Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 16
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
HEILBRIGÐISMÁL Nokkuð algengt
er að sjúklingar fái ekki lyf sín
í tæka tíð vegna þess að birgðir
þeirra eru uppurnar í landinu.
Þetta á sérstaklega við um fólk
sem þarf að taka lyf sem fáir nota
dagsdaglega.
Leifur Bárðarson, staðgeng-
ill landlæknis, segir að þetta sé
gömul saga og ný. „Ég man ekki
eftir einu einasta ári öðruvísi en
að þetta komi upp.“
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær er ekki til neitt sam-
ræmt yfirlit fyrir birgðastöðu
lyfja í landinu. Lyfjafyrirtækin
uppfæra þó reglulega lista yfir
þau lyf sem vantar en þeim er ekki
skylt að gera það.
„Það væri mjög gott ef slíkt
kerfi væri til,“ segir Leifur. „Það
sem er flókið í þessu er að lyfja-
framleiðendur nota ekki sama
kerfi til að skrá sín lyf. Það er
ekki til neitt einsleitt kerfi sem
öllum framleiðendum ber að fara
eftir. Það er heldur ekki til neitt
einsleitt kerfi sem öllum apótek-
um er skylt að fylgja. Þar ræður
framboð og eftirspurn og allt þarf
að vera í útboði samkvæmt EES og
svo framvegis.“
Leifur segir að samræmt eftir-
litskerfi með lyfjabirgðum yrði
eflaust dýrt og flókið í framkvæmd.
Örar breytingar á lyfjamarkaði
geri eftirlit sömuleiðis flókið því
það lyf sem þykir lífsnauðsynlegt
einn daginn er kannski farið af
markaði þann næsta og annað lyf
komið í staðinn.
Gunnar Skúlason greindist með
ólæknandi sjúkdóm um tveggja
ára aldur sem gerir það að verkum
að hann þarf að taka lyf á þriggja
tíma fresti. Lyfið er undanþágulyf,
vegna lítillar notkunar hérlendis,
svo hann þarf að hringja á undan
sér og panta lyfið þegar birgðir
hans fara að klárast.
„Ég hef tekið sama lyfið í 26 ár
og það hefur alltaf verið nóg að
láta vita með þriggja daga fyrir-
vara,“ segir Gunnar. Í apríl var
lyfið þó ekki til hjá lyfjabirgja og
honum var sagt að rúm vika væri
þar til lyfið bærist til landsins.
Ástæðan fyrir lyfjaskortinum
var sögð sú að sala lyfsins hefði
óvænt farið umfram það sem vana-
lega tíðkaðist í aprílmánuði. Gunn-
ar átti ekki nægar birgðir fyrir
vikuna en var heppinn. „Það var
eitt apótek sem átti einn skammt
eftir, sem var algjör heppni.“
Ef lyfið hefði verið með öllu ófá-
anlegt hefði Gunnar orðið mjög
þreyttur og dofinn og meðal ann-
ars átt erfitt með að halda aug-
unum opnum. Gunnar segist hafa
breytt verklagi sínu vegna atviks-
ins og láti nú vita með tveggja
vikna fyrirvara ef hann fer að
skorta lyf.
snaeros@frettabladid.is
Ekkert sam-
ræmt kerfi
hjá apótekum
Einn lyfjaskammtur var eftir á landinu þegar maður
með vöðvasjúkdóm þurfti á lyfjum að halda. Algengt
að slík tilfelli komi upp, segir staðgengill landlæknis.
Samræmt yfirlit yfir lyfjabirgðir gæti leyst vandamálið.
EITT BOX EFTIR Ítrekað hafa komið upp atvik þar sem lyf klárast eða eru við það
að klárast þegar sjúklingar þurfa á þeim að halda.
HEILBRIGÐISMÁL Sænski stjórn-
málamaðurinn Bo Könberg legg-
ur til að Norðurlöndin verji tæpum
130 milljörðum króna á næstu
fimm árum til þróunar á nýjum
sýklalyfjum.
Þetta kemur fram í skýrslu um
norrænt samstarf í heilbrigðismál-
um sem Könberg skilaði af sér í
Ráðherrabústaðnum við Tjarnar-
götu í gær. Í skýrslunni eru fjór-
tán tillögur sem eiga að vera fram-
kvæmanlegar á fimm til tíu ára
tímabili. Brýnasta málefnið varð-
ar baráttuna gegn sýklalyfjaþoli.
Norræna ráðherranefndin á
sviði félags- og heilbrigðismála,
ásamt framkvæmdastjóra nefnd-
arinnar, fól Könberg að kanna
hvernig auka mætti norrænt sam-
starf um heilbrigðismál.
Tillögurnar fjórtán fjalla um
uppáskriftir fyrir sýklalyfjum,
Ný skýrsla um norrænt samstarf í heilbrigðismálum var kynnt í gær:
Milljarðar gegn sýklalyfjaþoli
SKÝRSLAN
AFHENT
Kristján Þór
Júlíusson
heilbrigðis-
ráðherra tók
við skýrslu
Bo Könberg
fyrir hönd
Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
SÝRLAND, AP Í sjö hundruð daga,
nærri tvö heil ár, var 65 ára kona
lokuð inni í íbúð sinni í Homs. Hún
komst hvergi vegna linnulausra
átaka milli stjórnarhersins og upp-
reisnarmanna.
Zeinat Akhras heitir hún og
starfaði sem lyfsali. Hún fékk
loksins frelsið í byrjun maí eftir að
umsátri stjórnarhersins lauk með
sigri á uppreisnarmönnum.
Hún fór afar sjaldan út fyrir
hússins dyr, líklega sex sinnum
þessa sjö hundruð daga, segir hún.
„Ég kom til baka afar döpur
eftir að hafa séð alla eyðilegg-
inguna. Þetta hverfi var alltaf fullt
af lífi,“ segir hún.
Þegar á leið segist hún hafa
forðast að líta í spegil, af ótta
við að hún myndi láta bugast ef
hún sæi hvaða áhrif einangrunin
hafði haft. Hún var 34 kíló þegar
umsátrinu lauk og ber þess enn
merki.
Tveir bræður hennar höfðust
einnig við í íbúðinni, en þeir hættu
sér út til að líta eftir fyrirtækjum
sínum og gæta kirkjunnar Mar
Elia, sem er í nágrenninu. Prestur
kirkjunnar hafði beðið systkinin,
sem eru kristinnar trúar, um að
gæta eigna kirkjunnar.
Framan af var umsátrið þolan-
legt vegna þess að systkinin höfðu
safnað matvælum og nauðsynj-
um. Þau áttu góðar birgðir af hrís-
grjónum, baunum, hveiti og elds-
neyti. Fáir íbúar borgarinnar,
aðrir en þeir uppreisnarmenn sem
tóku þátt í átökunum, héldu út til
enda. - gb
Kona á sjötugsaldri bjó við nánast algera einangrun meðan bardagar geisuðu í borginni Homs:
Innilokuð í íbúð sinni í sjö hundruð daga
ZEINAT AKHRAS ÁSAMT BRÓÐUR
SÍNUM AYMAN Hún er enn ekki nema
38 kíló, þrátt fyrir að hafa bætt á sig
fjórum eftir að umsátrinu lauk snemma
í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hallbjörn Hjartarson
tónlistarmaður hefur ákveðið að
áfrýja dómi Héraðsdóms Norður-
lands til Hæstaréttar.
Hallbjörn var í héraði dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir kynferð-
isbrot gegn tveimur drengjum.
Stefán Þórarinn Ólafsson,
lögmaður Hallbjarnar, segir að
áfrýjunin verði send Hæstarétti
á allra næstu dögum. Hann segir
að fyrir Hæstarétti verði krafist
sýknu en til vara verði krafist
vægari refsingar. - jme
Krafist verður sýknudóms:
Hallbjörn áfrýjar
til Hæstaréttar
mjög sérhæfðar meðferðir, sjald-
gæfa sjúkdóma, rannsóknir byggð-
ar á gögnum úr sjúkraskrám,
lýðheilsu, misrétti í heilbrigðis-
málum, hreyfanleika sjúklinga,
rafræna heilbrigðisþjónustu og
tæknimál, geðlækningar, viðbún-
að í heilbrigðismálum, lyf, starfs-
mannaskipti og sérfræðinga í lönd-
um ESB. - fb
Það var eitt apótek
sem átti einn skammt
eftir, sem var algjör
heppni.
Gunnar Skúlason