Fréttablaðið - 12.06.2014, Side 74
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
Ég prófaði að vera
atvinnuíþróttamaður í
smástund en það hentar
mér betur að vera í námi.
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari
FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir,
Íslandsmethafi í spjótkasti, virðist
vera komin í gott form en hún kast-
aði 60,03 metra og endaði í þriðja
sæti á móti í Tékklandi á mánudag-
inn. Þetta var í fyrsta skipti sem
Ásdís kastar yfir 60 metra síðan
hún þeytti spjótinu 62,77 metra á
Ólympíuleikunum í London fyrir
tveimur árum en það er núgildandi
Íslandsmet.
Ásdís byrjaði síðasta ár vel og
kastaði yfir 59 metra á JJ-móti
Ármanns í Laugardalnum í apríl.
Hún náði svo fínu kasti upp á 59,97
metra í Svíþjóð en komst aldrei
yfir 60 metra múrinn, ekki einu
sinni á HM.
„Þetta var rosa gaman. Það er
búið að ganga mjög vel á æfing-
um en að gera þetta á móti er allt
annað. Þegar maður er að breyta
hlutum eins og ég hef verið að gera
þá er auðvelt að fara í sama farið
þegar maður er að keppa en sú var
ekki raunin núna,“ segir Ásdís.
Ásdís náði 60,03 metrum strax
í fyrsta kasti en það tók sinn tíma
fyrir hana að fá lengdina staðfesta.
„Þetta var svolítið fyndið. Þeir
voru rosalega lengi að mæla kast-
ið. Ég sá að spjótið var við 60 metra
línuna en vissi ekki hvorum megin.
Maðurinn sem var að mæla fór frá
spjótinu áður en það kom staðfest
lengd þannig að ég hélt að þeir
væru búnir að klúðra þessu og ég
fengi annað kast. Þeir voru alveg
þrír þarna og loks kom þetta þann-
ig það var smá spenna í kringum
þetta,“ segir Ásdís. Hvað er það
sem hún hefur verið að breyta og
bæta undir stjórn nýja þjálfarans,
Terrys McHughs?
„Það er aðallega stíllinn og
tæknin. Svo er ég búin að breyta
æfingaprógramminu aðeins. Ég er
að lyfta minna og gera fleiri tækni-
æfingar. Í rauninni er ég að setja
tækniæfingar í stað þeirra lyft-
ingaæfinga sem ég sleppi. Ég er
að vinna í meiri hraða og snerpu í
útkastinu,“ segir hún.
Settist ekki á sálina
Ásdís breytti um umhverfi á síð-
asta ári og fluttist til Zürich í Sviss
þar sem hún stundar doktorsnám
í lyfjafræði. Hún fékk sér einn-
ig nýjan þjálfara en þetta tvennt,
ásamt öðru, varð meðal annars til
þess að hún náði sér aldrei almenni-
lega á strik í fyrra. Hún segir það
samt ekki hafa sest á sálina að hafa
ekki náð kasti yfir 60 metrum.
„Nei, ég get ekki sagt það en
þetta var mjög svekkjandi. Ég vissi
alveg að ég gat meira en spjótið er
svolítið þannig að þó að þú vitir
að þú getir betur og þú átt að gera
betur þá er það endilega ekkert
alltaf þannig. Þetta settist ekki
beint á sálina því það voru mikl-
ar breytingar í gangi í mínu lífi,“
segir Ásdís og heldur áfram:
„Ég fór í doktorsnámið og skipti
um þjálfara. Þegar maður er orðinn
27 ára gamall og ætlar að breyta
um tækni þá tekur tíma að venjast
því. Það er ekki ætlast til að það
gangi í gegn ósjálfrátt. Mér gekk
vel á æfingum en ekki jafn vel
á mótum. Ég prófaði líka að vera
atvinnuíþróttamaður í smástund
en það hentar mér betur að vera í
námi eins og núna.“
Tvær ófrískar
Ásdís keppir næst á Demanta-
mótinu í New York á laugardaginn
sem Stöð 2 Sport sýnir frá í beinni
útsendingu. Henni var einnig boðið
á Demantamótin í Doha í Katar og
Róm á Ítalíu en varð að hafna boð-
inu þar sem það passaði ekki inn í
dagskrá hennar.
„Á eftir New York er næst keppt
í Lausanne en það kemur í ljós
síðar hvort ég fái boð þangað. Það
er náttúrlega ekki vitað hverjir
verða að toppa í kringum það mót.
Næst keppi ég í New York, svo er
EM landsliða í Georgíu og eftir það
ætla ég að taka mér smá hvíld frá
mótum og hlaða rafhlöðurnar. Ég
keppi svo á meistaramótinu heima
í júlí,“ segir Ásdís.
Stóra mótið í sumar er EM á
„heimavelli“ Ásdísar í Zürich en
hversu langt getur hún komist þar?
„Baráttan er mjög opin. Tvær af
þeim allra bestu eru báðar ófrísk-
ar sem opnar þetta mjög mikið.
Það eru rosalega margar að kasta í
kringum 62 metrana. Ef ég fer yfir
það verð ég kannski með fjórða til
fimmta besta kast ársins. Augljóst
markmið á EM er að fara í úrslit en
svo er erfitt að segja til um hvað
gerist. Nýtt Íslandsmet í úrslitum á
EM gæti dugað á verðlaunapall en
maður veit aldrei hvað hinar stelp-
urnar gera,“ segir hún.
Sem fyrr segir keppir Ásdís næst
á sjötta Demantamóti ársins í New
York á laugardaginn. Þar mætir
hún sjö öðrum konum. Sex þeirra
eiga lengra kast en hún á ferlinum
en fimm á þessu ári. tomas@365.is
Baráttan á toppnum orðin opnari
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir kastaði yfi r 60 metra á ný á móti í Tékklandi á mánudaginn. Það hafði hún ekki gert síðan á ÓL í
London. Hún er bjartsýn á gott sumar sem nær hámarki á EM í Zürich. Tvær sterkar verða ekki með vegna barneignaleyfi s.
GENGUR VEL Ásdís kastaði loks aftur yfir 60 metra á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
US Open hefst í dag!
Golfstöðin verður með beina útsendingu frá US Open risamótinu sem fer
fram á hinum sögufræga Pinehurst-golfvelli í Norður-Karólínu. Justin Rose
ætlar sér að verja titilinn í ár en bestu kylfingar heims gefa ekkert eftir.
Hver mun fara í sögubækurnar? Það verður mögnuð spenna fram að lokaholu!
Fimmtudag 17:00 - 23:00
Föstudag 17:00 - 23:00
Laugardag 17:00 - 23:30
Sunnudag 17:00 - 23:30
Save the Children á Íslandi