Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.06.2014, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 12.06.2014, Qupperneq 36
12. JÚNÍ 2014 FIMMTUDAGUR4 ● HM-blaðið Lionel Messi hefur unnið allt sem hægt er að vinna, bæði sem einstaklingur og leikmaður Barcelona. En það vantar einn titil í safnið og þann stærsta að margra mati, sjálfan heimsmeistaratitilinn. Þess er enn beðið að Messi leiði Argentínu til sigurs á HM, líkt og maðurinn sem hann er oftast borinn saman við, Diego Maradona, gerði fyrir 28 árum í Mexíkó. Messi lék sinn fyrsta leik á HM þegar hann kom inn á sem varamaður í 6-0 sigri Argentínu á Serbíu og Svartfjallalandi árið 2006. Um leið og Messi kom inn á var myndavélunum beint upp í stúku þar sem Maradona stóð, íklæddur argentínsku lands- liðstreyjunni, brosandi út að eyrum eins og stoltur faðir. Messi var ekki lengi að láta að sér kveða og skoraði mark og átti stoðsendingu á þessum fyrstu 16 mínútum sínum á HM. Hann kom hins vegar ekkert við sögu þegar Argentína féll úr leik fyrir Þjóðverjum í átta liða úrslitum. Messi mætti svo aftur til leiks í Suður-Afríku fyrir fjórum árum, þar sem Maradona sjálfur stýrði argentínska liðinu. Framan af gekk allt vel en Argentína hljóp á þýskan vegg í átta liða úrslit- unum. Lokatölur urðu 4-0 í síðasta leik liðsins undir stjórn Maradona. Það væri hart að segja að Messi hefði verið slakur í Suður-Afríku, en honum mistókst að finna netmöskvana í fimm leikjum og þótt óreiðukennd leikaðferð Maradona hefði ekki hjálpað til, þá spilaði þessi frábæri leikmaður undir pari. Messi mistókst einnig að skora í Suður- Ameríkukeppninni 2011, en eftir að Alej- andro Sabella tók við sem þjálfari hefur Messi öðlast nýtt líf með argentínska landsliðinu. Sabella gerði hann að fyrirliða og síðan þá hefur Messi skorað 21 mark í 25 landsleikjum. Argentínski snillingurinn fær í sumar þriðja tækifærið til að sigra á HM. Messi býr yfir öllum heimsins hæfileikum, nú þarf hann bara að virkja þá á því stóra sviði sem HM er. Ronaldo og Messi báðir á höttunum eftir gullstyttunni eftirsóttu Þann 14. janúar opinberaði dómaranefnd FIFA listann yfir þá 25 dómara sem munu dæma á HM í Brasilíu. Dómararnir koma frá sex heimsálfum; fjórir frá Asíu, þrír frá Afríku, fimm frá Suður- Ameríku, þrír frá Norður- og Mið-Ameríku, einn frá Eyjaálfu og níu frá Evrópu. Ravshan Irmatov frá Úsbekistan er reynslu- mesti dómarinn á HM, þrátt fyrir að vera aðeins 36 ára gamall. Hann hefur dæmt 114 landsleiki og var yngsti dómarinn á HM í Suður-Afríku fyrir fjór- um árum. Þar dæmdi hann fimm leiki, þar á meðal opnunarleik mótsins og annan undanúrslita- leikinn. Irmatov þykir einna líklegastur til að dæma úrslitaleikinn á Maracana 13. júlí. Í því samhengi hefur einnig verið horft til Japanans Yuichi Nishi- mura, en hann mun dæma opnunarleik HM á milli Brasilíu og Króatíu. Nishimura dæmdi einnig í S-Afríku, meðal annars leik Hollands og Brasilíu í átta liða úrslitum, auk þess sem hann var fjórði dóm- ari í úrslitaleiknum sem Howard Webb dæmdi. Björn Kuipers þykir einnig líklegur kostur, en Hollendingurinn dæmdi úrslitaleik Álfukeppninn- ar fyrir ári og úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. Nafn Portúgalans Pedros Proenca hefur einnig verið nefnt, en hann hélt meðal annars um flautuna í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2012 og úrslitaleik EM sama ár. Sú staðreynd að Webb dæmdi úrslitaleikinn 2010 vinnur þó gegn Kuipers, Proena og öðrum evrópskum dómurum. Það er sömuleiðis ólíklegt að dómari frá Suður-Ameríku fái stóra tæki- færið, en 40 ár eru liðin frá því dómari frá sömu heimsálfu og HM er haldið í dæmdi úr- slitaleik. Argentínumaðurinn Nestor Pitana og Brasilíu- maðurinn Sandro Ricci eru reynsluminnstu dómar- arnir á HM, en þeir hafa báðir dæmt 38 landsleiki. Þeir þreyta frumraun sína á HM ásamt 17 öðrum dómurum. Áhorfendur ættu einnig að fylgjast með hinum mexíkóska Marco Rodríguez sem er afar spjaldaglaður. Rodríguez, sem er að fara á sitt þriðja HM, hefur gefið 51 rautt spjald í þeim 79 landsleikjum sem hann hefur dæmt á ferlinum. Mexíkóinn starfar sem prestur meðfram dómgæslunni. Dómararnir á HM Ravshan Irmatov Cristiano Ronaldo 29 ára Sporting CP: 31/5 Man. Utd: 292/118 246/252 Portúgal: 111/49 HM: 10/2 EM: 14/6 Lionel Messi 26 ára Barcelona: 425/354 Argentína: 86/38 HM: 8/1 S-Ameríku- keppnin: 10/2 Cristiano Ronaldo hefur, líkt og Lionel Messi, unnið allt sem einn knattspyrnumaður getur unnið. Og líkt og Messi hefur hann verið gagnrýndur fyrir að ná ekki þeim hæðum með landsliðinu sem hann hefur náð með félagsliðum sínum í gegnum tíðina. Það er þó ekki svo að Ronaldo hafi aldrei gert neitt með portúgalska landsliðinu. Þegar hann var 21 árs var hann búinn að spila til verðlauna á tveimur stórmótum. Fyrst á EM 2004, þar sem Ronaldo, þá 19 ára, skoraði tvö mörk í sex leikjum þegar Portúgal endaði í öðru sæti á heimavelli. Tveimur árum síðar á HM í Þýskalandi skoraði Ronaldo eitt mark í sex leikjum þegar Portúgal endaði í fjórða sæti. Hann var þó aðallega milli tann- anna á fólki vegna atviks í átta liða úrslitunum gegn Englandi, þar hann átti að hafa þrýst á dómarann, Horacio Elizondo, að gefa Wayne Rooney, samherja hans hjá Manchester United, rautt spjald eftir að sá síðarnefndi hafði traðkað á Ricardo Carvalho, varnarmanni Portúgal. Ronaldo tókst hins vegar ekki að fylgja þessari góðu byrjun með landsliðinu eftir. Hann var hálf- daufur á EM 2008, þar sem Portúgal féll úr leik í átta liða úrslitum, og náði sér heldur ekki á strik á HM í Suður-Afríku. Ronaldo skoraði aðeins eitt mark, í 7-0 sigri á Norður-Kóreu, og Portúgal féll úr leik fyrir Spáni í 16 liða úrslitum. „Hinn raunverulegi Ronaldo var ekki með á þessu móti,“ sagði Carlos Querioz, sem stýrði Portúgal á HM 2010. Eftir að Paulo Bento tók við af Querioz hefur spilamennska Ronaldos með landsliðinu farið batnandi. Hann var góður á EM 2012 og frammi- staða hans gegn Svíþjóð í umspilsleikjum um sæti á HM í Brasilíu síðasta haust var ógleymanleg, en hann skoraði öll fjögur mörk Portúgals í leikjunum tveimur. Ronaldo hefur átt glæsilegan feril og er fyrir löngu búinn að skrá sig í sögubækurnar. Hann getur skrifað enn einn kaflann í Brasilíu, þangað sem hann átti stærstan þátt í að koma portúgalska landsliðinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.