Fréttablaðið - 07.08.2014, Page 4
7. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
14.200 manns störf-uðu við veiðar
og vinnslu sjávarfangs árið 1991.
Árið 2012 störfuðu 9.100 í greininni
en fæst á tímabilinu 7.200 árið
2008.
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþingis
hefur ritað Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráðherra bréf þar
sem óskað er eftir því að umboðs-
maður verði upplýstur um hvort
ríkisstjórnin hafi samþykkt siða-
reglur fyrir ráðherra. Hafi slíkt
ekki verið gert óskar umboðsmað-
ur eftir afstöðu forsætisráðherra til
þess hvort siðareglur ráðherra sem
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
samþykkti árið 2011 gildi um störf
núverandi ríkisstjórnar. Jafnframt
er óskað eftir því að umboðsmanni
verði tilkynnt um það sérstaklega
ef ríkisstjórnin samþykkir slíkar
reglur.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust í forsætisráðuneytinu í
gær hefur ríkisstjórnin ekki sam-
þykkt nýjar siðareglur. Siðareglur
sem fyrri ríkisstjórn setti féllu úr
gildi um leið og skipt var um stjórn.
Það mun hins vegar hafa verið rætt
á ríkisstjórnarfundi að fylgja siða-
reglum fyrri stjórnar, á meðan
nýjar reglur hafa ekki verið samd-
ar. - jme
Ríkisstjórnin hefur ekki samþykkt nýjar siðareglur fyrir ráðherra stjórnarinnar:
Spyr um siðareglur ríkisstjórnar
SAMGÖNGUR Ný brú yfir Múla-
kvísl á Mýrdalssandi var vígð í
gær, þremur árum eftir að hlaup
eyðilagði eldri brú yfir ána. Í
millitíðinni hefur verið notast við
bráðabirgðabrú sem smíðuð var á
sjö dögum sumarið 2011.
Nýja brúin er 162 metra löng og
tíu metra breið. Nýr vegur sem
lagður var að henni er 2,2 kíló-
metrar og 8 metra breiður. Brúar-
gólfið á nýju brúnni er um tveim-
ur metrum hærra en á gömlu
brúnni og lágpunktar eru í veg-
inum hvor sínum megin til þess að
flóð af þeirri stærðargráðu sem
varð í júlí 2011 taki ekki af brúna
en rjúfi þess í stað veginn. - jme
Nýja brúin er 162 metra löng:
Ný brú yfir
Múlakvísl vígð
SKEMMTUN Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva verður
haldin í Wiener Stadthalle í Vín-
arborg í maí á næsta ári, en end-
anleg ákvörðun um keppnisstað
var tekin í gær.
Conchita Wurst bar sigur úr
býtum með lagi sínu Rise Like a
Phoenix þegar keppnin fór fram
í Kaupmannahöfn í maí síðast-
liðnum. Varð því ljóst að keppn-
in færi fram í Austurríki að ári.
Þrjár borgir sóttust eftir að fá að
halda keppnina. - aí
Búið að finna hljómleikahöll:
Söngvakeppnin
verður í Vín
SAMGÖNGUR Í júlí flutti Icelandair
355 þúsund farþega í millilanda-
flugi og voru þeir 16 prósentum
fleiri en í júlí á síðasta ári. Þetta
er mesti farþegafjöldi í einum
mánuði frá stofnun félagsins.
Í tilkynningu frá félaginu
kemur fram að þetta er í fyrsta
sinn sem félagið flytur í einum
mánuði fleiri farþega en sem
nemur íbúatölu Íslands.
Framboðsaukning á milli ára
nam 19 prósentum og var sæta-
nýting 85,9 prósent, samanbor-
ið við 86,1 prósent á sama tíma í
fyrra. -rkr
Aldrei fleiri farþegar:
Metfjöldi ferðast
með Icelandair
Á FERÐ OG FLUGI Farþegar Icelandair í
júlí voru fleiri en sem nemur íbúafjölda
Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EKKI SETT REGLUR Ríkisstjórn Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur
ekki sett sér siðareglur en notast við
eldri reglur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÖGREGLUMÁL „Þetta er grafalvarlegt mál.
Það að umboðsmaður Alþingis óski eftir því
að fá nánari upplýsingar frá innanríkisráð-
herra um lekamálið undirstrikar mikilvægi
þess að við fáum að sjá efnislegar niður-
stöður í málinu þegar þær liggja fyrir,“
segir Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar.
Umboðsmaður Alþingis hefur ritað
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkis-
ráðherra bréf í framhaldi af svari ráð-
herrans 1. ágúst sl. við bréfi umboðsmanns
frá 30. júlí sl. Í bréfinu er óskað eftir nán-
ari upplýsingum og gögnum um samskipti
innanríkisráðherra við lögreglustjórann á
höfuðborgarsvæðinu. Umboðsmaður óskar
eftir svari við bréfinu eigi síðar en 15.
ágúst.
Árni Páll segir að það sama gildi raunar
um ríkissaksóknara, þegar hann hafi lokið
umfjöllun sinni um lekamálið verði menn
að fá að sjá niðurstöðurnar vegna þess að
það sem fólk hafi séð í blaðafregnum bendi
til að gefnar hafi verið misvísandi skýring-
ar á hlutunum og það sé alvarlegt.
Árni Páll ítrekar þá afstöðu sína að
Hanna Birna eigi að víkja tímabundið.
„Það er óeðlilegt að ráðherra lögreglu-
mála sitji í embætti á meðan lögreglurann-
sókn er í gangi. Ég sé ekki betur en formað-
ur Sjálfstæðisflokksins hafi hálfgildings
tekið undir það sjónarmið í fréttum undan-
farna daga,“ segir Árni Páll.
Hvorki náðist í formann VG, formann
þingsflokks né fyrrverandi ráðherra
flokksins í gær.
„Það sýnir alvarleika málsins að umboðs-
maður skuli óska eftir nánari upplýsing-
um frá ráðherranum,“ segir Lilja Rafney
Magnúsdóttir, þingmaður VG. Hún segir að
að hennar mati eigi Hanna Birna að stíga
til hliðar, það hefði hún átt að gera í upphafi
málsins. „Það er aldrei of seint að verða
skynsamur, ef hún stigi til hliðar núna væri
það til marks um bætta dómgreind hennar,“
segir Lilja Rafney.
Hún segir löngu tíma-
bært að breyta þeirri hefð
að ráðherrar stígi ekki til
hliðar sæti þeir rannsókn.
Það sé eðlilegt að bíða nið-
urstöðu rannsóknarinnar,
þegar hún liggur fyrir geti
viðkomandi ráðherra metið
stöðu sína.
„Hefðin hér er önnur en
það er kominn tími til að
breyta þessu. Þó að ráðherra stígi til hliðar
um stund þarf það ekki að vera neinn end-
anlegur dómur yfir honum eða hans ferli,“
segir Lilja Rafney.
johanna@frettabladid.is
Umboðsmaður vill nánari
skýringar í lekamálinu
Formaður Samfylkingarinnar segir að það undirstriki mikilvægi lekamálsins að umboðsmaður vilji nánari
skýringar. Þingmaður VG segir að þótt ráðherra víki um stund þurfi það ekki að vera endanlegur dómur.
LILJA RAFNEY
MAGNÚSDÓTTIR
Það er óeðlilegt að
ráðherra lögreglumála
sitji í embætti á meðan
lögreglurannsókn er
í gangi. Ég sé ekki betur
en formaður Sjálfstæðis-
flokksins hafi hálfgild-
ings tekið undir það sjónarmið
í fréttum.
Árni Páll Árnason,
formaður Samfylkingarinnar
VILL SKÝRARI SVÖR
Umboðsmaður
Alþingis hefur óskað
eftir nánari skýringum
frá innanríkisráðherra
varðandi lekamálið.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
BEST VESTANLANDS Veðrið verður hagstæðast fyrir vestanvert landið næstu daga
og fram á helgi, en norðaustanátt ríkir enn með vætu einkum um austanvert landið en
bjartara og mildara veðri suðvestan og vestan til.
11°
9
m/s
15°
6
m/s
15°
6
m/s
14°
13
m/s
5-10 m/s.
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
28°
33°
23°
24°
22°
23°
22°
23°
23°
26°
25°
31°
31°
31°
25°
25°
23°
24°
13°
8
m/s
12°
12
m/s
12°
6
m/s
12°
7
m/s
13°
5
m/s
16°
7
m/s
10°
6
m/s
15°
15°
9°
9°
13°
14°
12°
13°
10°
14°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN