Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 40
FÓLK|HELGIN Fastur punktur hjá mörgum ferðamönnum er að gæða sér á bröns eða blöndu af síðbúnum morgunverði og snemmteknum há- degisverði. Á íslensku er það kallað dögurður og getur verið samtíningur af ótalmörgu. Á Texasborgurum við Grandagarð er ekki verið að flækja málin heldur boðið upp á ekta amer- ískan bröns um helgar frá 11-16 eins og á dæner í Texas. „Ég fer alltaf á dæner undir hádegi þegar ég er í Bandaríkjunum,“ segir Magnús Ingi Magnússon veitinga- maður. „Þessi ameríski siður með brönsinn er alveg frábær.“ Hann ákvað því að bjóða sjálfur upp á uppáhaldið sitt hér heima, en ekki bara fyrir ferðamenn heldur einnig Íslendinga, sem eru margir hverjir komnir á bragðið. „Þú velur annaðhvort tilbúna samsetta rétti eða færð þér pönnu- kökur með hlynsírópi og velur svo annað sem þú vilt á diskinn eftir svengd og smekk,“ segir Magnús Ingi. „Þetta þekkja allir Ameríkanar og æ fleiri Íslendingar, enda verður sífellt algengara að vinir og fjöl- skyldur hittist yfir löngum dögurði á laugardegi eða sunnudegi.“ Kræs- ingarnar sem boðið er upp á, verðið og fyrirkomulagið á Texasborgurum ætti að ýta enn frekar undir það. Í rammanum sést úrvalið sem er á boðstólum. Á vefsíðunni texasborgarar.is og á Facebook er meðal annars að finna matseðilinn og nýjustu tilboðin á Texasborgurum. BRÖNSINN Á TEXASBORGURUM San Antonio-bröns og kaffi | 690 kr. Texas-pönnukökur með hlynsírópi. Amarillo-bröns og kaffi | 990 kr. Texas-pönnukökur, hlynsíróp og kara mellíseruð epli með kanil. Austin-bröns og kaffi | 1.290 kr. Texas-pönnukökur, hlynsíróp og bláber með vanilluís. Dallas-bröns og kaffi | 1.290 kr. Texas-pönnukökur, hlynsíróp, beikon, tómatur, rauðlaukur og tvö steikt egg. Houston-bröns og kaffi | 1.890 kr. Texas-pönnukökur, hlynsíróp, beikon, steiktar pylsur, steiktar kartöflur, bakaðar baunir, tómatur, rauðlaukur og tvö steikt egg. AÐ EIGIN VALI OG AUKALEGA Bakaðar baunir | 290 kr. Beikon | 290 kr. Steikt egg | 290 kr. Steiktar kartöflur | 390 kr. Steiktar pylsur | 490 kr. EKTA AMERÍSKUR BRÖNS MEÐ ÖLLU TEXASBORGARAR KYNNA Amerísku pönnukökurnar á Texasborgurum með hlynsírópi og alls konar girnilegu góðgæti draga marga að í bröns um helgar. Fjölskyldur hittast og eiga góða stund á Texasborgunum. ALVÖRU BRÖNS Pönnukökurnar á Texasborgurum eru með hlynsírópi og alls konar girnilegu góðgæti. MYND/GVA AMARILLO-BRÖNS Texas-pönnukökur, hlynsíróp og karamellíseruð epli með kanil. DALLAS-BRÖNS Texas-pönnukökur, hlynsíróp, beikon, tómatur, rauðlaukur og tvö steikt egg. FRÁBÆRT ÚRVAL Bröns fyrir alla aldurs- hópa á Texasborgurum. af Dallas- bröns með kaffi milli 11 og 16 laugardaga og sunnudaga gegn fram- vísun þessa miða. Aðeins 1.290 kr. fyrir tvo. Gildir til 31. júlí 2014. Texasborg- arar.is s: 517-3130 2 FYRIR 1 Hvað er það sem þú gerir alltaf um helgar? Ég vinn flestar helgar. Ég sé um að skipuleggja viðburði fyrir nánast alla stærstu skemmtistaði landsins og er auk þess plötusnúður. Helgarnar eru því mínir aðalvinnudagar. Þegar tími gefst stunda ég líka heilmikla líkamsrækt á laugardögum en sunnudagarnir fara í afslöppun. Hvað ætlar þú að gera sérstakt um þessa helgi? Þessa helgi er allt í gangi. Ég spilaði á Kótelett- unni á Selfossi í gærkvöldi og í kvöld verð ég á Bíladögum á Akureyri þar sem ég mun spila í Sjallanum með Muscleboy og Love Guru. Dagurinn fer því að mestu í undirbúning því ég legg mikinn metnað í það sem ég tek mér fyrir hendur. Hvar finnst þér best að vera um helgar? Heima er best, alltaf. En þær helgar sem ég er heima fyrir eru of fáar. Vakirðu fram eftir um helgar? Já, ég geri það, jafnvel þótt ég sé ekki að vinna. Þá leyfi ég mér að vaka lengur bara af því ég veit að það er komin helgi. Ég er þá ekkert að gera neitt sérstakt. Ég er mikill dundari og finn mér alltaf eitthvað til dundurs. Sófinn er líka vin- sæll. Það tekur mig yfirleitt tvo til þrjá tíma að ná mér niður eftir gigg og geta þá gengið til hvílu. Ég fer því mjög seint í háttinn um vinnuhelgar. Ertu árrisull eða sefurðu út? Það fer eftir hvað ég var að gera. Um fríhelgar reyni ég að vakna snemma og nýta daginn. Ef ekki, næ ég mér í allan þann svefn sem ég þarf. Ég byrja svo yfirleitt dag- inn á því að fara í ræktina og verð þannig orku- meiri yfir daginn. Hver er draumamorgunverðurinn? Ætli það sé ekki egg og beikon. Hvernig er dæmigert laugardagskvöld í þínu lífi? Ég fæ mér yfirleitt eitthvað gott að borða og síðan hefst undirbúningur undir kvöldið. Ef ég á tíma aflögu hitti ég góða vini og fer svo að skemmta þar sem ég er bókaður. Þar legg ég mig allan fram og spila yfirleitt fyrir mörg hundruð manns fram á rauðanótt. Ertu með nammidag og hvert er uppáhaldssælgætið? Ég er algjör sælkeri en reyni að hafa einn nammidag í viku, á sunnudögum. Ég elska súkkulaði og hlaup. Uppáhaldsnammið er allt hlaup frá Haribo. Annars er ég líka mikið í snakk- inu, helst Doritos, það klikkar aldrei. Ætli ég fái mér ekki Doritos einu sinni í viku. Klæðirðu þig í betri gallann um helgar? Ég reyni að vera í betri gallanum eins oft og ég get, alla daga vikunnar, en er þó klárlega ögn fínni í tauinu um helgar. Heldurðu hvíldardaginn heilagan? Það má segja það. Sunnudagur er minn hvíldardagur. Ég fer oftast út að borða með kærustunni og skipu- legg daginn eins vel og ég get til að fá sem mest út úr honum. Ferðu til kirkju eða hlustar á útvarpsmessuna á sunnudögum? Nei, það geri ég nú ekki en kannski maður ætti að fara að hjóla í það. Til hvers eru helgarfrí, að þínu mati? Helgarfrí eru til að slappa af, gera hluti sem maður gerir ekki hina dagana og jafnvel lyfta sér aðeins upp. Þegar ég fæ heila helgi í frí þá nýti ég hana til fulls. ■ thordis@365.is FER SEINT Í HÁTTINN HELGIN Ólafur Geir Jónsson, plötusnúður og fyrrverandi herra Ísland, verður á ferð og flugi um helgina og tryllir Akureyringa í kvöld sem DJ Óli Geir. SVALUR Óli Geir er vel á sig kominn enda duglegur að rækta líkama og sál til að takast á við verkefni næturvinnunnar um helgar. MYND/JÓN ÓSKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.