Fréttablaðið - 07.08.2014, Page 13
FIMMTUDAGUR 7. ágúst 2014 | FRÉTTIR | 13
SAMFÉLAGSMÁL Minningarstund
verður haldin í Viðey í kvöld. Ljós
Friðarsúlunnar verður tendrað í
minningu þeirra barna sem látið
hafa lífið á síðustu vikum í hinum
skelfilegu árásum sem lagt hafa
samfélagið á Gasa í rúst.
Friðarsinninn og listamað-
urinn Yoko Ono tilkynnti fyrir
nokkrum dögum að kveikt yrði á
Friðar súlunni af þessu tilefni og
mun ljósið loga yfir nóttina. Í til-
kynningu frá Yoko Ono segir:
„Við erum öll harmi slegin yfir
því að svo mörg saklaus börn
hafa látið lífið í átökum Ísraels
og Palestínu. Með þeirri von að
ofbeldinu linni tafarlaust mun
ljós Friðarsúlunnar verða tendr-
að þann 7. ágúst næstkomandi,“
segir í tilkynningu Ono. - jhh
Minningarstund í kvöld:
Látinna barna
á Gasa minnst
FAGUR HIMINN Kveikt verður á Friðar-
súlunni á morgun.
Eldborg
24. ágúst kl. 19:30
Hinn ástsæli fiðlukonsert
Tchaikovskys í D-dúr verður
fluttur undir stjórn Peter
Oundjian af einleikaranum
James Ehnes.
Að sögn The Guardian
er Ehnes einstaklega
ljóðrænt undrabarn
sem lætur hárin rísa.
www.harpa.is/tso
Tryggðu þér miða í síma 528 5050, á midi.is og harpa.is
Rússnesk rómantík í Hörpu
Toronto
Symphony
Orchestra
Þjóðarhljómsveit Kanada
B
ra
n
d
en
b
u
rg
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín
Rússlandsforseti hefur skipað
svo fyrir að innflutningur á mat-
vælum og landbúnaðarvörum
frá Evrópusambandsríkjum og
Bandaríkjunum verði bannaður
eða takmarkaður í eitt ár.
Þetta eru viðbrögð hans við
refsiaðgerðum Bandaríkjanna
og ESB vegna afstöðu Rússa til
átakanna í Úkraínu. Fátt bend-
ir þó til þess að innflutningstak-
markanirnar eigi að verða mjög
víðtækar, enda eru Rússar mjög
háðir innflutningi á matvælum.
Bandaríkin og ESB hafa sakað
Rússa um að kynda leynt og ljóst
undir ólgunni í austanverðri
Úkraínu. Meðal annars eru
Rússar sagðir hafa útvegað upp-
reisnarmönnum, sem eru hlið-
hollir Rússlandi, bæði vopn og
sérfræðiaðstoð.
Bæði ESB og Bandaríkin
hafa samþykkt refsiaðgerðir
gegn Rússum, nú síðast aðgerð-
ir sem beinast ekki að tiltekn-
um einstaklingum heldur heilum
atvinnugeirum. Refsiaðgerðirnar
eru þegar farnar að bitna á efna-
hagsástandinu í Rússlandi, en
gætu sem hægast komið niður á
efnahagsástandinu á Vesturlönd-
um líka vegna samdráttar í við-
skiptum við Rússland.
Ekkert lát er á hörðum átökum
í Úkraínu. Í gær gerði Úkraínu-
her í fyrsta sinn loftárás á borg-
ina Dónetsk, sem uppreisnar-
menn hafa haft á valdi sínu
mánuðum saman.
- gb
Pútín svarar refsiaðgerðum Bandaríkjanna og Evrópusambandsins með mótaðgerðum:
Takmarkar innflutning á matvælum
VLADIMÍR PÚTÍN RÚSSLANDSFOR-
SETI Tilkynnti um mótaðgerðir gegn
refsiaðgerðum Vesturlanda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL Í tilefni Hinsegin
daga mun bókasafn Seltjarnar-
ness bjóða gestum að kynna sér
fjölbreytt úrval bóka og mynd-
banda um samkynhneigða.
„Við höfum fundið til efni sem
varpar ljósi á hinsegin fólk frá
ýmsum sjónarhornum. Ýmist
skáldsögur, ævisögur, myndbönd,
tímarit eða fræðsluefni,“ segir
Soffía Karlsdóttir, sviðsstjóri
menningar- og samskiptasviðs
bókasafns Seltjarnarness.
„Þetta er kjörið tækifæri til að
stilla upp þessum bókmenntum
sem eru alla jafna ekki mikið
frammi,“ bætir Soffía við. - ih
Bókasafnið vill efla samstöðu:
Hinsegin bækur
á Seltjarnarnesi
HEILSA Alls hafa 7.880 skráð sig
til þátttöku í Reykjavíkurmara-
þoni, sem fram fer 23. ágúst. Það
er um 7 prósentum fleiri en á
sama tíma í fyrra. Í tilkynningu
segir að metfjöldi stefni á þátt-
töku í maraþoni en 1.037 hafa nú
skráð sig. Gamla þátttökumetið
var sett í fyrra þegar 977 skráðu
sig. Í fréttatilkynningu frá ÍBR
og Reykjavíkurmaraþoni segir að
10 kílómetra vegalengdin sé sem
fyrr vinsælasta vegalengdin, en
rúmlega helmingur skráðra þátt-
takenda stefnir á að hlaupa þá
vegalengd eða 4.103. - jhh
Styttist í Reykjavíkurmaraþon:
Stefnir í nýtt
þátttökumet
HLAUPIÐ Þúsundir Íslendinga hlaupa á
ári hverju í Reykjavíkurmaraþoni
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL.