Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 28
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
PAUL FRIÐRIK HÓLM
lést þann 8. júní síðastliðinn. Hann verður
jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju þann 14. júní
klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á björgunarsveitina Tinda í Hnífsdal,
kt. 500480-0339, bnr. 154-26-4350.
Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
HALLDÓRA G. EINARSDÓTTIR
Fífuseli 36,
áður til heimilis að Efstasundi 6,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 13. júní kl. 13.00.
Fyrir hönd vandamanna,
börn hinnar látnu.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJARGMUNDUR SIGURJÓNSSON
lést á Landspítalanum þann 8. júní.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 16. júní kl. 13.00.
Fanney Arnbjörnsdóttir og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEINGRÍMUR INGIMUNDARSON
Grýtu á Djúpavogi,
lést þann 5. júní á Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands á Höfn. Útför hans verður
frá Djúpavogskirkju laugardaginn 14. júní
kl. 14.00.
Ingimundur Steingrímsson Arnheiður Kristinsdóttir
Óskar Steingrímsson Sólrún Sverrisdóttir
Hafsteinn Steingrímsson Kristbjörg Eiríksdóttir
Ragnhildur Steingrímsdóttir Vilberg M. Ármannsson
Drífa Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ERNU GUÐMUNDSDÓTTUR
Jökulgrunni 26, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Guðrúnar Hjörleifsdóttur
og starfsfólks deildar A4 á Hrafnistu í
Reykjavík fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Gísli Kristjánsson
Guðrún Gísladóttir Halldór Þórðarson
Kristján Gíslason Ásdís Rósa Baldursdóttir
Guðmundur Torfi Gíslason Ragnheiður K. Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR
Fannborg 8, áður Vallartröð 6, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðviku daginn 4. júní. Útförin fer fram
frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 18. júní
kl. 13.00.
Jón Óskar Guðmundsson
Guðrún Hallfríður Bjarnadóttir Edward V. Kiernan
Sigríður Jónsdóttir Halldór G. Sigurþórsson
Jón Óskar Jónsson Jóhanna M. Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
HÓLMFRÍÐUR ELLERTSDÓTTIR
Austurbyggð 17, Akureyri,
er látin. Útför hennar fer fram 16. júní
kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á dvalarheimilið
Hlíð Akureyri.
Ellert Kárason Helga Gunnarsdóttir
Hildur Káradóttir Þórarinn Sigurðsson
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir minn,
tengdafaðir, afi okkar og langafi,
BALDUR EIRÍKUR JENSSON
múrari,
lést fimmtudaginn 5. júní á Dvalarheimilinu
Grund. Útför fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 13. júní kl. 13.00. Sérstakar
þakkir eru sendar til starfsfólks Grundar fyrir
vinarhug og góða umönnun. Aðstandendur þakka sýnda samúð.
Eyjólfur Baldursson Þórdís Sigurgeirsdóttir
Hólmfríður Rós Eyjólfsdóttir
Erla Eir Eyjólfsdóttir Michael Sheehan
Baldur Kári Eyjólfsson Hildur María Haarde
„Það er alveg bullandi húmor í okkur,
þetta verður mjög lifandi,“ segir Jón
Svavar, stjórnandi Bartóna, karlakórs
Kaffibarsins, en kórinn heldur sína
fyrstu sumartónleika í kvöld í Tjarn-
arbíói. „Við erum að bjóða vinum okkar
sem við höfum sungið inn á plötur með
að syngja með okkur,“ segir Jón Svav-
ar en meðal þeirra tónlistarmanna sem
koma fram í kvöld eru Emmsjé Gauti,
Original Melody og Mike Lindsay en
Bartónar hafa áður sungið bakraddir í
lögum þeirra listamanna. „Við höfum
verið að leggja meiri áherslu á sönginn
í vetur,“ segir kórstjórnandinn.
„Fyrst vorum við bara að gera þetta
á kúlinu, sem okkur fannst flottast þá
en svo þroskast allir og kórinn hefur
þroskast sem slíkur,“ segir Jón Svav-
ar og bætir því við að kórmeðlimir séu
orðnir mun betri söngvarar en þeir
voru áður. „Við höldum samt öllu hinu,
sviðsframkomu og okkar gleði.“
Bartónar skera sig út frá öðrum
hefðbundnum kórum á margan hátt
en kórinn hefur meðal annars skapað
sér siðareglur sem haldið er til haga.
„Við syngjum ekkert bull, við syngj-
um föðurlandslög og vísur sem höfða
til kvenþjóðarinnar,“ segi Jón Svavar.
„Við reynum að sneiða fram hjá trúar-
brögðum og pólitík þótt það detti inn
einstaka lög af því tagi,“ segir stjórn-
andinn en strákarnir syngja langmest
íslenska karlakórstónlist undirleiks-
laust. „Við stólum bara á það að við
skilum röddunum okkar nógu vel frá
okkur.“
Allur ágóði af tónleikunum rennur
beint til Stígamóta, samtaka gegn kyn-
ferðisofbeldi, en félögum kórsins er
mjög annt um þeirra starf. „Þetta er
eitthvað sem maður vill gefa gaum og
taka þátt í að styðja við,“ segir Jón. „Ef
maður getur gert eitthvað í þágu sam-
félagsins þá er um að gera að gera það,
þetta er spurning um málstað og að
taka þátt í kærleikanum í samfélaginu.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 í
Tjarnarbíói og kostar 1.500 krónur inn.
baldvin@frettabladid.is
Höfða til kvenþjóðarinnar
Bartónar kallast karlakór Kaffi barsins en þeir halda sína fyrstu sumartónleika í kvöld
ásamt fl eiri tónlistarmönnum og rennur allur ágóði beint til Stígamóta.
MEIRI SÖNGUR Kórinn hefur undanfarið lagt meiri áherslu á góðan söng.
Á þessum degi árið 1994 fundust Nicole
Brown Simpson og Ronald Goldman látin
á heimili sínu í Los Angeles í Kaliforníu en
þau höfðu verið myrt.
Ruðningsstjarnan, leikarinn og fyrr-
verandi eiginmaður Nicole, O.J. Simpson,
var ákærður fyrir morðin. Hann gaf sig ekki
fram við lögreglu sem endaði með eltingar-
leik lögreglu við O.J. sem var sýndur beint
í amerísku sjónvarpi. Eltingarleikurinn
og réttarhaldið gegn honum eru meðal
stærstu sjónvarpsviðburða í amerískri sjón-
varpssögu. Sýnt var beint frá réttarhöld-
unum sem voru jafnan nefnd Réttarhöld
sögunnar. Sýknuúrskurður vakti hörð við-
brögð og þótti auka kynþáttafordóma.
Árið 1997 var O.J. dæmdur ábyrgur
fyrir morðunum í einkamáli sem faðir
Ronalds höfðaði gegn honum. Hann komst
að mestu hjá því að greiða 33 milljóna
dollara skaðabætur til fjölskyldunnar vegna
verndar á eftirlaunagreiðslum. Hann hélt
því fyrri lífsstíl með greiðslum úr eftir-
launasjóði ruðningsmanna og flutti til
Miami í Flórída, þar sem ekki er löglegt
að taka heimili manneskju upp í greiðslu
skuldar. Goldman-fjölskyldan fékk þó
andvirði Heisman-verðlaunanna, sem O.J.
hlaut árið 1968, og þóknun sem Simpson
fékk fyrir að birtast í tölvuleik.
O.J. skrifaði bókina „Ef ég gerði það“ árið
2006. Útgefandinn hætti við útgáfu hennar
eftir mótmæli almennings. Gjaldþrotadóm-
stóll framseldi síðan útgáfuréttinn til
Goldman-fjölskyldunnar sem gaf bókinni
heitið „Ef ég gerði það: Játning morðingj-
ans“ og kom hún út árið 2007.
- lkg
ÞETTA GERÐIST: 12. JÚNÍ 1994
Nicole Simpson og Ronald Goldman myrt
Fyrst vorum við bara að
gera þetta á kúlinu, sem
okkur fannst flottast þá en
svo þroskast allir og kórinn
hefur þroskast sem slíkur.