Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 22
HELGIN
21. júní 2014 LAUGARDAGUR21. júní 2014 LAUGARDAGUR
„Við erum rosalega jarð bundnir
gæjar. Týpurnar sem fáum
okkur frekar nokkra drykki og
sígarettu fyrir tónleika í stað-
inn fyrir að vera að biðja um
rauð m&m og hausanudd,“ segir
Robert Del Naja, annar meðlim-
ur Massive Attack en sveitin
kemur fram í kvöld á Secret Sol-
stice-hátíðinni í Laugardal.
Hljómsveitin hefur verið
starfrækt síðan 1988 og eru Del
Naja og Grant Marshall for-
sprakkar hennar. Mikið hefur
breyst á seinustu 26 árum en
strákarnir í Massive Attack
hafa aðlagast tækninýjung unum
vel. „Þetta er tvíþætt, annars
vegar hefur allt breyst og hins
vegar hefur ekkert breyst.
Þegar við byrjuðum þá var raf-
tónlist rosaleg handavinna, þú
þurftir að vanda þig rosalega
mikið við hvern einasta takt og
hafðir mjög takmarkaða palettu
af hljóðum.“
Sveitin hefur ekki spilað á
tónleikum í um það bil fjögur ár
en hún kom fram á Sónarhátíð-
inni í Barcelona í seinustu viku
og segir Del Naja að tónleik-
arnir á Íslandi verði öðruvísi.
„Það er allt öðruvísi á Íslandi,“
segir hann og hlær. „Það er svo
erfitt að byrja aftur að spila
eftir langan tíma, því þú þarft
að spila eitthvað gamalt sem
fólk kannast við en þú þarft
líka að uppfylla þessa þörf hjá
þér sjálfum að gera eitthvað
nýtt,“ segir Del Naja sem hefur
fjórum sinnum áður komið til
Íslands.
„Ég hef alveg upplifað báðar
hliðar veðursins,“ segir tón-
listarmaðurinn sem hefur bæði
verið á Íslandi um mitt sumar
og miðjan vetur en honum
finnst báðar árstíðirnar hafa
sinn sjarma. „Maður þarf samt
að vakna svo snemma að vetri
til, því ef maður rétt svo blikkar
augunum missir maður af deg-
inum.“
Del Naja segist einnig vera
mikill aðdáandi íslenskrar tón-
listar og hlakkar til þess að sjá
íslensku hljómsveitirnar sem
koma fram á hátíðinni. „Það er
svo einstakt, þegar þú ert með
stað sem er eins einangraður og
Ísland er þá fær tónlistin tæki-
færi til að þróast án þess að
verða fyrir of miklum áhrifum
annars staðar frá,“ segir hann
og ber tónlistarsenuna á Íslandi
lauslega saman við senuna í Bri-
stol, þar sem Mass ive Attack
byrjaði sinn tónlistarferil. „Bara
það að Bristol sé 200 kílómetra
frá London hjálpaði tónlistarsen-
unni að þróast án þess að verða
fyrir þeim truflunum sem fylgja
oft stórborgum.“
Eins og fram hefur komið
þá fer Massive Attack á svið í
Laugardalnum í kvöld og hlakka
þeir til þess að spila og kynn-
ast einhverjum Íslendingum.
„Íslendingar hafa orð á sér að
vera villtir, ég er alltaf spenntur
að koma til Reykjavíkur.“
Erfi tt að byrja
aft ur að spila
Hljómsveitin Massive Attack hefur verið starfrækt síðan árið 1988 og segja
meðlimir margt hafa breyst síðan þeir stigu fyrst á stokk. Fyrir viku stigu þeir í
fyrsta sinn á svið í fj ögur ár og ætla að spila blöndu af gamalli og nýrri tónlist
í kvöld á Secret Solstice-hátíðinni.
JARÐBUNDNIR Þeir Robert Del Naja og Grant Marshall eru spenntir fyrir að
stíga á svið í Laugardalnum í kvöld og segja Íslendinga vera með orð á sér fyrir að
vera villtir.
Baldvin
Þormóðsson
baldvin@frettabladid.is
Ása Ninna Pétursdóttir,
eigandi GK Reykjavík
Fótboltamamma
á Akranesi
„Ég er að fara á Norðuráls-
mótið á Akranesi með yngri
syninum, Kormáki Krumma,
Svo það er áfram KR-ævintýri
hjá fótboltamömmunni um
helgina.“
Nanna Kristín Magnúsdóttir,
leikkona og leikstjóri
Lesa nýtt verk
„Ég verð á Akranesi á
fótboltamóti en bruna til
borgarinnar á milli leikja til að
fara í gæsun, tvær útskriftar-
veislur og þegar tími gefst
lesa nýtt íslenskt verk sem var
verið að bjóða mér hlutverk í,
á næsta leikári.“
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir,
eigandi Gyðju Collection
Á tónlistarhátíð
„Ég er að fara á tónlistarhátíðina Secret Sol-
stice um helgina. Það verður gaman að upp-
lifa alvöru tónlistarhátíð yfir sumartímann í
Reykjavík. Er virkilega spennt fyrir því.“
Marta Jónsson,
skóhönnuður
Lautarferð og grill
í garðinum
„Þessa helgi er veðurspáin
alveg dásamleg. Ég fer í lautar-
ferð í dag og ætla að byrja
sunnudaginn á góðum hlaupa-
hring. Um kvöldið verður
grillað íslenskt lambalæri með
grænum Ora-baunum.“
■ Massive Attack hófu að semja tónlist árið 1988 og var það tvíeykið
Robert „3D“ Del Naja og Grant „Daddy G“ Marshall sem stofnuðu
sveitina saman. Fyrsta plata þeirra, Blue Lines, kom út árið 1991 og
hlaut einróma lof gagnrýnenda, eins og flestar aðrar plötur sem tvíeykið
hefur gefið út. Frægasta lag Massive Attack, Teardrop, kom út árið 1998
á plötunni Mezzanine og var sú plata, ásamt Blue Lines, valin ein af 500
bestu plötum allra tíma af tónlistartímaritinu Rolling Stone.
■ Teardrop er án ef vinsælasta lag sveitarinnar og naut hún liðsinnis
söngkonunnar Elizabeth Fraser í laginu. Voru þeir félagar þá búnir að
hafa samband við Madonnu um að ljá laginu rödd sína en Fraser hafði
vinninginn og Madonna varð fyrir vonbrigðum þar sem hún ku hafa
verið orðin spennt fyrir að syngja lagið. Lagið minnir söngkonuna alltaf
á tónlistarmanninn og góðan vin hennar, Jeff Buckley, sem dó á sama
tíma og hún var syngja lagið í hljóðveri árið 1997.
Hverjir eru Massive Attack?