Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 8
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
25%
NÝTT
afsláttur
af öllum styrkleikum
og pakkningastærðum
Í fárra höndum
Amihai Grosz, Bryndís Halla
Gylfadóttir, Sayaka Shoji,
Víkingur Heiðar Ólafsson,
Mahler Chamber Soloists
15. júní. 15.00. Norðurljós.
4 DAGAR. 9 TÓNLEIKAR. 13.–16. JÚNÍ.
Kynnið ykkur magnaða dagskrá á www.reykjavikmidsummermusic.com
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samstarfs-
sáttmáli nýs meirihluta borgar-
stjórnar sem er myndaður af
Samfylkingunni, Bjartri framtíð,
Vinstri grænum og Pírötum var
kynntur í miklu blíðviðri í Elliða-
árdal í gær.
„Þetta leggst mjög vel í mig,“
segir Dagur B. Eggertsson, sem
verður nýr borgarstjóri Reykja-
víkur. „Ég held að það sé styrkur
að þessi hópur kemur úr ólíkum
áttum og þannig er borgin svolítið
líka. Við ætlum að spila svolítið á
breiddinni.“
Spurður út í staðsetningu fund-
arins í Elliðaárdal segir hann að
dalurinn sé einn sá fallegasti í
Reykjavík. „Ég held að við eigum
öll okkar tengingar við Elliðaár-
dalinn. Ég er svolítið alinn hér upp
og þetta er einn af mínum leyni-
stöðum. Það er erfitt að velja stað
í Reykjavík sem sameinar alla en
Elliðaárdalurinn er einn af þeim.“
Í sáttmálanum segir að virð-
ing fyrir öllu fólki, komandi kyn-
slóðum og náttúrunni verði sett
í öndvegi. Borgin mun beita sér
fyrir uppbyggingu á 2.500 til
3.000 leigu- og búseturéttaríbúð-
um í Reykjavík á næstu þremur
til fimm árum. Gagnsæi og aukið
íbúalýðræði er eitt af meginverk-
efnum kjörtímabilsins.
S. Björn Blöndal úr Bjartri
framtíð verður formaður borgar-
ráðs, Sóley Tómasdóttir úr Vinstri
grænum forseti borgarstjórnar og
Píratinn Halldór Auðar Svansson
formaður nýrrar stjórnkerfis- og
lýðræðisnefndar.
Björn segir að meirihlutavið-
ræðurnar hafi gengið mjög vel.
„Það hafa alls kyns ágreiningsmál
komið upp en okkur hefur gengið
mjög vel að komast að sameinlegri
niðurstöðu. Við vorum mjög hrein-
skilin allan tímann og byrjuðum á
að taka á erfiðustu málunum.“
Sóley er sátt við nýja sáttmálann
og líst vel á samstarfið. „Ég held
að við eigum eftir að bæta hvert
annað upp. Við höfum tiltölulega
ólíkar áherslur en eins og segir í
innganginum að málefnasáttmála
okkar þá er markmið okkar að við
verðum stærri en summan af pört-
unum okkar.“
Píratar eru í fyrsta sinn í borg-
arstjórn og sömuleiðis í meiri-
hlutasamstarfi. Halldór er ánægð-
ur með hversu mikið af málum
Pírata er inni í sáttmálanum.
„Lykilatriðið í svona samstarfi er
að fólk nái vel saman og líki hverju
við annað. Það hefur ekki verið
vandamál hingað til.“
Ný borgarstjórn tekur við á
borgarstjórnarfundi næstkomandi
mánudag. freyr@frettabladid.is
Styrkur að koma
úr ólíkum áttum
Samstarfssáttmáli nýs meirihluta borgarstjórnar var kynntur í sól og blíðu í Elliða-
árdalnum í gær. Dagur B. Eggertsson tekur við sem borgarstjóri af Jóni Gnarr.
• Borgarstjóri: Dagur B. Eggertsson
• Formaður borgarráðs: S. Björn Blöndal
• Forseti borgarstjórnar: Sóley Tómasdóttir
• Formaður stjórnkerfis- og lýðræðisnefndar: Halldór Auðar Svansson
• Formaður skóla- og frístundaráðs: Skúli Helgason
• Formaður velferðarráðs: Björk Vilhelmsdóttir fyrsta árið,
Ilmur Kristjánsdóttir tekur við að ári liðnu
• Formaður umhverfis- og skipulagsráðs: Hjálmar Sveinsson
• Formaður mannréttindaráðs: Líf Magneudóttir
• Formaður menningar- og ferðamálaráðs: Elsa Yeoman
• Formaður íþrótta- og tómstundaráðs: Þórgnýr Thoroddsen
VERKASKIPTING OG FORMENNSKA Í HELSTU
RÁÐUM OG NEFNDUM Í REYKJAVÍKURBORG:
NÝR BORGARSTJÓRI Það var S. Björn Blöndal sem kynnti Dag B. Eggertsson sem nýjan borgarstjóra í Reykjavík. Sóley Tómas-
dóttir og Halldór Auðar Svansson virtust ánægð með fyrirkomulagið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ Stjórnkerfi og lýðræði
Gagnsæi og aukið íbúalýðræði er eitt af meginverkefnum kjörtímabils-
ins. Markmiðið er að auka traust, bæta upplýsingamiðlun og hvetja til
lýðræðislegrar þátttöku.
■ Húsnæðismál
Borgin beiti sér fyrir því að 2.500–3.000 leigu- og búseturéttaríbúðir fari
í uppbyggingu í Reykjavík á næstu þremur til fimm árum. Uppbyggingin
verði blanda alls konar íbúða; almennra, stúdentaíbúða, íbúða fyrir fjöl-
skyldur og einstaklinga, íbúða fyrir fatlað fólk, heimilislausa og eldra fólk.
■ Bætt kjör barnafjölskyldna
Gjaldskrár verði samræmdar og einfaldaðar. Á árinu 2015 verður fjár-
magn til skóla og frístundasviðs aukið um 100 milljónir króna og árið
2016 verða settar 200 milljónir til viðbótar til lækkunar á námsgjöldum
í leikskólum. Einnig verði teknir upp systkinaafslættir þvert á skólastig.
Þá verði frístundakort hækkað um 5.000
krónur á barn, hvort ár.
■ Velferð
Áhersla verði lögð á einstaklingsbundinn
stuðning til sjálfshjálpar og virkni. Þeim
sem þarfnast fjárhagslegrar aðstoðar verði
boðin tækifæri til vinnu, náms, starfsendur-
hæfingar eða meðferðar. Vinnufærum
einstaklingum án atvinnu verði fundin störf
í samvinnu við atvinnulífið, eftir því sem
kostur er. Sérstök áhersla verði lögð á for-
varnir og virkni ungs fólks. Nauðsynlegt er
að auka fé til málaflokks fatlaðs fólks.
Punktar úr málefnasamningi
TEKIST Á Lögregla beitir táragasi gegn
mótmælendum í borginni Sao Paulo í
júní í fyrra. MYND/MÍDÍA NINJA
MANNRÉTTINDI Mótmælendur
í Brasilíu sem gripið hafa til
aðgerða í aðdraganda heims-
meistaramótsins í fótbolta eiga
á hættu að sæta ofbeldi af hálfu
lögreglu og hervaldsins. Þetta
segir Amnesty International.
Í nýrri skýrslu samtakanna
segir að notkun á táragasi og
gúmmíkúlum gegn mótmæl-
endum hafi átt sér stað sem og
handahófskenndar handtökur.
Samtökin segjast búast við því að
ekkert lát verði á slíku ofbeldi á
meðan á keppninni stendur. - bá
Óttast ástand í Brasilíu:
Mótmælendur
beittir ofbeldi
FÉLAGSMÁL Góðgerðarfélag
Menntaskólans í Reykjavík
færði á þriðjudag heilabilunar-
deild L4 á Landakoti rúmar sex
hundruð þúsund krónur að gjöf
til að bæta aðbúnað sjúklinga.
Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítala, tók við gjöfinni
frá þremur útskriftarnem-
um skólans. Fénu var safnað í
árlegri góðgerðarviku MR, þar
sem meðal annars var haldið
bingó og góðgerðarskemmtun.
Í tilkynningu spítalans segir
að framlag nemendanna fari
í að endurnýja ýmsan búnað
á deildinni, svo sem dýnur og
rúm. - bá
MR-ingar færa peningagjöf:
Landakot styrkt
um 600.000 kr.
NORÐURÞING Sjálfstæðisflokkur
og Vinstri græn hafa myndað
meirihluta í sveitarstjórn Norð-
urþings. Sjálfstæðisflokkurinn
hlaut þrjá sveitarstjórnarmenn
kjörna og Vinstri græn tvo.
Friðrik Friðriksson, oddviti
Sjálfstæðisflokks, verður for-
seti sveitarstjórnar. Óli Hall-
dórsson, oddviti VG, verður for-
maður Byggðaráðs.
Á síðasta kjörtímabili starf-
aði Sjálfstæðisflokkurinn í
meirihluta með Samfylkingu og
Framsóknarflokki. Sá meiri-
hluti hélt velli eftir síðustu
kosningar. Samfylkingin fékk
tvo sveitarstjórnarmenn kjörna
sem og Framsóknarflokkurinn.
-sa
Meirihluti í Norðurþingi:
Vinstri græn og
D-listi saman
JERÚSALEM, AP
Eldflaug grandaði einum
Einn lést og þrír aðrir slösuðust í
loftárás Ísraelsmanna á Gasa-svæðið í
gærkvöldi. Um er að ræða fyrstu mann-
skæðu átökin milli Ísraels og Palestínu
síðan nýmynduð ríkisstjórn Mahmouds
Abbas tók við stjórn Gasa-svæðisins
umdeilda.