Fréttablaðið - 12.06.2014, Qupperneq 72
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
Mörkin: 0-1 Grétar Sigfinnur Sigurðsson (21.), 1-1
Ólafur Karl Finsen (38.), 2-1 Jeppe Hansen (41.).
STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 8 - Niclas Vem-
melund 6, Martin Rauschenberg 7, Daníel Laxdal
7, Hörður Árnason 6 - Arnar Már Björgvinsson 6
(83., Atli Freyr Ottesen-), *Michael Præst 8, Atli
Jóhannsson 6, Ólafur Karl Finsen 7 - Pablo Punyed
7, Jeppe Hansen 7 (83., Heiðar Ægisson-).
KR (4-3-3): Stefán Logi Magnússon 4 - Haukur
Heiðar Hauksson 5, Grétar Sigfinnur Sigurðsson
5, Aron Bjarki Jósepsson 4, Guðmundur Reynir
Gunnarsson 4 - Abdel-Farid Zato-Arouna 5 (59.,
Jónas Guðni Sævarsson 5), Egill Jónsson 5, (17.,
Þorsteinn Már Ragnarsson 5), Baldur Sigurðsson 4
- Almarr Ormarsson 4 (60., Gary Martin 7), Óskar
Örn Hauksson 6, Kjartan Henry Finnbogason 3.
Skot (á mark): 10-7 (6-6) Horn: 5-7
Varin skot: Ingvar 3 - Stefán Logi 4
2-1
Samsung-völlur
Áhorf: 1.313
Gunnar Jarl
Jónsson (7)
Mörkin: 0-1 Atli Guðnason (16.).
FJÖLNIR (4-3-3): *Þórður Ingason 8 - Árni
Kristinn Gunnarsson 5 (77. Viðar Ari Jónsson
-), Haukur Lárusson 5, Bergsveinn Ólafsson 6,
Gunnar Valur Gunnarsson 4 (89. Atli Már Þor-
bergsson) - Illugi Þór Gunnarsson 5, Gunnar Már
Guðmundsson 4, Guðmundur Karl Guðmundsson
6 - Ragnar Leósson 7, Júlíus Orri Óskarsson 4 (63.
Guðmundur Böðvar Guðjónsson 6), Christopher
Tsonis 4.
FH (4-3-3): Róbert Örn Óskarsson 7 - Sean
Reynolds 6, Pétur Viðarsson 7, Kassim Doumbia
7, Böðvar Böðvarsson 6 (71. Jón Jónsson -) - Sam
Hewson 6, Davíð Þór Viðarsson 7, Emil Pálsson
6 - Ólafur Páll Snorrason 6, Atli Guðnason 7 (77.
Kristján Gauti Emilsson -), Atli Viðar Björnsson 7
(82. Hólmar Örn Rúnarsson -).
Skot (á mark): 15-14 (5-8) Horn: 5-10
Varin skot: Þórður 7 - Róbert Örn 4
0-1
Fjölnisvöllur
Áhorf: 784
Erlendur
Eiríksson (7)
Mörkin: 1-0 Elís Rafn Björnsson (14.), 1-1 Guðjón
Pétur Lýðsson (33.).
FYLKIR (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 6 - Elís
Rafn Björnsson 6, Ásgeir Eyþórsson 5, Stefán
Ragnar Guðlaugsson 6, Tómas Joð Þorsteinsson
4 - Oddur Ingi Guðmundsson 5, Daði Ólafsson
4 (77., Gunnar Örn Jónsson -), Ragnar Bragi
Sveinsson 4 (82., Sadmir Zekovic -) - Andrés Már
Jóhannesson 3 (60., Davíð Þór Ásbjörnsson 5), Ás-
geir Örn Arnþórsson 5, Hákon Ingi Jónsson 4.
BREIÐABLIK (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 7
- Höskuldur Gunnlaugsson 5, Damir Muminovic 6,
Elfar Freyr Helgason 5, Arnór Sveinn Aðalsteins-
son 4 (86., Jordan Halsman -) - Stefán Gíslason 3,
Finnur Orri Margeirsson 5, Elvar Páll Sigurðsson 5
(82., Ellert Hreinsson -) - *Guðjón Pétur Lýðsson
8, Tómas Óli Garðarsson 6, Elfar Árni Aðalsteins-
son 5 (89., Páll Olgeir Þorsteinsson -).
Skot (á mark): 7-12 (5-3) Horn: 8-7
Varin skot: Bjarni Þórður 2 - Gunnleifur 3
1-1
Fylkisvöllur
Áhorf: 1.303
Valdimar
Pálsson (6)
Brasilíumaðurinn Pelé er eini leikmaðurinn í sögu HM sem hefur orðið
heimsmeistari þrisvar en hann varð heimsmeistari 1958, 1962
og 1970. Pelé var í risahlutverki á HM 1958, þá aðeins 17 ára,
en hann skoraði þá sex mörk í þremur leikjum útslátt-
arkeppninnar, eina markið í 1-0 sigri á Wales í átta liða
úrslitunum, þrennu í 5-2 sigri á Frökkum í undanúrslit-
unum og tvö mörk í 5-2 sigri á Svíum í úrslitaleiknum.
Pelé meiddist í öðrum leiknum á HM 1962 og spilaði
ekki meira með á því móti en hann var allt í öllu þegar
Brassarnir unnu Jules Rimet-styttuna til eignar á HM
í Mexíkó 1970. Pelé var þá með fjögur mörk og fimm
stoðsendingar í sex leikjum. Þar af átti hann beinan
þátt í þremur af fjórum mörkum liðsins í 4-1 sigri á
Ítalíu í úrslitaleiknum.
FÓTBOLTI Biðin er loks á enda en úr-
slitakeppni HM 2014 hefst í Brasilíu
í dag er gestgjafarnir mæta Króatíu í
opnunarleik keppninnar í Sao Paulo.
Mótinu lýkur svo með úrslitaleiknum
sem fer fram á hinum sögufræga
Maravana-leikvangi í Rio de Janeiro
þann 13. júlí.
Fram undan er mikil knatt-
spyrnuveisla og með Fréttablaðinu
í dag fylgir glæsilegt aukablað
um heimsmeistarakeppnina
í knattspyrnu. Þar má finna
leikjadagskrá keppninnar
ásamt ítarlegri umfjöllun um
keppnina alla. Fjallað er um
helstu stjörnurnar og leikmenn sem
vert er að fylgjast með. Sagan er
rifjuð upp og spekingar spá í spilin.
Sýnt verður beint frá keppninni
á RÚV og Stöð 2 Sport. Fyrstu tvær
umferðir riðlakeppninnar verða
fyrstu tvær viðureignir dagsins á
RÚV en kvöldleikurinn í beinni
útsendingu Stöðvar 2 Sports, strax
að lokinni HM-messunni með Guð-
mundi Benediktssyni. Þar gerir hann
upp leiki dagsins hverju sinni og fær
til aðstoðar við sig helstu fótbolta-
sérfræðinga landsins. HM-messan
verður á dagskrá út alla heimsmeist-
arakeppnina. - esá
Allt um HM í fylgiriti Fréttablaðsins HM-blaðiðFIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
SPORT
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
MÓTIÐ BYRJAR Í DAG
Allt sem þú þarft ...
* Skv. fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, jan–mar 2014.
Sami fjöldi kemur til með að sækja opnunarleik
HM í knattspyrnu í Sao Paulo í Brasilíu.
Lesendur Fréttablaðsins
í aldurshópnum 12-80
ára eru 61 þúsund fleiri á
landinu öllu en lesendur
Morgunblaðsins.*
HANDBOLTI Stelpurnar okkar verða
ekki meðal þátttökuliða í loka-
keppni EM sem fer fram í Króa-
tíu og Ungverjalandi í lok árs.
Þetta varð ljóst eftir að Slóvakía
gerði jafntefli við Frakka á heima-
velli, 24-24, í gær og náði þar með
þriggja stiga forystu á Ísland fyrir
lokaumferðina.
Íslensku stelpurnar unnu á sama
tíma öruggan stórsigur á Finnum,
29-20, en Ísland situr eftir í þriðja
sæti riðilsins með fjögur stig fyrir
lokaleikinn gegn Slóvakíu í Laug-
ardalshöll á sunnudag. Frakkar
voru búnir að tryggja sér áfram-
haldandi þátttöku og dugði jafn-
teflið í gær til að tryggja sigurinn
í riðlinum.
Einu stigin sem Ísland hefur
fengið í riðlinum komu gegn botn-
liði Finna. Liðið tapaði tvívegis
fyrir sterku liði Frakka en mestu
munaði um eins marks tap fyrir
Slóvakíu ytra, 19-18, í október síð-
astliðnum.
Slóvakar eru afar öflugir
„Við vorum hársbreidd frá því að
ná í stig í þeim leik,“ sagði Ágúst
Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari
við Fréttablaðið eftir leikinn í gær.
„Sumir vildu meina að Slóvakía
væri ekki með sterkt lið en úrslit-
in gegn Frökkum sýna hversu öfl-
ugir Slóvakar eru. Það er mjög
erfitt að spila á þeirra heimavelli
fyrir framan troðfullt hús,“ bætir
Ágúst við.
Slóvakar mæta því hingað til
lands um helgina án þess að hafa
að nokkru að keppa. Úrslitin í riðl-
inum eru ráðin og niðurröðun lið-
anna mun ekki breytast eftir loka-
umferðina.
„Við ætlum okkur að koma inn
í þann leik af fullum krafti. Við
ætlum okkur sigur og klára verk-
efnið með sæmd,“ ítrekar lands-
liðsþjálfarinn en hann hrósaði
sínum leikmönnum fyrir sigurinn
á Finnum í gær.
Vantaði marga lykilmenn
„Vissulega er getumunur á lið-
unum en við nýttum breidd leik-
mannahópsins vel og allir leik-
menn stóðu sig með prýði. Það var
bara fúlt að fá tíðindin frá Slóv-
akíu strax eftir leikinn,“ sagði
Ágúst, sem ætlar að halda ótrauð-
ur áfram með landsliðið.
„Ég er með samning til 2016 og
verð því áfram,“ segir hann. „Auð-
vitað voru það vonbrigði að komast
ekki upp úr riðlinum eins og við
stefndum að en þetta varð niður-
staðan. Það hefur gengið á ýmsu
en síðan ég tók við hafa aldrei
verið jafn miklar sveiflur á lands-
liðshópnum og nú. Líklega eru tíu
leikmenn ekki með nú sem voru
með í fyrsta leik í undankeppninni
og vantar okkur nú marga lykil-
menn í hópinn.“
Steinunn frábær
Meðal þeirra leikmanna sem fengu
tækifæri til að sýna sig og sanna
í gær var hornamaðurinn Stein-
unn Hansdóttir. Hún skoraði fimm
mörk og var markahæst ásamt
Hildigunni Einarsdóttur.
„Steinunn stóð sig frábærlega
og er án nokkurs vafa framtíðar-
leikmaður landsliðsins. Við höfum
lengi fylgst með henni,“ sagði
Ágúst en Steinunn hefur nánast
alla sína ævi búið í Danmörku.
Steinunn, sem leikur með Skander-
borg í næstefstu deild í Danmörku,
á þó íslenska foreldra.
eirikur@frettabladid.is
Sigur dugði ekki til
Ísland fer ekki á EM í handbolta þrátt fyrir að stelpurnar okkar hafi unnið örugg-
an sigur á Finnum ytra í gær. Slóvakía tryggði sér farseðil á EM með því að ná
jafntefl i gegn Frökkum á heimavelli á sama tíma. Ein umferð er eft ir í riðlinum.
SKORAÐI FJÖGUR Þórey Rósa Stefánsdóttir var meðal markahæstu leikmanna Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI