Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 48
12. JÚNÍ 2014 FIMMTUDAGUR16 ● HM-blaðið
Í A-riðli vinna Brassar en baráttan
um annað sætið verður milli Íslands-
vinanna í Króatíu og Mexíkó.
Spánverjar og Hollendingar verða
í tveimur efstu sætunum í B-riðli og
Kólumbía og Fílabeinsströndin rúlla
upp C-riðlinum.
D-riðillinn
verður jafn og al-
gjörlega vonlaust
að spá um úrslitin
þar. Ítalir gætu
unnið en meiðsli
Luis Suarez gætu
hjálpað Englendingum til að vinna
annað sætið.
Frakkar og Sviss bursta E-riðilinn
og flott frumraun Bosníu tryggir
þeim annað sætið í F-riðli, sem
Argentína sigrar í. Gana kemur á
óvart og fylgir Þjóðverjum úr G-riðli
(Ronaldo er enn meiddur). Belgar
taka Rússa með sér úr H-riðli.
Liðin fjögur sem komast í
undanúrslit verða Brasilía, Argentína,
Spánn og Þýskaland. Í undanúrslit-
um verða Suður-Ameríkuliðin sterk-
ari, Brasilía vinnur Þýskaland (sem
saknar Mario Götze) og Lionel Messi
kremur hjörtu Spánverja í tætlur og
fer á kostum þegar Argentína skýtur
heimsmeisturunum út úr keppninni.
Í úrslitaleiknum verður Martín
Gastón Demichelis hetja Argentínu-
manna þegar hann pakkar sókn-
djörfum Brössum saman. Messi
skorar í úrslitaleiknum og gengur
brosandi af leikvelli með styttuna í
vinstri hendinni.
Demichelis
verður hetjan
Arnar Björnsson
Þetta verður að sjálfsögðu afar for-
vitnilegt. Það hefur gengið á ýmsu
í aðdraganda mótsins sem tengist í
raun ekki fótbolta. Það er því meiri-
háttar að þetta er
loksins að hefjast.
Keppnin er
haldin í Brasilíu
í annað skiptið.
Árið 1950 ríkti
þjóðarsorg þegar
Úrúgvæ vann
Brassana í frægum
leik þegar rúmlega 200.000 manns
að því er talið er á Maracana sáu ein
óvæntustu úrslit í sögu keppninnar.
Nú er öldin önnur. Brassarnir ætla
sér sigur og ég er á því að það takist
með Luis Felipe Scolari við stjórnvöl-
inn. Hann var einmitt með liðið þegar
það varð heimsmeistari síðast árið
2002.
Ég tel að Argentína fari mjög langt
en ekkert Evrópulið hefur unnið
keppnina utan heimsálfunnar, undan-
tekning er auðvitað Spánn í Suður-
Afríku fyrir fjórum árum.
Ég tel að Lionel Messi og Neymar
gætu orðið stærstu leikmennirnir en
gríðarlegar væntingar eru gerðar til
þessara leikmanna.
Spænska liðið er helsta von
Evrópu en það eru kannski einna
helst Þjóðverjar sem gætu farið langt,
en varnarleikur liðsins er hins vegar
höfuðverkur.
Vonbrigðin verða einna helst Hol-
land og Ítalía. Hef ekki trú á að þessi
lönd komist langt.
Með öðrum orðum Brasilía
verður heimsmeistari í sjötta skipti og
Argentína er til vara hjá mér.
Brasilía tekur
þetta
Hörður
Magnússon
HM haldið í Mekka knatt-
spyrnunnar er eitthvað sem
getur ekki klikkað, undir-
búningurinn hefur kannski
ekki gengið þrautalaust
fyrir sig en ég tel þó alveg
ljóst að gestgjafinn mun
setja upp mikið „show“
fyrir okkur. Það hefur verið
venjan að „heima“-álfan geri vel og
það verður engin breyting á því í
þessari keppni.
Heimamenn og
Argentína eru þau lið sem
flestir tala um sem líklega
sigurvegara og það get ég
tekið undir en ég er einnig
sannfærður um að Spán-
verjar verða áfram í baráttu
um gullið á stórmótum.
Einhverjir halda því fram
að tími þeirra sé liðinn en þeir hafa
eignast nýtt líf með komu Diegos
Costa, sem gefur þeim nýjar víddir
í sóknarleik sinn. Frakkland, Þýska-
land, Síle og Belgía eru líka þjóðir
sem gætu farið langt en Argentína
er þó það lið sem ég tippa á að vinni
mótið. Þeir eiga besta knattspyrnu-
mann heims í Lionel Messi og það
er eitthvað sem segir mér að hann
taki ´86 Maradona á þetta og sigli
þessu heim nánast upp á sitt eins-
dæmi.
Vonbrigði er orð sem oft er nefnt
í sömu setningu og enska liðið og
á því verður ekki breyting í ár. Þeir
falla úr leik í 16 liða en gætu þó
slefað í 8 liða ef heppnin er með
þeim.
Mestu vonbrigðin verða þó Hol-
land þar sem liðið er í fyrsta lagi
ekki eins sterkt og sumir halda en
það sem er verra er að Van Gaal,
þjálfari þeirra, er upptekinn við
annað og stærra starf sem mun hafa
slæm áhrif á liðið.
Áfram HM!
Messi fetar í fótspor Maradona
Guðmundur
Benediktsson
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru NSAID lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar). Íbúfen er notað við
vægum til meðal miklum verkjum eins og höfuðverk, mígreni, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Ekki má taka Íbúfen: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir íbúprófeni, öðrum skyldum lyfjum eða einhverju hjálparefnanna. Þeir
sem fengið hafa ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli, útbrot með kláða eða ef varir, andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að hafa tekið íbúprófen eða skyld lyf. Þeir sem þjáðst hafa af sárum eða
blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) í tengslum við fyrri notkun bólgueyðandi verkjalyfja, þjást núna af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) eða hafa áður þjáðst af slíku, tvisvar
eða oftar, með alvarleg lifrar-, nýrna-, eða hjartavandamál (kransæðasjúkdómar meðtaldir), þeir sem þjást af umtalsverðum vökvaskorti (vegna uppkasta, niðurgangs eða of lítillar vökvaneyslu), eru með einhverjar
blæðingar (blæðingar í heila meðtaldar), eru með sjúkdóm af óþekktum uppruna sem leiðir til óeðlilegrar myndunar blóðfrumna. Sérstök varnaðarorð: Þeir sem eru með rauða úlfa (SLE) eða aðra sjálfsnæmissjúkdó-
ma, arfgengan sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðrauða, hemoglóbín (purpuraveiki), langvarandi bólgusjúkdóma í þörmum eins og bólgur í ristli með sárum (sáraristilbólgu), bólgur í meltingarvegi (Crohn´s) eða aðra
maga- eða þarmasjúkdóma, truflanir á blóðfrumnamyndun, vandamál tengd blóðstorknun, ofnæmi, ofnæmiskvef, astma, langvarandi bólgur í nefslímhúð, kinnbeinaholum, kokeitlum eða langvarandi teppusjúkdó-
ma í öndunarvegi, blóðrásarkvilla í slagæðum handleggja og fóta, lifrar-, nýrna- eða hjartavandamál eða háan blóðþrýsting, nýkomnir úr meiriháttar skurðaðgerð ættu ekki að nota lyfið. Meðganga/brjóstagjöf:
Íbúprófen má ekki taka á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Aðeins ætti að nota Íbúfen á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu í samráði við lækni og ef það er algerlega nauðsynlegt. Íbúprófen getur gert konum erfiðara með
að verða þungaðar. Þessi áhrif ganga til baka þegar hætt er að taka lyfið. Íbúprófen berst í brjóstamjólk í litlum mæli og brjóstagjöf þarf yfirleitt ekki að hætta meðan á
skammtíma meðferð stendur. Ef lengri tíma meðferð er áætluð, ætti að meta hvort hætta eigi brjóstagjöf. Aukaverkanir: Svartar, tjörukenndar hægðir eða blóðlituð
uppköst (sár í meltingarvegi með blæðingum), brjóstsviði, kviðverkir, meltingartruflanir, truflanir í meltingarfærum s.s. niðurgangur, ógleði, uppköst, vindgangur og
harðlífi, sáramyndun í meltingarvegi með eða án rofs, þarmabólga og versnandi bólga í ristli og meltingarvegi (Crohn´s) og pokamyndun í digurgirni (rof eða fistlar),
smásæjar blæðingar frá þörmum sem geta leitt til blóðleysis, sára og bólgu í munni, höfuðverkur, syfja, svimi, sundl, þreyta, æsingur, svefnleysi og viðkvæmni.
Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára (≥ 40 kg): 200-400 mg sem einn skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4-6 klst. millibili. Hámarks dags-
skammtur er 1200 mg. Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg, 1-3 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 600 mg á dag. Börn 10-12 ára (30-40 kg):
200 mg, 1-4 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 800 mg á dag. Sjá nánar í fylgiseðli. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema
í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Ágúst 2013.
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk
Íbúfen tæklar
verkinn