuður þegar hún var í 8. bekk. Hún útskrifaðist sem slíkur um helgina en útskriftarlínan hennar var innblásin af vísindakvikmyndum. Drífa starfar við Skapandi sumarstörf. ÓHEFÐBUNDIN Drífu Líftóru finnst flott að klæðast mörgum lögum af fötum. Hún fílar tísku sem er svolítið út úr kassanum. MYND/VILHELM Skipholti 29b • S. 551 0770 SUMARDAGAR 20% afsláttur. Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan lgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan Smart föt, fyrir smart konur Stærðir 38-52 Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style Eru flugur, flær eða maurar að ergja þig og bíta? áhrifaríkur og án allra eiturefna. Allt að 8 tíma virkni. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hjá N1 www.gengurvel.is Opið virka daga kl . 11–18. Opið laugardaga k l. 10-15. Kí ki ð á m yn di r o g ve rð á F ac eb oo k Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516 8 litir: fjólublátt, rautt, svart, hvítt, orange, ljós- beige, blátt, sandbrúnt Stærð 34 - 52 (56) Verð 13.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.