Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 10

Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 10
25. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Gott rval notaðra b la staðnum. Komdu heims kn eða skoðaðu heimas ðuna; www.hyundai.is og smellir flipann notaðir b lar S mi 575 1200 ALLT AÐ 80% FJ RM GNUN BEINT M TI IKEA HYUNDAI i40 WAGON STYLE Nýskr 02/2013, ekinn 21 þús. dísil, sjálfskiptur HYUNDAI IX20 COMFORT Nýskr 09/2011, ekinn 22 þús. bensín, sjálfskiptur HYUNDAI i30 COMFORT Nýskr 08/2009, ekinn 14 þús. bensín, beinskiptur TOYOTA LAND CRUISER 200 VX Nýskr 01/2008, ekinn 151 þús. dísil, sjálfskiptur NISSAN MICRA VISIA Nýskr 03/2011, ekinn 22 þús. bensín, beinskiptur RENAULT KANGOO 5 manna Nýskr 02/2014, ekinn 6 þús. dísil, beinskiptur. MMC Colt Nýskr 03/2006, ekinn 68 þús. bensín, sjálfskiptur VERÐ: 2.750.000 kr. VERÐ: 1.990.000 kr. VERÐ: 8.290.000 kr. VERÐ: 1.590.000 kr. VERÐ: 3.890.000 kr. VERÐ: 850.000 kr. HYUNDAI VERÐ 4.490 þús. HYUNDAI NOTAÐIR NEW THINKING. NEW POSSIBILITIES. Kaupt ni 1- (Beint m ti IKEA) Nr. 310063 Nr. 120294 Nr. 170355 Nr. 281387 Nr. 310059 Nr. 131140 Nr. 310060 ÚKRAÍNA, AP Níu menn fórust með úkraínskri herþyrlu sem uppreisnarmenn í austurhluta landsins skutu niður í gær. Þetta gerðist þrátt fyrir að uppreisnar- menn hefðu lýst því yfir að þeir myndu virða vikulangt vopnahlé sem Úkraínustjórn boðaði til ein- hliða um síðustu helgi. Vladímír Pútín Rússlandsfor- seti hvatti í gær Úkraínustjórn til þess að hafa vopnahléið lengra en eina viku. Þá skoraði hann á Úkraínustjórn að nota vopnahléið til þess að ræða beint við leiðtoga uppreisnarmanna. Þá hefur Pútín skrifað rúss- neska þjóðþinginu bréf, þar sem hann óskar eftir því að þingið afturkalli heimild rússneska hersins til þess að beita hervaldi í Úkraínu. Hann sjálfur hafði óskað eftir því að þingið veitti þessa heimild og samþykkti þingið hana 1. mars síðastliðinn. Fastlega er reiknað með því að þingið muni fúslega verða við ósk hans um að afturkalla heim- ildina. Úkraínustjórn fagnar því að heimildin verði afturkölluð og sagði það mikilvægt skref í átt- ina til þess að koma á friði á ný. Pútín hefur tekið vel í friðar- áætlun Úkraínuforseta, sem segir vopnahléið ætlað til þess að uppreisnarmenn fái svigrúm til þess að leggja niður vopn og koma sér burt, vilji þeir fara burt. Evrópusambandið hefur hótað Rússlandi frekari refsi aðgerðum, sýni rússnesk stjórnvöld ekki raunverulega viðleitni til þess að koma á friði í Úkraínu. Pútín hefur frest þangað til á föstudag, þegar leiðtogafundur Evrópu- sambandsins verður haldinn. Sameinuðu þjóðirnar segja að 423 manns hafi látið lífið í átökum í austanverðri Úkraínu á tímabilinu frá 15. apríl til 20. júní. Rúmlega 46 þúsund manns hafa hrakist að heiman, þar af hafa um 11.500 manns flúið frá Krímskaga sem Rússland hefur nú innlimað. Úkraínustjórn hefur sakað rússneska hermenn um að hafa, um það leyti sem Krímskagi var innlimaður, komið fyrir jarð- sprengjum á mörkum Krím- skaga, til þess að hindra för úkra- ínskra hermanna inn á skagann. Rússar hafa undanfarið verið með um 40 þúsund manna her- lið við landamæri Úkraínu, og hafa Úkraínumenn margir litið á það sem hótun um að rússneski herinn muni ráðast inn í landið telji rússnesk stjórnvöld ástæðu til. gudsteinn@frettabladid.is Uppreisnarmenn skutu niður þyrlu Þrátt fyrir yfirlýsingu um að virða vikulangt vopnahlé skutu úkraínskir uppreisnar- menn í gær niður herþyrlu. Níu manns fórust. Vladímír Pútín Rússlandsforseti skorar á Úkraínustjórn að framlengja vopnahléið og ræða við uppreisnarmenn. VLADÍMÍR PÚTÍN Rússlandsforseti bað þingið í gær um að afturkalla heimild rúss- neska hersins til að beita valdi í Úkraínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AKUREYRI Akureyrarbær hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta Fréttablaðsins og Vísis um óánægju starfsmanna á Öldrunar- heimilum Akureyrar. Í yfirlýsingunni kemur fram að brýnt sé að vinna að lausn máls- ins sem einskorðist við eina deild Hlíðar. Almenn ánægja sé hins vegar á meðal starfsmanna og sýni kannanir sem gerðar voru árið 2013 að meirihluti starfsmanna sé ánægður í starfi. „Hjá Öldrunarheimilum Akur- eyrar (ÖA) starfa um 320 manns og því er um stóran vinnustað að ræða. Hér er um að ræða af- markað en engu að síður mikil- vægt verkefni sem þarf að leysa. Unnið er ötullega að lausn þess innan ÖA og hafa stjórnendur væntingar um að farsæl lausn muni finnast innan tíðar. Brýnt er að hlusta á sjónarmið allra sem að málinu koma og taka fullt tillit til þeirra í þeim lausnum sem lagðar verða fram,“ segir í yfirlýsingu frá Akureyrarbæ. - sa Akureyrarbær hefur gefið út yfirlýsingu vegna frétta um óánægju á Hlíð: „Meirihluti starfsfólks ánægður“ DVALARHEIMILIÐ HLÍÐ Akureyrarbær vill taka á málum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.