Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 80
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 44TÍMAMÓT
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ERLINGUR HELGI EINARSSON
bókbindari og hljómlistarmaður,
varð bráðkvaddur á heimili sínu. Útförin
fer fram frá Kópavogskirkju þann 19. júní,
kl. 13.00.
Björn Erlingsson Lilja Þorgeirsdóttir
Guðbjörg Erlingsdóttir Magnús Arinbjarnarson
Guðfinna Ósk Erlingsdóttir Roberto Pisano
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐLAUG GUÐLAUGSDÓTTIR
lést á Hrafnistu Reykjavík 5. júní. Hún verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
20. júní kl. 13.00.
Auður Eyþórsdóttir Rasmussen Björn Rasmussen
Herdís Eyþórsdóttir Vilhjálmur Friðþjófsson
Hörður B. Níelsson Sigurlaug Ragnarsdóttir
Gísli Níelsson Árnína L. Sigtryggsdóttir
Kristborg Níelsdóttir Guðmundur R. Ragnarsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samhug, stuðning og hlýju við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR EINARSDÓTTUR
Þangbakka 10.
Einar Hafsteinsson Ásrún Hauksdóttir
Sævar Þór Magnússon Guðrún Jónsdóttir
Helga Rós, Guðrún Ósk, Haukur Magnús, Kristín Ósk,
Elvar Þór,
Brynja, Atli, Ragnhildur Sóley og Marinó Freyr
MERKISATBURÐIR
1789 Viskí bruggað úr maís í fyrsta skipti. Bruggarinn, séra Elijah
Craig, nefnir það „Bourbon“ í höfuðið á heimasýslu sinni, Bourbon-
sýslu í Kentucky.
1939 Action Comics gefur út fyrsta Superman-teiknimyndablaðið.
1940 París fellur Þjóðverjum í skaut í síðari heimsstyrjöldinni.
1942 Anna Frank byrjar að halda dagbók.
1949 Þyrlu var flogið yfir Íslandi í fyrsta sinn. Þyrlan var af Bell-gerð
og átti að prófa hana í björgunarstörf og strandgæslu.
1975 Smyrill, ferjan milli Færeyja og Íslands, kemur til lands í Seyðis-
firði í fyrsta skipti.
Rússneski kaupmaðurinn Grigory Shelik-
hov markaði upphafið að landnámi Rússa
í Alaska á þessum degi fyrir 220 árum.
Grigory fann Three Saints-flóann þennan
dag á Kodíakeyjum en Evrópumenn
uppgötvuðu landið árið 1741 þegar rúss-
neskur leiðangur var farinn undir leiðsögn
danska landkönnuðarins Vitus Bering.
Rússneskir veiðimenn gerðu fljótt innrás í
Alaska og réði Páll Rússakeisari Rússnesk-
ameríska félagið til að stjórna nýlendunni.
Árið 1855 reyndu Rússar að selja Banda-
ríkjamönnum nýlenduna. Samningurinn
um sölu nýlendunnar var undirritaður
árið 1867 í forsetatíð Andrews Johnson
og var verðið 7,2 milljónir dala. Hinn
18. október komst landið undir stjórn
Bandaríkjanna. Það var Charles Summer
öldungadeildarþingmaður sem lagði til
nafnið Alaska.
ÞETTA GERÐIST: 14. JÚNÍ 1741
Rússar eigna sér Alaska
ALASKA Rússar námu land í Alaska fyrir 220
árum síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HJÁLPARSTARF Stefán Ingi
Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna á Íslandi,
UNICEF, er á leiðinni til
Suður- Súdan þar sem hann
mun dvelja við hjálparstörf í
tvo mánuði.
Ástandið í landinu er afar
slæmt og fyrir um viku hóf
UNICEF neyðarsöfnun á
Íslandi. Stefán Ingi segir
stöðuna í Suður-Súdan vera
flókna. „Fyrir jól byrjaði
borgarastyrjöld í landinu.
Á þeim sex mánuðum sem
eru liðnir hafa 1,4 milljónir
manna verið á flótta,“ segir
Stefán. „Ýmsir innviðir lands-
ins eru farnir að gefa sig og
til dæmis höfðu mjög fáir
færi á því að sá í akurinn og
rækta landið. Það stefnir í að
það verði mikið fæðu óöryggi
með haustinu og það er ein
stærsta ógnin. Það hangir
hungurvofa yfir landinu og
það er ekki síður
þess vegna sem við
erum að hringja við-
vörunarbjöllum, til
að geta strax komið
í veg fyrir hungurs-
neyð.“
Aðspurður segir
Stefán Ingi að söfn-
unin hér á landi hafi
gengið mjög vel og
UNICEF hafi fengið jákvæð
viðbrögð. „Við erum að skora
á fólk að taka þátt og leggja
sitt af mörkum til að reyna
að verja réttindi barna eins
vel og við getum við þessar
erfiðu aðstæður. Við höfum
fullt af tækjum og tólum til
að gera þetta miklu betur
en hingað til og þess vegna
þurfum við að leggja enn
þá meira af mörkum,“ segir
hann. „Auðvitað hefur mjög
mikið þegar verið gert til að
koma í veg fyrir farsóttir
eins og kóleru og við
bólusetningu en við
viljum gera miklu
meira.“
Stefán Ingi mun
byrja á því að ferðast
til Naíróbí í Kenía
til að fá vegabréfs-
áritun. Eftir það
verður förinni heitið
til Juba, höfuðborgar
Suður-Súdan, þar sem hann
verður hluti af alþjóðlegu
starfsliði UNICEF í landinu.
„Í byrjun júlí verð ég mættur
á skrifstofuna til að taka þátt
í neyðaraðstoðinni. Þetta er
gott tækifæri fyrir mig til að
fylgja aðstoðinni beint eftir
og sjá hvaða áhrif hún hefur.“
Þetta verður í fyrsta sinn
sem hann kemur til Suður-
Súdan. „Þetta eru erfiðar
aðstæður þarna. Það er mikil
ábyrgð og mikill heiður að fá
að taka þátt í svona mikil-
vægu starfi. Í mínum huga
snýst þetta fyrst og fremst
um það. Við viljum ekki búa
í heimi þar sem börn njóta
ekki réttar síns. Þess vegna
gerum við allt sem í okkar
valdi stendur til að koma
í veg fyrir hörmungar. Að
fá tækifæri til að taka þátt
í því með beinum hætti er
mjög spennandi, þó að auð-
vitað sé þetta erfitt.“ Þeir
sem vilja taka þátt í söfnun-
inni á Íslandi geta sent sms
með skilaboðunum „BARN“
í símanúmerið 1900 og þar
með styrkt UNICEF um
1.900 krónur. Einnig er hægt
að fara inn á heimasíðuna
UNICEF.is. freyr@frettabladid.is
Heiður að fá að taka þátt
í svona mikilvægu starfi
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, dvelur í Suður-Súdan í sumar
við hjálparstarf. Hann býst við erfi ðu ástandi á svæðinu en segist hlakka til að leggja sitt af
mörkum í þessu stríðshrjáða landi. Neyðarsöfnun fyrir börn í Suður-Súdan er hafi n á Íslandi.
VANNÆRING Meira en 50.000 börn í Suður-Súdan þjást af vannæringu og eiga á hættu að láta lífið á
næstu vikum og mánuðum fái þau ekki hjálp án tafar. Yfir 740.000 börn undir fimm ára aldri eru auk þess
í mikilli hættu á að verða vannæringu að bráð.
HANDLEGGSBROTINN Á flótta með
systkinum sínum fjórum datt Yuot litli og
handleggsbrotnaði. Yuot, systkini hans og
móðir búa nú í flóttamannabúðum.
STEFÁN INGI
STEFÁNSSON
HÆTTA Á SJÚKDÓMUM Regntímabilið er hafið,
sem skapar enn meiri hættu á sjúkdómum. Yfir
1.000 kólerutilfelli hafa komið upp í höfuðborg-
inni Juba og tveimur öðrum héruðum landsins.
BÓLUSETNING Barn fær bólusetningu
gegn mænusótt. UNICEF hefur bólusett
um 180.000 börn gegn sjúkdómnum á
undanförnum mánuðum og 288.000
börn í Suður-Súdan hafa auk þess
fengið bóluefni gegn mislingum.