Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 42
| ATVINNA |
VERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGUR SUÐURLAND
Sláturfélag Suðurlands er 107 ára, öflugt og framsækið matvælafyrirtæki í
eigu búvöruframleiðenda á Suður- og Vesturlandi og almennra hluthafa.
Höfuðstöðvar þess eru í Reykjavík og þar eru, auk skrifstofu, markaðs- og
söludeildir. Á Hvolsvelli er meginhluti kjötiðnaðar staðsettur ásamt frystihúsi
og vörudreifingu kjötvara. Sláturhús rekur félagið á Selfossi ásamt
úrbeiningu á kjöti og pökkunarstöð.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess, www.ss.is.
Sláturfélag Suðurlands óskar að ráða verkfræðing / tæknifræðing í starf
deildarstjóra í framleiðsludeild.
Meðal verkefna eru umsjón með vöruskrá, framlegðar-, verð- og bónusútreikningar, áætlana-
gerð, úrvinnsla framleiðsluupplýsinga, endurskoðun verkferla og þátttaka í stjórnun og
stefnumótun innan framleiðsludeildar. Óskað er menntunar á sviði verkfræði eða tæknifræði.
Reynsla úr matvælaiðnaði er æskileg en ekki nauðsynleg. Starfsaðstaða er á Hvolsvelli en
starfinu fylgja bifreiðahlunnindi og því er búseta annars staðar á Suðurlandi vel möguleg.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Svavarsson, framleiðslustjóri
s. 488 8200, netfang: gudmundur@ss.is.
Áhugasömum er bent á að sækja um á heimasíðu félagsins; www.ss.is undir „sækja um starf“.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2014.
LEX
LÖGMANNSSTOFA
Borgartúni 26
105 Reykjavík
Fax 590 2606
Hafnarstræti 94
600 Akureyri
Fax 590 2680
Sími 590 2600
lex@lex.is
www.lex.is
LEX er ein stærsta lögmannsstofa landsins með yfir 40 lögmenn innan sinna raða
og sinnir verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins.
LEX
LEITAR AÐ
LÖGMÖNNUM
LEX lögmannsstofa hefur hug á að
bæta tveimur lögmönnum í öflugan
hóp félagsins á eftirtöldum sviðum:
Eignarréttur, stjórnsýsluréttur
og rekstur dómsmála
Lögmaður með embættis- eða meistara-
próf í lögum og lögmannsréttindi,
starfsreynslu á sviði eignarréttar og
stjórnsýsluréttar auk haldgóðrar reynslu
af rekstri dómsmála.
Samkeppnisréttur
Lögmaður með embættis- eða meistara-
próf í lögum. Lögmannsréttindi eru æskileg
ásamt starfsreynslu og/eða framhaldsnámi
á sviði samkeppnisréttar.
Umsóknarfrestur er til 29. júní 2014
og skulu umsóknir sendar á umsokn@lex.is
Sölufulltrúi
Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir sölu-
fulltrúum í fullt starf. Um er að ræða sölu- og kynninga
starf fyrir fjöldan allan af ýmis konar ritum sem fyrirtækið
gefur út, sjá heimasíðuna www.sagaz.is
Krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi.
Reynsla af sölu- og kynningarmálum æskileg en ekki
skilyrði. Athugið tekjur eru árangurstengdar
en tekjumöguleikar miklir!
Umsóknir skulu sendar á netfangið:
umsokn@sagaz.is fyrir 27. júní nk.
Miklir tekjumöguleikar fyrir duglegt fólk
Uppsveitir Árnessýslu og Flói
óska eftir félagsráðgjafa til starfa
Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá sveitarfélögunum í uppsveitum
Árnessýslu og Flóa. Um er að ræða 100% stöðu. Starfsstöð
félagsráðgjafa er á heilsugæslunni í Laugarási. Samstarf er á
milli sjö sveitarfélaga í Árnessýslu á sviði skóla- og velferðar
þjónustu. Einn forstöðumaður er yfir svæðinu og er sameiginleg
skólaþjónustu- og velferðarnefnd. Forstöðumaður hefur yfirumsjón
með faglegu starfi og ráðgjöf. Sveitarfélögin bjóða upp á fjölbreytt
verkefni á sviði skóla- og velferðarmála, svigrúm til nýrra verkefna
og vinnubragða.
Helstu verkefni
• Félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð
• Barnavernd,
• Málefni fatlaðra,
• Málefni aldraðra,
• Önnur verkefni sem falla undir lög um félagsþjónustu
sveitarfélaga.
Hæfniskröfur:
• Félagsráðgjafamenntun
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu.
• Hæfni í að tjá sig í ræðu og riti.
Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu berist til
Maríu Kristjánsdóttur, forstöðumanns Skóla- og velferðarþjónustu
Árnesþings á netfangið maria@hveragerdi.is fyrir 9. júlí 2014.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra
sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Hótel Klettur er glæsilegt hótel aðeins steinsnar
frá miðbæ Reykjavíkur. Okkur vantar þjónustulundað
starfsfólk í hópinn.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að aðstoða í morgun-
verðarsal, þarf að hafa kennitölu og leyfi til að starfa á Íslandi.
Um vaktavinnu er að ræða og því þarf viðkomandi að geta
unnið um helgar og á frídögum þegar þess þarf.
Hæfniskröfur
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Gott skipulag og stundvísi.
Rík þjónustulund.
Enskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 25. júní 2014 og skulu
umsóknir berast á netfangið sigurdur@hotelklettur.is
Herbergisþerna
21. júní 2014 LAUGARDAGUR4