Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 91

Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 91
LAUGARDAGUR 14. júní 2014 | LÍFIÐ | 55 ? Ég hef velt einu fyrir mér og rætt við marga stráka og vinkonur mínar en hvað er þetta með að stelpur megi ekki kúka? Margar vinkonur mínar tala um að þær varla prumpi fyrir framan kærastann sinn og ekki séns að fara á klósettið með hann inni á salerninu en ég skil þetta ekki. Ég held þær haldi að þá verði þær ekki lengur kynverur í þeirra augum (sagði ein vinkona mín orð- rétt). Veistu hvaðan þetta kemur og er þetta algengt viðhorf? ● ● ● SVAR „Sætar stelpur hafa ekki hægðir“ sönglaði, eða öllu heldur öskraði, hljómsveitin Botnleðja fyrir um tuttugu árum. Mér hefur alltaf þótt þetta mjög merkilegt fyrirbæri og hélt, eins og þú, að þetta væri bundið við minn vin- konuhóp eða karlmenn sem búa í póstnúmerinu 101. Nú bara nýlega las ég pistil af þekktu bandarísku „mömmubloggi“ þar sem þetta var listað sem eitt af því allra heilag- asta. Það mátti ekki tala um kúk, prump, viðurkenna að kúka eða hafa makann inni á salerninu á meðan einhvers konar salernis- tengd hegðun var viðhöfð. Sam- kvæmt þeirri úttekt þá var það gert til að viðhalda einhvers konar „dulúð“. Einmitt. Stelpur, sérstak- lega ekki sætar stelpur, kúka ekki og prumpa bara blómalykt. Meira að segja dömurnar í Beðmálum í borginni féllu í þessa gildru. Ég hef líka sérstaklega gaman af þessum ótta í aukinni umræðu um endaþarmsörvun því margir virðast halda að rassinn sé eins og hnappur sem hægt sé að panta hægðir úr. Þetta fer því ekki saman. Ef þú potar í rass þá sprengist ekki á þig saur (nema viðkomandi þurfi einmitt að hafa hægðir á þeim tíma- punkti) en samt þurfa allar mann- eskjur á einhverjum tímapunkti að hafa hægðir. Ég held að þetta sé úrelt mýta sem haldið er á lofti af stúlkum sem leiðist að tala um hægðir. Ekkert dýpra eða flóknara. Það get ég svo sem vel skilið. Mér finnast hægðir leiðinlegt umræðuefni og ég finn ekki þörf til að ræða það sérstak- lega við maka minn, en ég get það samt ef ég þarf þess. Þegar ég var rétt um tvítugt skrifaði ég pistil um stúlkur og „númer tvö“ og eftir birtingu hans var ég ítrekað kölluð „kúkastelpan“ þegar ég fór að skemmta mér. Í því leynist mikil kaldhæðni því ég ein- mitt sönglaði hvað manna hæst með þessu annars ágæta lagi Botnleðju. En þetta var fyrir rúmum tíu árum. Nú veit ég betur og á vinkonur sem deila með mér sorgum og sigrum á salerninu og maka sem fetta ekki fingur út í stóran bunka af fem- ínísku lesefni við klósettskálina. Áfram veginn segi ég alltaf, opnum umræðuna og eyðum mýtum. Allir kúka einhvern tíma, helst reglu- lega, annars getur það verið merki um að eitthvað sé að. Sjáðu bara drottninguna Oprah, hún hefur gert heilu sjónvarpsþættina um hægðir, bæði sínar og annarra. Stelpur mega ekki kúka E N N E M M / S ÍA / N M 6 0 2 9 4 www.samskip.is > Vel sjóaðir reynsluboltar Saman náum við árangri Þeir ná lengst sem sækja fram með samstilltum hætti og fylgja sendingum eftir alla leið. Samskip eru stoltur bakhjarl íslenska handboltalandsliðsins. Áfram Ísland! KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is Leikkonan Amber Heard hefur eytt miklum tíma með börnum Johnny Depp undanfarið og er orðin partur af fjölskyldunni. Depp á börnin Lily-Rose 14 ára og Jack 12 ára með fyrrverandi sambýliskonu sinni, Vanessu Paradis. Depp og Heard trúlofuð- ust í byrjun árs. Samkvæmt heimildum Radar- Online hefur leikarinn vinsæli sóst mjög eftir því að Heard og börnin tengist og því skipulagt helgarferðir fyrir þau öll saman. Á parinu er 23 ára aldurs munur. Þau munu væntanlega ganga í það heilaga á næstu mánuðum. Tengist börnunum STJÚPMAMMA Amber Heard er að tengjast börnum Johnny Depp. NORDICPHOTOS/GETTY „Við stefnum á að fara um allt landið í sumar og erum að fara í fyrsta hluta ferðalagsins í vik- unni,“ segir tónlistarmaður- inn Eyþór Ingi Gunnlaugsson en hann og hljómsveitin hans, Atóm- skáldin, leggja í tónleikaferðalag um landið í vikunni. Þeir félagar hafa leigt Liner- hljómsveitarrútuna og ætla að búa þar í viku. „Við munum búa saman í rútunni í viku, það verður mjög skemmtilegt og fróð- legt,“ bætir Eyþór Ingi við. Eyþór Ingi og Atómskáldin koma fram á fimm tónleikum á fimm dögum og hefst ferða lagið á Gauknum á mánudagskvöld og halda þeir svo norður. Þeir koma fram á Akureyri á 17. júní, á Húsavík 18. júní, á Sauðárkróki 19. júní og í Hofi á Akureyri þann 20. júní. Eyþór Ingi og Atómskáldin ætla að flytja lög af samnefndri plötu, en auk þess ætla þeir félagar að frumflytja nýtt efni. Þá ætlar hljómsveitin einnig að spila nokkur lög með hljóm- sveitum á borð við Muse, Jeff Buck- ley, Radiohead og The Smiths. „Við lofum mögnuð- um tónleikum,“ bætir Eyþór Ingi við. - lkg Eyþór Ingi býr í rútu í viku EYÞÓR INGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.