Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 10
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
SumaríSlendIngar
upPlifið sóL og SumarYl með ekta RjóMaís
Með kókOs, áStaraldIn, mangó og súKkulaðIdropuM
VÍSINDI Geimferðastofnun Banda-
ríkjanna, NASA, ætlar 1. júlí að
skjóta á loft gervihnetti sem mælir
magn koltvísýrings í andrúmsloft-
inu.
Hann nefnist Orbiting Carbon
Observatory-2, eða OCO-2, og
verður þetta önnur tilraun NASA
til að skjóta á loft gervihnetti sem
mælir koltvísýring. Sú fyrsta var
gerð árið 2009 en þá mistókst
hnettinum að komast á sporbaug
um jörðu.
OCO-2 mun mæla magn koltví-
sýrings af mikilli nákvæmni og
meðal annars eftir árstíðum. Kol-
tvísýringur er ein þeirra gróður-
húsalofttegunda sem koma í veg
fyrir að hiti komist í burtu frá
jörðinni. Margir vísindamenn
telja að mikil losun gróðurhúsa-
lofttegunda verði til þess að hita-
stig jarðar hækki.
Frá því að iðnvæðingin hófst
hefur losun koltvísýrings út í and-
rúmsloftið aukist mikið og sam-
kvæmt NASA hefur hann ekki
verið meiri í að minnsta kosti 800
þúsund ár. Mælitæki á jörðu niðri
gefa til kynna að hann hafi aukist
um tæp tuttugu prósent á síðustu
fimmtíu árum.
Heimshöfin, plöntur og jarð-
vegur drekka í sig mestan koltví-
sýring og draga þannig úr magni
hans í andrúmsloftinu. Aftur á
móti er ekki vitað hversu mikið
magnið er eftir svæðum jarðar
og ekki heldur hvort magnið sem
höfin, plöntur og jarðvegur drekka
í sig hafi minnkað eftir því sem
meiri koltvísýringi hefur verið
dælt út í andrúmsloftið.
Bruni á jarðefnaeldsneyti og
aðrar aðgerðir mannfólksins valda
því að 40 milljörðum tonna af kol-
tvísýringi er dælt út í andrúms-
loftið á hverju ári, sem veldur því
að þessi gróðurhúsalofttegund
hefur safnast upp á löngum tíma.
freyr@frettabladid.is
Mæla koltvísýring í
andrúmslofti jarðar
Geimferðastofnun Bandaríkjanna skýtur á loft gervihnetti sem mælir koltvísýring
í andrúmsloftinu. Talið er að hann hafi aukist um 20 prósent á síðustu 50 árum.
© GRAPHIC NEWSSources: NASA, wire agencies
OCO-2 er önnur tilraun NASA til að mæla koltvísýring í andrúms-
loftinu með því að nota gervihnött sem fylgist með jörðu.
Fyrri hnötturinn komst ekki á sporbaug um jörðu árið 2009.
Koltvísýringur
Spilar lykilhlutverk
í loftslagsbreytingum,
hleypir sólarljósi
í andrúmsloftið
en kemur í veg
fyrir að hiti komist
frá jörðu út í geim.
CO2 sameind
Sólarljós sem endur-
kastast frá yfirborði jarðar
fer inn í sjónauka. Tæki
greinir meira ljós þar sem
minni koltvísýringur mælist
í andrúmsloftinu.
Miðstöðvar-
ofn
X-loftnet
S-loftnet
Sólar-
orku-
vængir
3m
Stjörnu-mælitæki
Orbiting Carbon
Observatory-2
(OCO-2)
Sprengi-
hleðsla
eldflaugar
OCO-2
OCO-2
Delta II
eldflaug
Hæð
39 m
Hylki opnast eftir geimskot
Taurus XL-
flaugin fór ekki
á sporbaug 2009
Mæling á koltvísýringi
Dökkar línur við mismunandi
liti sýna magn CO2 í
andrúmsloftinu.
Gögn: Rannsökuð í tölvu-
forritum til að finna út hvar
skógar og höf drekka
í sig mest af CO2.
Ljósmælar í
hárri upplausn
Sólarljós sem
sjónauka er
beint að brotnar í
mismunandi liti
Koltvísýringur rannsakaður úr geimnum
➜ Mælitæki á jörðu niðri gefa til kynna að koltvísýringur hafi
aukist um tæpan fimmtung á síðustu fimmtíu árum.