Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 74

Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 74
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 Ég prófaði að vera atvinnuíþróttamaður í smástund en það hentar mér betur að vera í námi. Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti, virðist vera komin í gott form en hún kast- aði 60,03 metra og endaði í þriðja sæti á móti í Tékklandi á mánudag- inn. Þetta var í fyrsta skipti sem Ásdís kastar yfir 60 metra síðan hún þeytti spjótinu 62,77 metra á Ólympíuleikunum í London fyrir tveimur árum en það er núgildandi Íslandsmet. Ásdís byrjaði síðasta ár vel og kastaði yfir 59 metra á JJ-móti Ármanns í Laugardalnum í apríl. Hún náði svo fínu kasti upp á 59,97 metra í Svíþjóð en komst aldrei yfir 60 metra múrinn, ekki einu sinni á HM. „Þetta var rosa gaman. Það er búið að ganga mjög vel á æfing- um en að gera þetta á móti er allt annað. Þegar maður er að breyta hlutum eins og ég hef verið að gera þá er auðvelt að fara í sama farið þegar maður er að keppa en sú var ekki raunin núna,“ segir Ásdís. Ásdís náði 60,03 metrum strax í fyrsta kasti en það tók sinn tíma fyrir hana að fá lengdina staðfesta. „Þetta var svolítið fyndið. Þeir voru rosalega lengi að mæla kast- ið. Ég sá að spjótið var við 60 metra línuna en vissi ekki hvorum megin. Maðurinn sem var að mæla fór frá spjótinu áður en það kom staðfest lengd þannig að ég hélt að þeir væru búnir að klúðra þessu og ég fengi annað kast. Þeir voru alveg þrír þarna og loks kom þetta þann- ig það var smá spenna í kringum þetta,“ segir Ásdís. Hvað er það sem hún hefur verið að breyta og bæta undir stjórn nýja þjálfarans, Terrys McHughs? „Það er aðallega stíllinn og tæknin. Svo er ég búin að breyta æfingaprógramminu aðeins. Ég er að lyfta minna og gera fleiri tækni- æfingar. Í rauninni er ég að setja tækniæfingar í stað þeirra lyft- ingaæfinga sem ég sleppi. Ég er að vinna í meiri hraða og snerpu í útkastinu,“ segir hún. Settist ekki á sálina Ásdís breytti um umhverfi á síð- asta ári og fluttist til Zürich í Sviss þar sem hún stundar doktorsnám í lyfjafræði. Hún fékk sér einn- ig nýjan þjálfara en þetta tvennt, ásamt öðru, varð meðal annars til þess að hún náði sér aldrei almenni- lega á strik í fyrra. Hún segir það samt ekki hafa sest á sálina að hafa ekki náð kasti yfir 60 metrum. „Nei, ég get ekki sagt það en þetta var mjög svekkjandi. Ég vissi alveg að ég gat meira en spjótið er svolítið þannig að þó að þú vitir að þú getir betur og þú átt að gera betur þá er það endilega ekkert alltaf þannig. Þetta settist ekki beint á sálina því það voru mikl- ar breytingar í gangi í mínu lífi,“ segir Ásdís og heldur áfram: „Ég fór í doktorsnámið og skipti um þjálfara. Þegar maður er orðinn 27 ára gamall og ætlar að breyta um tækni þá tekur tíma að venjast því. Það er ekki ætlast til að það gangi í gegn ósjálfrátt. Mér gekk vel á æfingum en ekki jafn vel á mótum. Ég prófaði líka að vera atvinnuíþróttamaður í smástund en það hentar mér betur að vera í námi eins og núna.“ Tvær ófrískar Ásdís keppir næst á Demanta- mótinu í New York á laugardaginn sem Stöð 2 Sport sýnir frá í beinni útsendingu. Henni var einnig boðið á Demantamótin í Doha í Katar og Róm á Ítalíu en varð að hafna boð- inu þar sem það passaði ekki inn í dagskrá hennar. „Á eftir New York er næst keppt í Lausanne en það kemur í ljós síðar hvort ég fái boð þangað. Það er náttúrlega ekki vitað hverjir verða að toppa í kringum það mót. Næst keppi ég í New York, svo er EM landsliða í Georgíu og eftir það ætla ég að taka mér smá hvíld frá mótum og hlaða rafhlöðurnar. Ég keppi svo á meistaramótinu heima í júlí,“ segir Ásdís. Stóra mótið í sumar er EM á „heimavelli“ Ásdísar í Zürich en hversu langt getur hún komist þar? „Baráttan er mjög opin. Tvær af þeim allra bestu eru báðar ófrísk- ar sem opnar þetta mjög mikið. Það eru rosalega margar að kasta í kringum 62 metrana. Ef ég fer yfir það verð ég kannski með fjórða til fimmta besta kast ársins. Augljóst markmið á EM er að fara í úrslit en svo er erfitt að segja til um hvað gerist. Nýtt Íslandsmet í úrslitum á EM gæti dugað á verðlaunapall en maður veit aldrei hvað hinar stelp- urnar gera,“ segir hún. Sem fyrr segir keppir Ásdís næst á sjötta Demantamóti ársins í New York á laugardaginn. Þar mætir hún sjö öðrum konum. Sex þeirra eiga lengra kast en hún á ferlinum en fimm á þessu ári. tomas@365.is Baráttan á toppnum orðin opnari Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir kastaði yfi r 60 metra á ný á móti í Tékklandi á mánudaginn. Það hafði hún ekki gert síðan á ÓL í London. Hún er bjartsýn á gott sumar sem nær hámarki á EM í Zürich. Tvær sterkar verða ekki með vegna barneignaleyfi s. GENGUR VEL Ásdís kastaði loks aftur yfir 60 metra á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP US Open hefst í dag! Golfstöðin verður með beina útsendingu frá US Open risamótinu sem fer fram á hinum sögufræga Pinehurst-golfvelli í Norður-Karólínu. Justin Rose ætlar sér að verja titilinn í ár en bestu kylfingar heims gefa ekkert eftir. Hver mun fara í sögubækurnar? Það verður mögnuð spenna fram að lokaholu! Fimmtudag 17:00 - 23:00 Föstudag 17:00 - 23:00 Laugardag 17:00 - 23:30 Sunnudag 17:00 - 23:30 Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.