Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 104
Ásdís Rán
Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir vakti athygli í vik-
unni þegar þáttur hennar Heimur Ísdrottn-
ingarinnar var frumsýndur á Stöð 2. Ásdís
er landsmönnum vel kunn fyrir lífsgleði
sína og störf á fleiri en einum vettvangi.
Hún er engri annarri lík, hún hefur
troðið sína eigin slóð. Mjög dugleg í að
koma sér á framfæri og lætur engan
segja sér fyrir verkum. Hún hefur alveg
gríðarlegan húmor
fyrir sjálfri sér og
samkvæm sjálfri
sér. Hún er voða
lítið „outgoing“
en þegar hún fer
út þá fer það ekk-
ert á milli mála.
Heads will turn.
Alexander
Kirchner, vinur.
NÆRMYND
Hún er náttúrulega bara mjög hæfi-
leikarík og dugleg stelpa. Hún kemst
það sem hún ætlar sér.
Ég er bara mjög ánægð
með hana eins og hún
er, mig grunaði nátt-
úrulega alltaf að hún
myndi ná langt.
Eygló Gunnþórs-
dóttir, móðir.
Ásdís er ótrúlega sjálfstæð og hefur
alla tíð farið sínar eigin leiðir. Oft
svolítið skemmtilegar leiðir sem eru
ögrandi fyrir hið „venjulega“ fólk. Við
erum búnar að vera vinkonur síðan við
vorum unglingar, ekki alltaf verið sam-
mála um allt en það er svolítið erfitt að
vera ósammála henni –
hún er alltaf skemmti-
leg og hress. Hún er og
verður bara hún og
mun örugglega halda
því áfram um ókomna
tíð. Hún stjórnast ekki
af áliti annarra og fer
sínar eigin leiðir.
Auður Eva Auðuns-
dóttir, vinkona.
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
THE MORE YOU USE IT
THE BETTER IT LOOKS