Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 24
12. júní 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Með hvor annan á heilanum Ein lengsta ritdeila í manna minnum hefur staðið á milli háskólapró- fessoranna Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Stefáns Ólafssonar. Þeir virðast ekki þreytast á því að skrifa pistla á vefsvæði Eyjunnar og Pressunnar hvor um annan. Fyrir tæpum tveimur árum velti Hannes því upp í pistli hvers vegna Stefán Ólafsson væri með hann á heilanum og tiltók nokkrar mögulegar ástæður. Síðan þá hefur Hannes sjálfur minnst á Stefán Ólafsson í að minnsta kosti fjörutíu pistlum á vefsvæði sínu. Það er líklega oftar en hann hefur skrifað um Margaret Thatcher, Brasilíu og Davíð Oddsson til samans á tímabilinu. Verðrýrnun um 75 prósent Nýr meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna í Reykjavík kynnti samstarfssamning sinn í gær. Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri, hafði sagt Fréttablaðinu frá því að eitt helsta baráttumál Samfylk- ingarinnar væri að hækka frístundastyrk til barna um 20 þúsund krónur og að það rúmaðist vel innan fjárhags- áætlana borgarinnar. Samstarfs- samningurinn segir þó að frístundakortið verði einungis hækkað um 5.000 krónur á árinu 2015. Enginn veit hvert mismunurinn, 15 þúsund krónur, hvarf. Enginn ókeypis leikskóli Aðalbaráttumál Vinstri grænna, gjald- frjáls leikskóli, virðist heldur ekki hafa komist inn í samstarfsyfirlýsinguna. Leikskólagjöld verða lækkuð um 200 milljónir króna og 100 milljónum verður veitt til skóla- og frí- stundasviðs. Loforð Vinstri grænna miðaði þó við að 750 milljónum yrði varið á hverju ári kjörtímabilsins til skóla- og frístundasviðs. Hvernig 3.000 milljónir urðu að 300 milljónum er ekki skýrt. Þetta hlýtur eigin- lega að vera heimsmet í gjaldfellingu kosninga- loforða. snaeros@frettabladid.is Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum kom í ljós að verulega hefur dregið úr þátttöku í kosningum hér á landi, sem þó hefur sögulega verið afar góð. Við virðumst því á sömu leið og mörg önnur lönd. Bretar telja sig til að mynda góða ef kjörsókn er á milli 50 til 55 prósent. Í nýafstöðnum kosningum til Evrópuþings var kjörsókn 43 prósent. Kjörsókn á landsvísu í nýafstöðnum kosningum var um 66 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu sveiflaðist hún milli 60,5 og 69 prósenta og á landinu frá 55 upp í 90 prósent. Sögulega hefur kjör- sókn í sveitarstjórnarkosningum verið milli 82 og 88 prósenta, en hefur verið á niðurleið frá 2006 þegar hún datt fyrst niður fyrir 80 prósentin. Í öðrum löndum þar sem kjörsókn er orðin enn lakari en hér hefur sums staðar verið rætt um að gera þátttöku í kosningum lögboðna þannig að sektir liggi við því að kjósa ekki. Það getur verið ágætishugmynd. Margvísleg lýðræðisþátttaka getur verið bundin í lög. Til dæmis er ekki án góðra raka hægt að skjóta sér undan kviðdómsskyldu í Bandaríkjunum. Hættan sem slíku fyrir- komulagi fylgir er þó að kjósendur mæti og merki bara við eitt- hvað, eða ógildi seðil sinn. Skylduþátttaka gæti þó vakið lýðræðis- áhuga hjá einhverjum þannig að kannski jafnar það sig út. Ef til vill er samt vænlegra en að grípa til slíks valdboðs að velta fyrir sér ástæðum þess að dregið hefur úr þátttöku í kosn- ingum og reyna að bregðast við með úrbótum til þess að glæða á ný áhuga fólks á að taka lýðræðislega ábyrgð á samfélagi sínu. Ljóst er að samspil ólíkra þátta getur orðið til þess að draga úr áhuga fólks á kosningum. Framboð hafa úr mismiklum fjár- munum að spila í kosningum og kynningarefni frá þeim því ef til vill ekki nógu mikið til að glæða almennan áhuga. Í alþingiskosningum hjálpar ekki að atkvæði hafa mismikið vægi eftir því hvar er kosið á landinu. Þá hafa stjórnmálaflokk- arnir sjálfir mjög mikið að segja um uppröðun á lista og kjósend- ur hafa bitlaus verkfæri til að hafa áhrif á það val. Óheyrilegan fjölda útstrikana þarf til dæmis til að færa fólk til á lista. Svo er náttúrlega fyrirhöfn að mæta á kjörstað, standa í röð, sýna skilríki og merkja við á pappír á bak við tjald. Þegar fram í sækir getur fólk ef til vill kosið rafrænt, en enn sem komið er hefur ekki fundist lausn sem þykir nægilega örugg. Það segir sína sögu að í nýlegri umfjöllun Fréttablaðsins um rafrænar kosningar voru það fulltrúar Pírata, flokksins sem einna mestan áhuga hefur á því að hagnýta upplýsingatækni til að auka lýðræði í landinu, sem sáu mest tormerki á rafrænum kosningum. Á meðan ekki finnst lausn á því að tryggja öryggi rafrænna kosninga gæti skref í rétta átt verið að auka val og áhrifamátt kjósenda, svona um leið og vægi atkvæða yrði jafnað. Í kosningunum til stjórnlagaþings kom í ljós að persónukjör er ekki of flókið í framkvæmd. Því ætti til dæmis ekkert að vera því til fyrirstöðu að gefa kjósendum kost á að velja fulltrúa þvert á flokka á kjörseðli, jafnvel þó svo að eitthvert eitt ákveðið framboð fái atkvæðið. Slík leið hlýtur að eiga sérstaklega vel við í sveitar- stjórnarkosningum sem oft og tíðum snúast meira um fólk en stjórnmálastefnur flokka. Með slíkri leið yrði vissulega vald fært frá stjórnmálaflokkum til kjósenda, en það er varla slæmt. Sér- staklega ekki ef það yrði til að glæða áhuga fólks á því að kjósa. Aðgerða er þörf áður en kjörsókn versnar enn. Meira vald, takk Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is Eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda þegar kemur að hælisleitendum er að tryggja fullnægjandi þjónustu við með- ferð umsókna þeirra. Í gær náðum við mikilvægum áfanga í þeim efnum þegar innanríkisráðuneytið og Rauði krossinn á Íslandi undirrituðu samning um þjónustu við hælis leitendur. Helstu áherslur samningsins felast í því að hraða málsmeðferð hælisumsókna, bæta verklag og tryggja sem besta nýtingu á því fjármagni sem er varið í málaflokk- inn. Með samningi við Rauða krossinn tekst okkur að tryggja hælisleitendum hlutlausa og óháða réttargæslu þannig að jafnræðis sé gætt og að allir hælisleitendur fái vand- aða málsmeðferð. Rauði krossinn mun einnig meta reglu- lega aðbúnað hælisleitenda, sinna heim- sóknarþjónustu, félagsstarfi og fleira ásamt því að veita stjórnvöldum aðhald í málaflokknum. Þá munu samtökin halda úti alþjóðlegri leitarþjónustu til þess að hafa uppi á týndum ættingjum og endurvekja samband innan fjölskyldna þegar slíkt er mögulegt. Styttri málsmeðferðartími Eitt helsta úrlausnarefni stjórnvalda í kjöl- far mikillar ásóknar eftir alþjóðlegri vernd hér á landi hefur verið tímalengd og drátt- ur málsmeðferðar. Í breiðri sátt samþykkti Alþingi breytingar á lögum um útlendinga í vor en þær breytingar fela meðal annars í sér að hægt verður að hraða málsmeðferð- artíma umtalsvert. Frá og með 25. ágúst næstkomandi er stefnt að því að máls- meðferðartími hælisumsókna hér á landi verði að meðaltali ekki lengri en 90 dagar á hvoru stjórnsýslustigi í stað tveggja til þriggja ára eins og verið hefur síðustu misseri. Um næstu áramót mun sjálfstæð úrskurðanefnd í útlendingamálum, sem endurskoðar ákvarðanir Útlendingastofn- unar, taka til starfa. Nefndina munu skipa okkar helstu sérfræðingar í málefnum flóttamanna og mannréttinda. Með auk- inni sérfræðiþekkingu innan málaflokks- ins, bæði hjá Rauða krossinum og stjórn- völdum, verða verkferlar skýrari og hægt verður að afgreiða mál með skjótari og skil- virkari hætti án þess að það komi niður á gæðum málanna. Það er ástæða til að fagna þessum mikla áfanga sem nú hefur náðst í málefnum hælis leitenda hér á landi. Um leið og ég þakka Rauða krossinum fyrir að koma að þessu mikilvæga verkefni býð ég hann vel- kominn til mikilvægs samstarfs. Þakkir til Rauða krossins RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN AÐGANG AÐ TÓNLISTINNI Í ÖLLUM HERBERGJUM Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. HÆLIS- LEITENDUR Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.