Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 10
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Í tilefni útkomu 23. bindis í ritröðinni Kirkjur Íslands
býður Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands,
Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag til
málstofu og opnunar sýningar í Hótel Eddu Skógum
föstudaginn 20. júní kl. 16.00.
KIRKJUR
ÍSLANDS
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
16
73
SJÁVARÚTVEGUR Vegna lélegrar
nýliðunar í ýsu er fyrirsjáan-
legt að áratugur muni líða áður
en hagsmunaaðilar geta gert
sér vonir um auknar aflaheim-
ildir frá því sem nú er. Síðasti
góði árgangurinn, sem ýsu veiðin
byggir á í dag, stendur vart undir
veiði lengur en næstu tvö til þrjú
ár.
Þetta kemur skýrt fram í gögn-
um Hafrannsóknastofnunar, en
niðurstöður um ástand fiski-
stofna og aflahorfur fiskveiði-
árið 2014/2015 voru kynntar á
fimmtudag.
Ýsuveiðin eftir 2016 mun
al farið byggja á árgöngum frá
2005 sem allir hafa verið litlir,
og síðustu sex árgangar eru sér-
stakt áhyggjuefni. Komi upp
sterkur árgangur á næstu árum
skiptir það heldur ekki máli hvað
veiði varðar fyrr en komið er inn
á næsta áratug, en nýr árgangur
fer fyrst að telja í veiði eftir þrjú
til fjögur ár.
Þegar stærð viðmiðunarstofns
ýsu er skoðuð og framreikningar
Hafrannsóknastofnunar til árs-
ins 2017 sést að afli verður það ár
vart meiri en 25.000 tonn, verði
aflareglu í tegundinni fylgt. Það
er um fjórðungur ýsuaflans fisk-
veiðiárin frá 2004 til 2008. Ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar
fyrir næsta fiskveiðiár er rúm-
lega 30.000 tonn, um 8.000 tonn-
um minni en í fyrra.
Í því samhengi er þess
skemmst að minnast að for-
svarsmenn Landsambands smá-
bátaeigenda (LS) gengu á fund
atvinnumálanefndar Al þingis
fyrr á þessu ári og kröfðust
þess að ýsukvótinn yrði aukinn
um 5.000 tonn enda fyrirséð að
óbreyttu að sjómenn þyrftu að
leggja bátum sínum vegna skorts
á veiðiheimildum.
Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri LS, segir fregnirnar graf-
alvarlegt mál, enda veiðir smá-
bátaflotinn um 30 prósent af
allri ýsu. Helming þess leigja sjó-
menn til sín, þó mjög erfitt sé að
fá kvóta leigðan í dag. Leigukvóti
er nauðsynlegur, ekki síst til þess
að hafa heimildir fyrir meðafla
með þorskveiðum bátanna.
Ef mál þróast eins og Haf-
rannsóknarstofnun boðar þá er
komið upp vandamál sem verður
að greiða úr með sértækum að-
gerðum, segir Örn. Annars horfi
menn einfaldlega fram á atvinnu-
missi fjölda fólks, sjómanna og
landverkafólks sem sinnir beitn-
ingu fyrir línuveiðar bátanna úti
um allt land. Þó nokkur hópur
sjómanna mun neyðast til að
binda bátana sína og snúa sér að
öðru,“ segir Örn og bætir við að
niðurstöður Hafró komi alls ekki
heim og saman við upplifun sjó-
manna á miðunum. „En á ábend-
ingar okkar hefur ekki verið
hlustað, hvorki af ráðherra né
öðrum.“ svavar@frettabladid.is
Aukin ýsuveiði ekki
líkleg næsta áratug
Gögn Hafrannsóknastofnunar benda til að ýsuveiði verði í sögulegri lægð næstu
árin. Smábátasjómenn segja upplifun sína á skjön við rannsóknir og spár. Með
sama áframhaldi verður kvótinn 2017 fjórðungur þess sem hann var 2004-2008.
VIÐ BRYGGJU Línuveiðar eru ógerlegar án aflaheimilda í ýsu, en hún veiðist í
stórum stíl við þorskveiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
Þó
nokkur hópur
sjómanna
mun neyðast
til að binda
bátana sína
og snúa sér að
öðru.
Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri LS
ÚKRAÍNA Stjórnvöld í Úkraínu
náðu í gær yfirráðum í hafnar-
borginni Mariupol í austurhluta
landsins eftir átök við aðskiln-
aðarsinna. Innanríkisráðherra
landsins, Arseníj Avakoff, sagði í
gær að öryggissveitir ríkisstjórn-
arinnar hefðu nú fulla stjórn á
höfuðvígum aðskilnaðarsinna í
borginni.
BBC greinir frá. Hundruð
manna hafa látið lífið í átökum
síðan skæruliðar, fylgjandi inn-
limun austurhluta Úkraínu í
Rússlandi, stóðu fyrir umdeildri
þjóðar atkvæðagreiðslu á svæðinu
og lýstu yfir sjálfstæði í kjölfarið.
Samkvæmt fyrstu fréttum
féllu fimm aðskilnaðarsinnar í
átökunum í gær og að minnsta
kosti fjórir úr liði stjórnvalda
slösuðust. Litið er á aðgerðina
sem sigur fyrir úkraínsk stjórn-
völd en þess ber að geta að oft
hefur verið barist um Mariupol
og ekki er útilokað að aðskiln-
aðarsinnar nái henni á vald sitt
aftur.
Annars staðar í austurhluta
Úkraínu hafa uppreisnarmenn
tilkynnt að þeir búi nú yfir
þremur skriðdrekum. Stjórn-
völd í Úkraínu segja að þeir hafi
komið til landsins frá Rússlandi,
en ríkisstjórn Rússlands neitar
þeim ásökunum. - bá
Fimm létust í átökum í borginni Mariupol í gær:
Aðskilnaðarsinnar
tapa vígi í Úkraínu
ÁTAKA-
SVÆÐI Íbúi
Mariupol
hjólar fram
hjá skrið-
dreka eftir
átökin í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP