Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 16
14. júní 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Þ að eru þrefalt meiri líkur á því að fátækt fólk reyki en efnameira. Sömu sögu er að segja um fólk með grunnskólapróf, fleiri þeirra reykja en þeir sem eru með háskólapróf. Þetta kemur fram í nýrri rann- sókn sem kynnt var undir heitinu Heilsa og líðan Íslendinga 2012. Þar kemur einnig fram augljós munur á milli landshluta og samkvæmt rannsókninni er mest reykt á Suðurnesjum, eins og við sögðum frá á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Síðustu áratugi hefur reykingafólki fækkað mikið. Enn reykja þó um þrjátíu og sex þúsund Íslendingar en nýliðun í hópi reykingamanna fer minnkandi með hverju árinu. Þannig reyktu um tveir af hverjum tíu framhaldsskólanemum árið 2000 en í dag reykja aðeins 7,6 prósent framhaldsskólanema. Allt reykingafólk þjáist af alvarlegum fíknisjúkdómi sem dregur fleiri til dauða í heiminum en alnæmi, ofneysla lyfja, umferðarslys og sjálfsvíg samanlagt. Algengt verð á sígarettu- pakka er um 1.200 krónur og reykingamanneskja sem brennir pakka á dag eyðir 36 þúsund krónum á mánuði til að sinna fíkn sinni. Það gera yfir 400 þúsund krónur á ári sem er há upphæð; sérstaklega þegar litið er til þess að það fólk reykir mest sem hefur hvað minnst á milli handanna. Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá Landlæknisembættinu, bendir á að í Dan- mörku „hefur til dæmis eitt sveitarfélag boðið þeim sem eru með minni menntun, lægri tekjur, atvinnulausum og öðrum ákveðnum hópum sérstök úrræði eins og einstaklingsmiðaða meðferð og niðurgreiðslu á nikótínlyfjum“. Við eigum að sjálfsögðu að niðurgreiða lyf fyrir nikótínfíkla og koma fram við þennan stærsta sjúklingahóp á Íslandi eins og aðra sjúklinga. Mjög erfitt er að ná bata frá tóbaksfíkn og flestir sem hætta gera það með hjálp nikótíngjafa á borð við tyggjó og plástra. Þessi lyf eru dýr en það hefur líka verið reiknað út að ef reykingafólk ætti eitt að bera kostnaðinn sem fellur á samfélagið allt vegna fíknar þeirra þyrfti sígarettu- pakkinn að kosta 3.000 krónur. Samkvæmt þeim útreikn ing- um niðurgreiðum við þegar hvern pakka um 1.800 krónur. Hvað sem því líður þá eigum við að geta gert enn betur í baráttunni gegn tóbaksfíkn. Ekkert okkar óskar þess að börnin okkar byrji að reykja. Þetta er ekki siður sem við viljum kenna næstu kynslóðum. Undirritaður hefur áður bent á að í Bandaríkjunum er í sumum ríkjum, eins og til dæmis New York, ekki aðeins bannað að reykja á veitingastöðum og í fyrirtækjum og opinberum stofnunum heldur einnig opinberum rýmum utandyra. Hér fyrir kosningar var tillaga Ómars Stefánssonar, bæjarfulltrúa í Kópavogi, um alls- herjarbann gegn reykingum í Kópavogi hlegin út af borðinu, ef svo má að orði komast. Við eigum því enn þó nokkuð í land en segja má að það sé óumflýjanlegt að á endanum förum við að dæmi þeirra í New York. Reykingar bannaðar: Niðurgreitt nikótín Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Sjávarútvegsráðherra kom stefnulaus inn í ráðu-neytið fyrir rúmu ári. Á sumarþingi í fyrra voru gerðar bráðabirgðabreytingar á auðlindagjaldinu af því að ráð- herrann vissi ekki hvernig best væri að haga því til frambúðar. Nú á vorþinginu voru aftur gerð- ar bráðabirgðabreytingar þar sem ráðherranum hafði ekki unnist tími til að hugsa málið til þrautar. Fiskveiðistefnan var eitt stærsta átakamál síðasta kjör- tímabils. Þegar sjávarútvegs- ráðherra kom til sumarþings- ins í fyrra hafði hann þó engar tillögur í farteskinu um nýja skipan fiskveiðistjórnunar. Hann taldi sig þurfa rýmri tíma og boðaði frum- varp að nýjum lögum á haust- þingi . Þegar þingi lauk í vor hafði umhugs- unartíminn ekki verið nægur og aftur var boðað nýtt frumvarp á næsta haustþingi. Þetta er því verra að gagn rýnin á athafnir vinstri stjórnarinnar á þessu sviði var í alla staði rétt- mæt. Þær breytingar sem gerðar voru í smáskömmtum á síðasta kjörtímabili miðuðu allar að því að draga úr þjóðhagslegri hag- kvæmni veiðanna. Sérhagsmuna- gæsla og félagsleg sjónarmið réðu meir en þeir almannahagsmunir að auka framleiðni greinarinnar. Þeir fáu frjálslyndu þingmenn Samfylkingarinnar sem töl- uðu fyrir markaðslausnum voru beygðir í duftið. Ári eftir að þjóðin felldi vinstri stjórnina standa allar þær breyt- ingar sem hún gerði á skipan sjávar útvegsmálanna óhaggaðar. Ráðherrann er enn stefnulaus. Það sem verra er: Hann er farinn að hugsa eins og ráðherra í vinstri stjórn og boðar aukið svigrúm ríkisstyrktrar útgerðar á kostnað framleiðni og þjóðhagslegrar hag- kvæmni. Stefnulaus sjávarútvegsráðherra Fá pólitísk viðfangsefni eru eins eldfim og sjávarút-vegsmálin. Hagræðingarað- gerðir sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis á úthallandi vetri kveiktu nýja elda. Deilurnar snúast alltaf um þessa lykilspurningu: Á fisk- veiði stjórnar kerfið að þjóna óarð- bærum rekstri til að verja störf eða virka sem hvati til að auka framleiðni og skapa hámarks- afrakstur og stuðla þannig að almennum lífskjarabótum? Í flestum fiskveiðiríkjum er sjávarútvegurinn aukabúgrein sem skiptir ekki sköpum fyrir þjóðarbúskapinn. Við slíkar aðstæður er algengt að menn noti stjórnkerfi fiskveiða til að verja störf án tillits til arðsemi. Þá þurfa aðrar atvinnugreinar að skila framleiðniaukningunni sem stendur undir framförum og bættum kjörum. Hér er þessu öfugt farið. Eftir kerfisbreytinguna í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar varð sjávarútvegurinn eina atvinnu- greinin sem er fyllilega samkeppn- isfær í alþjóðlegum samanburði varðandi framleiðni. Það merkir að minnki framleiðni sjávar- útvegsins versna lífskjör allrar þjóðarinnar. Fyrir þá sök er svig- rúmið til félagslegra aðgerða og sérhagsmunagæslu í sjávarútveg- inum takmarkað. Kerfisvandinn er sá að aðrar greinar megna ekki að standa undir slíkum kostnaði. Viðbrögð sjávarútvegsráðherra gagnvart þeim erfiðleikum sem fylgja hagræðingaraðgerðum bera vott um að hann hefur enga skýra sýn á hvernig hann vill að sjávar- útvegurinn byggist upp og þróist með tilliti til heildarhagsmuna þjóðarinnar. Populíska leiðin er léttari. Hún felur í sér að verja störf þótt þau séu ekki arðbær. Svo geta aðrir glímt við efnahags- legu afleiðingarnar. Popúlismi Með nokkrum rétti má segja að þrátt fyrir hrunið sé þjóðin nægjanlega rík til þess að hafa efni á takmörkuðum félagslegum ráðstöfunum í sjávar- útvegi. Vinstri stjórnin gekk hins vegar lengra í því efni en unnt er að verja út frá almannahagsmunum. Engin efnahagsleg rök standa því til að halda áfram á þeirri braut. Framganga sjávarútvegsráð- herra í þessari umræðu ber vitni um þá mótsögn sem er í samstarfi stjórnarflokkanna. Heimsmetið í niðurgreiðslu húsnæðisskulda gengur til að mynda þvert á þau markmið ríkisstjórnarinnar sem lúta að ábyrgri fjármálastjórnun og stöðugleika í peningamálum. Þegar sjávarútvegsráðherra talar fyrir því að halda eigi áfram stefnu vinstri stjórnarinnar og draga úr framleiðni í sjávarútvegi er það einnig hólmganga við markmiðin í ríkisfjármálum og peninga málum. Eigi þau að nást þarf sjávarútveg- urinn að leggja til alla þá fram- leiðniaukningu sem möguleg er. Meðan ráðherrar Framsóknar eru á fleygiferð eftir braut popúl- ismans minnka líkurnar á að unnt verði að ná ábyrgu markmiðunum. Það er einfaldlega ekki hægt að slíta sjávarútvegsstefnuna frá því sem menn boða í ríkisfjármálum og peningamálum. Framsókn sýnist hafa náð þeirri stöðu í stjórnarsamstarfinu að popúlísk viðhorf ganga fyrir þeim ábyrgu. Slíkur tvískinn ungur varð einn af mörgum bana bitum vinstri stjórnarinnar eftir að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn sleppti af henni hendinni. Það er enginn ástæða til að endurtaka þá sögu. Þekktur banabiti SUMARHÁTÍÐ GRÓÐRARSTÖÐVARINNAR HEIÐARBLÓMA Á STOKKSEYRI ER LAUGARDAGINN 14. JÚNÍ. GRILLAÐAR PYLSUR, SUNGIÐ OG TRALLAÐ. ALLIR VELKOMNIR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.