Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 40
25. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Ný stjarna er fædd
Leikkonan Nicola Peltz vakti fyrst athygli í kvikmyndinni The Last Airbender
árið 2010. Hún leikur aðalkvenhlutverkið í nýju Transformers-myndinni og eru
spekingar í Hollywood sammála um að hér sé á ferð næsta stórstjarna. Þá er
hún einnig talin mikið tískutákn og skartar ávallt hátísku á rauða dreglinum.
■ Fædd 9. janúar árið 1995 í New
York.
■ Móðir hennar, Claudia, er
fyrrverandi fyrirsæta og
faðir hennar, Nelson, moldríkur
athafnamaður sem átti einu
sinni Snapple-merkið.
■ Á sjö systkini.
■ Byrjaði ung í fyrirsætubrans-
anum.
■ Spilaði hokkí þegar hún var
yngri.
■ Þreytti frumraun sína á sviði
árið 2007 og lék á móti Jeff
Daniels og Alison Pill í leikritinu
Blackbird sem sett var upp af
Manhattan Theatre Club.
■ Fékk tilnefningu sem versta
leikkona í aukahlutverki á
Razzie-verðlaununum fyrir hlut-
verk sitt í The Last Airbender.
Hver er Nicola?
KANKVÍS
Í HVÍTU
Í kjól frá
Giambatt-
ista Valli
Couture.
PÍA Í
PRADA
Í síðkjól
frá
Prada.
EINFALDUR
ELEGANS
Í kjól frá
Stellu
McCartney.
LÍKA Í
LITUM
Í kjól frá
Fausto
Puglisi. DÁSAMLEG
Í dressi frá
Dior.
GLITRANDI
NÝSTIRNI
Í kjól frá
Gucci.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Ég er tiltölulega reynslulítill kaffi-drekkandi. Lærði ekki að drekka kaffi
fyrr en þrjátíu og eins, og þá bara sem
örlitla slettu af uppáhellingi út í heita
mjólk. Þessi blanda mín hefði ekki einu
sinni flokkast sem lopatreflalattésull.
Mjólkin tók varla lit.
KAFFIDRYKKJA mín hófst einungis
fyrir selskapinn, ekki fyrir bragð
né áhrif. Ég vann í búð og klukkan
tíu fóru samstarfskonurnar að tala
um að „hella uppá“. Þessu fylgdi
notaleg stemning sem ég upplifði
ekki fullkomlega nema með rjúkandi
bolla í hendi. Ég fór því að hita mjólk
í örbylgjuofninum á kaffistofunni og
skvetta kaffi út í.
ÉG komst hægt og bítandi upp
á bragðið. Blandan styrktist
og ég fór að panta mér kaffi
latté en ekki kakó á kaffi-
húsum. Ég eignaðist pressu-
könnu og bolla og keypti
kaffi sem bar framandi nöfn
eins og Java Mocca. Ég var
orðin dagdrykkjumanneskja.
Örbylgjutæknin hætti að duga mér og ég
fór að flóa mjólk í sérstakri rafmagns-
freyðikönnu.
ÞEGAR hægt varð að flóa mjólk á stút
á kaffivélinni í vinnunni hafði ég himin
höndum tekið. Því fylgdi mikill hávaði,
en ég gerði það samt. Gat ekki sleppt því.
Bollinn var ekki sá sami óflóaður. Kaffi-
bollum á dag fjölgaði og metnaðurinn við
hvern þeirra óx. Ég byrjaði vinnudaginn
strax á einum og náði öðrum fyrir há-
degið. Tveimur til þremur seinni partinn.
Ég var farin að hugsa um rjúkandi boll-
ann um leið og ég stimplaði mig inn og
saknaði hans þegar ég fór heim.
SVO fékk ég sjálfmalandi espresso-vél í
afmælisgjöf. Kaffið úr henni er himneskt
og notalegt kurrið fær mann til að lygna
aftur augum! Vinnubollinn á ekki séns. Nú
sakna ég heimabollans þegar ég stimpla
mig inn og fitja upp á nefið yfir nýflóuðum
vinnubollanum. „Ja hérna, þú þarft bara
að taka það með þér,“ sagði þá einhver og
ég fann að það er komið að næsta skrefi í
þroskasögu minni sem kaffineytanda. Ég
þarf að fá mér ferðamál.
Þroskasaga kaffi neytanda
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
TRANSFORMERS 4, 7, 8, 10:10(P)
TEMJA DREKANN SINN 2D 4:30
BRICK MANSIONS 11:10
22 JUMP STREET 8
MILLIOM WAYS, DIE WEST 10:20
VONARSTRÆTI 5
ÍSL TAL
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
SHORT TERM 12
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI
FRÍTT INN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
„ÉG GAPTI AF UNDRUN!“
- GUARDIAN
TRANSFORMERS 2D
TRANSFORMERS 3D
TRANSFORMERS 3DLÚXUS
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
AÐ TEMJA DREKANN 2 3DÍSL. TAL
22 JUMP STREET
FAULT IN OUR STARS
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN3D
VONARSTRÆTI
KL. 4
KL. 8 - 10.30
KL. 5 - 9
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5.30 - 8 - 10.40
KL. 8
KL. 3.30
KL. 10.40
KL. 8
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
TRAIN. . . DRAGON 3DENS. TAL ÓTEXT.
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
Miðasala á: Kauptu miða á X-Men með
KL. 8 - 10.40
KL. 5.45
KL. 8 - 10.15
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40
KL. 5.20
KL. 5.20 - 8 - 10.40
-T.V., BIOVEFURINN.IS
-FRÉTTABLAÐIÐ-DV S.R.S