Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 6
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
SJÁVARÚTVEGUR Frá febrúar til
apríl hækkaði verð á sjávar-
afurðum í erlendri mynt um 5 pró-
sent og hefur ekki hækkað meira á
svo stuttu tímabili í fjögur ár.
Í Hagsjá hagfræðideildar Lands-
bankans kemur fram að verð á
uppsjávarfiski hefur hækkað um
13 prósent á tímabilinu og hefur
aldrei verið hærra. Verð á mjöli
og lýsi hefur sömuleiðis hækkað
hratt á síðustu mánuðum eða um
tæp 12 prósent.
Kolbeinn Árnason, framkvæmda-
stjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna, segir tíðindin
ánægjuleg og að verð hækkun hjálpi
útgerðum í uppsjávarfiski eftir
loðnubrest á síðasta fiskveiðiári.
Nýliðin loðnuvertíð var næst-
lélegasta vertíðin á þessari öld
þegar aðeins um 110 þúsund tonn
komu að landi. Meiri bjartsýni
ríkir fyrir komandi loðnuvertíð
en Hafrannsóknastofnun vonast
til að geta gefið út kvóta upp á
rúm 450 þúsund tonn.
- jjk
Verðhækkun frá febrúar til apríl er sú mesta á stuttu tímabili í fjögur ár:
Sjávarafurðaverð rýkur upp
LOÐNA Meiri bjartsýni ríkir fyrir kom-
andi loðnuvertíð en nýliðin vertíð var
afar léleg. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Ný tækni
við göngu-
greiningu
Flexor notast við nýja tækni við
göngugreiningu. Göngu- og hlaupa-
brettið okkar býr yfir innbyggðum
þrýstinemum sem skilar nákvæmum
upplýsingum um göngulag.
Fáðu góð ráð, faglega göngugreiningu
og lausnir við stoðkerfisvandamálum
hjá Flexor.
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Strekkibönd
– verulegt úrval!63404 2 bögglateygjur
720 cm með stálkrókum
540
63303 2 Tóg 450 cm
- þolir 2,3 tonn
1.750
64403 4 bönd
með krókum
2,5x190 cm
3.290
63102 4 bönd
með krókum
2,5x360 cm
2.490
64105
ndFarangursba
m2,5x360 c
520
64515
440
44076
0901.
100 m. krókum 63
4,5 tonn
5x670 cm
3.290
63114
3.150
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
MENNTAMÁL Kennarasamband
Íslands (KÍ) gagnrýnir þær leiðir
sem á að fara til að ná mark miðum
sem sett eru fram í Hvítbók Illuga
Gunnarssonar menntamálaráð-
herra, um umbætur í mennta-
málum, og segir sparnaðaranda
svífa yfir vötnum.
Tvö meginmarkmið eru sett
fyrir árið 2018. Annars vegar
um aukna lestrarhæfni nemenda.
Hins vegar að hlutfall nemenda
sem ljúka námi úr framhalds-
skóla á tilsettum tíma hækki úr
44 prósentum í 60 prósent. Mark-
miðunum á að ná með því að
endur skipuleggja námstíma og
stytta nám til lokaprófa, draga úr
brotthvarfi og breyta skipulagi
starfsmenntunar. KÍ gagnrýnir
þessa leið og telur ekki að stytting
námstíma sé svarið við vandanum.
„Í Hvítbók er mikið gert úr að
vísa til rannsókna í menntamálum
en þegar það kemur að styttingu
námstíma hafa engar rannsóknir
verið gerðar á því og ekkert sem
styður þá fullyrðingu að það sé góð
leið,“ segir Aðalheiður Steingríms-
dóttir, varaformaður KÍ.
Aðalheiður bendir á að stuðn-
ingur við nemendur, fjölbreyttara
námsframboð, aukin starfs- og
námsráðgjöf og minni náms hópar
séu vænlegri leiðir til árangurs.
Einnig að skima fyrir brott-
hvarfseinkennum mjög snemma
á skólagöngu nemenda og vinna
kerfisbundið með forvarnir frá
grunnskólastigi yfir í framhalds-
skóla.
Allt er þetta hluti af mennta-
stefnu sem samþykkt var árið
2008 en hefur, samkvæmt KÍ, að
stórum hluta legið niðri vegna
efnahagskreppunnar.
„Það er ekkert komið inn á fjár-
muni í Hvítbók. Ef meiningin er
að koma menntalögunum í fram-
kvæmd, sem KÍ fagnar, kostar
það fjármuni. Mér finnst skrýtið
að þær kröppu aðstæður sem
skólarnir búa við séu ekki settar
í samhengi og því finnst mér
vanta ákveðna veruleikatengingu
í Hvítbókina,“ segir Aðalheiður og
bætir við að sparnaðarandi svífi
yfir vötnum þótt það komi ekki
beinlínis fram.
„Illugi hefur sagt að hægt sé
að spara með því að stytta námið.
Þetta finnst okkur ekki boða gott
fyrir menntun nemenda og gæði
námsins. Nógu er búið að ganga
harkalega að menntakerfinu enda
hefur verið sparað þar frá því
fyrir efnahagshrun.“
erla@frettabladid.is
Gagnrýna styttingu
náms og sparnað
Kennarasamband Íslands segir styttingu náms ekki réttu leiðina til að hækka hlut-
fall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma. Varaformaður
segir sparnaðaranda svífa yfir vötnum í umbótatillögum menntamálaráðherra.
Í SKÓLASTOFUNNI Í Hvítbók er eitt meginmarkmiðið að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma
hækki úr 44 prósentum í 60 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mér
finnst skrýtið
að þær kröppu
aðstæður sem
skólarnir búa
við séu ekki
settar í
samhengi og því finnst mér
vanta ákveðna veruleika-
tengingu í Hvítbókina.
Aðalheiður Steingrímsdóttir,
varaformaður KÍ.
ÚKRAÍNA, AP Petró Porosjenkó,
forseti Úkraínu, lýsti einhliða
yfir vopnahléi í Austur-Úkraínu
í gær.
Herir stjórnvalda hafa barist
við uppreisnarmenn síðastliðnar
vikur. Yfir 350 hafa fallið í átök-
unum.
Vopnahléið mun standa í viku.
Talið er ólíklegt að uppreisnar-
menn leggi niður vopn fyrr
en herir stjórnvalda yfirgefa
austur hluta Úkraínu.
- ih
Einhliða ákvörðun forseta:
Vopnahléi lýst
yfir í Úkraínu
HEILBRIGÐISMÁL Til að ljúka
endur nýjun sjúkrarúma á Land-
spítala þarf að skipta út 509
slíkum. Áætlaður kostnaður er
rúmar 240 milljónir króna.
Síðla vetrar var lokið við
endur nýjun 101 sjúkrarúms. Þau
kostuðu 55 milljónir króna og
voru gjöf Minningargjafasjóðs
Landspítala. Þar af eru tvö gjör-
gæslurúm og tvö fyrir of þunga.
Áhersla er á að skipta út fót-
stignum rúmum. Þau nýju eru
rafknúin og tæknilegri. - fb
Endurnýjun á Landspítala:
Ný rúm fyrir
240 milljónir
BJÖRGUNARSTARF Leit björgunar-
sveitarmanna að Ástu Stefáns-
dóttur bar engan árangur í fyrra-
dag. Í gær var hefðbundið eftirlit
á svæðinu við Bleiksárgljúfur en
um helgina er vonast til að ýtar-
legri leit að Ástu geti hafist þar
sem vatnsflæðinu í gljúfrinu
verður breytt með stíflum og
dælum.
„Ég veit ekki hvort það hefst en
við erum að vinna í því að viða
að okkur viðeigandi tækjum og
tólum,“ segir Sveinn Kristján
Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á
Hvolsvelli, og bætir við að ekki
sé víst að hægt verði að stífla
rennslið því að það sé svo mikið
en það komi í ljós á næstu dögum.
Ekkert hefur spurst til Ástu
Stefánsdóttur síðan um hvíta-
sunnuna. Sambýliskona hennar,
Pino Becerra Bolanos, fannst
látin í Bleiksárgljúfri í síðustu
viku. Bræður Bolanos, sem komu
til landsins að sækja ösku hennar,
héldu úr landi í gær eftir að hafa
verið viðstaddir minningar-
athöfn um Bolanos í húsakynnum
Háskóla Íslands. - ebg
Ítarlegri leit að Ástu Stefánsdóttur er í undirbúningi hjá lögreglunni:
Leit hefur engan árangur borið
BLEIKSÁRGLJÚFUR Rennsli er svo
mikið í gljúfrinu að ekki er víst að hægt
verður að stífla það fyrir leitina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM