Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 45

Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 45
Upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Fjármálastjóri Fiskmarkaður Íslands er stærsti fiskmarkaður á Íslandi og fer u.þ.b.40% af öllu seldu magni á íslenskum fiskmörkuðum í gegnum félagið. Fiskmarkaður Íslands starfar á 9 stöðum: Akranesi, Arnarstapa, Grundarfirði, Ólafsvík, Reykjavík, Rifi, Skagaströnd, Stykkishólmi og Þorlákshöfn. Aðalskrifstofa fyrirtæksins er í Ólafsvík en þar er jafnframt stærsti móttökustaðurinn. Einnig rekur félagið öfluga flokkunar- og slægingarþjónustu á Rifi. Fiskmarkaður Íslands hf. óskar eftir að ráða fjármálastjóra til starfa. Starfs- og ábyrgðarsvið • Hefur yfirumsjón með fjárreiðum og bókhaldi félagsins • Annast útreikning launa og samskipti við opinbera aðila sem að því snýr • Annast tölvukerfi félagsins og tæknimál • Ætlast er til að viðkomandi geti einnig leyst af/tekið þátt í verksviði sölustjóra og öðlist þekkingu á sölukerfum félagsins sem og tölvukerfum því tengdu • Annast milligöngu um viðskipti á aflamarki sem og öðrum þjónustuþáttum við viðskiptavini félagsins • Annast ásamt stöðvarstjórum mönnunarmál og innkaup á rekstrarvörum Menntun og hæfniskröfur • Viðskiptamenntun sem nýtist í starfi • Þekking á Navision, Microsoft hugbúnaði og færni til þess að læra á sérkerfi félagsins • Haldgóð almenn þekking á sjávarútvegsmálum Upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Leikskólakennari á Hólmavík Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir leikskólakennara í fullt starf. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er að hjartahlýjum og öflugum einstaklingi sem nýtur þess að vinna með börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig eru skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægir kostir. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 11. ágúst. Vinnutíminn er kl. 8.00-16.00. Í Strandabyggð búa rúmlega 500 íbúar og er Hólmavík þéttbýlisstaðurinn. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf öflugt. Í Strandabyggð er blómlegt tómstunda-, íþrótta- og menningarlíf. Félagsstarf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og þar er hugað að því að sem flestir aldurshópar fái notið sín til fullnustu. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar og menningarlíf er kraftmikið og fjörugt allt árið um kring. Nánari upplýsingar um Strandabyggð er að finna á vefsíðunni www.strandabyggd.is. HREINGERNINGARSTÖRF Rekstrarfélag Kringlunnar auglýsir eftir áhugasömu fólki til að sinna þrifum í Kringlunni. Leitað er að flokkstjóra og fólki í almenn þrif. Kringlan er fjölbreyttur vinnustaður, enda stærsta verslunarmiðstöð Reykjavíkur, með yfir 180 verslanir, veitingastaði og þjónustuaðila. Kringlan kappkostar að bjóða viðskiptavinum sínum upp á hreint og notalegt umhverfi og þar spila fagleg vinnubrögð hjá samhentu starfsfólki stórt hlutverk. Flokkstjóri: Flokkstjóri verður að búa yfir reynslu af svipuðu starfi og hafa haft mannaforráð. Almennar stöður: Almennar stöður eru tvenns konar; að sinna þrifum innandyra annars vegar og utandyra hins vegar. Starfshlutfall er mismunandi. Unnið er á daginn, eftir vaktakerfi, eina viku í senn. Hæfniskröfur: • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi • Reynsla af ræstingastörfum • Iðjusemi og rík þjónustulund • Hreint sakavottorð • Íslensku- eða enskukunnátta skilyrði • 18 ára og eldri • Snyrtimennska og stundvísi Laun eru í samræmi við kjarasamninga Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Ráðningar annast Viðar J. Björnsson, sem svarar einnig öllum fyrirspurnum. Umsókn og ferilskrá sendist á vidar@kringlan.is eða í pósti á Rekstrarfélag Kringlunnar, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 30. júní 2014 og eru bæði konur og karlar hvattir til að sækja um. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 11. ágúst 2014. Leikskólakennari – spennandi verkefni – Leikskólakennari óskast til starfa við leikskóla deild Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í Kerhólsskóla eru tvær leikskóladeildir þar sem lögð er áhersla á útiveru og hreyfingu og að nýta náttúruna til útináms og listsköp unar. Kerhólsskóli hefur nú fengið grænfánann í annað sinn. Helstu verkefni og ábyrgð: Leitað er eftir leikskólakennara sem vinnur sem hópstjóri á deild. Hann vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs í teymisvinnu með kennurum og skólastjóra. Leik- og grunnskóladeildir Kerhólsskóla flytja í haust undir sama þak í nýjum og glæsi- legum húsakynnum. Kennarar beggja skólastiga munu í sa- meiningu þróa skólastarfið og faglega samvinnu deildanna á komandi skólaári. Hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Stundvísi Starfið er laust frá 15. ágúst nk. eða eftir samkomulagi. Möguleiki á húsnæðis- og launahlunnindum. Umsóknarfrestur er til 28. júní Nánari upplýsingar gefur Sigmar Ólafsson skólastjóri í síma 482-2617, 863-0463 eða sigmar@kerholsskoli.is Heimasíða skólans: www.kerholsskoli.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.