Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGHúð og hár LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 20144
Auðveldur ballerínuhnútur
Allt of margir telja sig vera með tíu þumalfingur þegar kemur að hárgreiðslu. En meira að segja
óhandlagnasta fólk getur lært að gera einfaldar greiðslur í hár, til dæmis hinn klassíska balletthnút. YouTube
er til að mynda frábær hjálparkokkur allra sem vilja læra að flétta fasta fléttu, setja upp hár, slétta eða krulla.
Ballettiðkun er nokkuð algeng meðal stúlkna á Íslandi. Íslenskar mæður og feður hafa því þurft að koma sér upp
kunnáttu í því að setja ballerínuhnút í dætur
sínar. Sumum vex þetta verkefni í augum en í
raun er það sáraeinfalt. Hér eru nokkrir punktar
um hvernig best er að bera sig að.
Hafið við höndina
Bursta, tvær teygjur, hárspennur, hárkleinu-
hring, hársprey og jafnvel hárfroðu.
1. Setjið hárið í hátt tagl. (Einnig er hægt að hafa
hnútinn í hnakkanum og er þá taglið sett þar).
Passið að allt hárið sé í taglinu og að það sé allt
slétt og fínt. Þessu má ná með því að renna yfir
hárið með greiðu og setja jafnvel hárfroðu í
það til að stuttu hárin standi ekki út í loftið.
2. Setjið taglið í gegnum kleinuhringinn (slíka
hringi má fá víða og í ýmsum stærðum).
3. Lyftið taglinu hátt upp og skiptið í tvo jafna
hluta, efri og neðri.
4. Dreifið nú hárinu jafnt yfir kleinuhringinn.
5. Takið lausu hárin og vefjið þeim réttsælis utan
um taglið undir kleinuhringnum.
6. Gott er að setja stóra teygju utan um hnútinn
einu sinni til að halda öllu í horfinu.
7. Festið með spennum á nokkrum stöðum.
8. Nú má spreyja hárspreyi yfir til að ekkert fari
úr skorðum.
9. Hnúturinn er fallegur einn og sér en einnig
eru til fallegar teygjur og borðar sem binda má
utan um hnútinn.
Leikkonan Emmy Rossum
með klassískan hnút.
Hnúturinn fer Reese
Witherspoon mjög vel.
Kate Bosworth
með fallegan
háan hnút.
Reglulega berast fegrunarráð frá nafntoguðum fegurðardísum nú-
tímans en frægar gyðjur menningarþjóðfélaga fornaldar kunnu
einnig að dekra við sig og segja elli kerlingu stríð á hendur.
● Eitt fyrsta fegrunarráð sögunnar kemur frá Kleópötru, drottn-
ingu Egyptalands. Hún laugaði andlit sitt með blöndu eplaediks
og vatns til að vinna á óhreinindum og bakteríum og notaði þess á
milli mjólk og hunang til að gera húðina fegurri. Prófið að blanda
saman teskeið af ediki á móti tveimur bollum af vatni.
● Kleópatra var einnig meðvituð um góð áhrif vínberja á ótímabæra
öldrun húðar. Hún kramdi vínber, blandaði þeim saman við hun-
ang og makaði á andlit sitt til yngingar. Merjið tíu græn vínber og
blandið saman við matskeið af hunangi. Makið á andlit og látið
vera í tíu mínútur. Hreinsið svo af með volgu vatni.
● María Stúart Skotadrottning fór iðulega í uppbyggjandi rauðvíns-
bað til að halda húðinni ungri og ferskri. Prófið að hella einu rauð-
vínsglasi út í baðvatnið til að mýkja húðina.
● Elísabet fyrsta Englandsdrottning var heilluð af eggjamaska sem
er góður til að styrkja hörundið og draga úr roða, þrota og bólum.
Aðskiljið egg og makið eggjahvítu á andlitið. Látið vera í tíu mín-
útur og hreinsið þá af með volgu vatni.
● Ástargyðjan Afródíta hélt húð sinni fagurri með þangi og þara,
bæði til átu og sem líkamsmeðferð. Nota má þang og þara út í salöt
og súpur eða baða sig í því til að gera húðina stinna.
● María Antonía Frakklandsdrottning hélt sér unglegri með krydd-
jurtabaði sem samanstóð af blóðbergi, kryddmæru, lárviði og
salti. Sjóðið í dálitlu vatni 2 matskeiðar blóðbergs, 1 teskeið krydd-
mæru, 3 lárviðarblöð og skvettu af salti og setjið út í baðvatnið.
● Konur til forna drógu menn á tálar með ilmjurtum og var kanill í
sérstöku dálæti sem þær settu í rúmföt fyrir rómantískar nætur.
Húðgaldur fornra gyðja
Kleópatra VII Fílópator, drottning og faraó Egyptalands hins forna, var annáluð fyrir
glæsileika. Kleópatra fæddist í janúar árið 69 fyrir Krist og dó 12. ágúst árið 30 fyrir Krist.
Kim Kardashian skartar oft
klassískum ballerínuhnút í
svörtu hárinu.
NÝTT frá Olay Regenerist
árangursríkari
húðhreinsun en
með hefðbundnum
andlitshreinsi.
Breyttu umhirðu þinnar húðar
á byltingarkenndan hátt!
4x
www.medico.is
3 POINT SUPER
CLEANSING SYSTEM