Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 40
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 400 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu ÍSTAKS, Bugðufljóti 19,
270 Mosfellsbæ og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Sækja skal um
starfið á www.istak.is – undir „Starfsumsókn“.
TÆKJASTJÓRNENDUR - NOREGUR
ÍSTAK óskar eftir að ráða vana tækjastjórnendur með meirapróf til
starfa við framkvæmdir í Noregi. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf sem fyrst.
Við Grunnskólann í Hveragerði er laus
staða þroskaþjálfa frá 1. ágúst nk.
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu
og glæsilegu bæjarfélagi. Einkunnarorð skólans eru:
viska, virðing og vinátta og við leggjum metnað í að
áhrif þeirra séu augljós í daglegu starfi. Skólinn flaggar
Grænfánanum og er að stíga sín fyrstu skref sem
þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskólar.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk.
Upplýsingar um störfin veitir Fanney Ásgeirsdóttir,
skólastjóri, í gegnum fanney@hveragerdi.is
og í síma 660-3912.
Skólastjóri
Grunnskólinn í Hveragerði
| ATVINNA | 21. júní 2014 LAUGARDAGUR2