Fréttablaðið - 07.08.2014, Side 28
FÓLK|TÍSKA
VEL KLÆDDIR HLAUPARAR Hluti hlaupahópsins ásamt mökum í lopapeysum og með trefla. Kristrún er í einlitri peysu fyrir miðju.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Gamall kjarni í hlaupahópi Snælands-skóla í Kópavogi hefur komið á skemmtilegri hefð innan hóps-
ins. Þegar meðlimur hópsins á stór-
afmæli prjóna hinir peysu handa
afmælisbarninu. Að sögn Krist-
rúnar Hjaltadóttur, eins félaga
í hópnum, má rekja hefðina til
þess að ein í hópnum átti sextugs-
afmæli fyrir nokkrum árum. „Okkur
fannst tilvalið að prjóna lopapeysu
handa henni enda hafði hún sjálf látið
þau orð falla að hana bráðvantaði eina
slíka. Upphaflega átti þetta bara að vera ein peysa
en vinnuferlið var svo skemmtilegt, auk
þess sem peysan vakti mikla lukku,
þannig að ekki kom annað til greina
en að endurtaka leikinn þegar
næsta stórafmæli nálgaðist. Og nú
eru peysurnar orðnar sex.“
Upphaf hlaupahópsins má rekja
til leikfimitíma á vegum foreldra-
félagsins í Snælandsskóla þar sem
Kristrún starfar. „Með þátttöku nokk-
urra í Reykjavíkurmaraþoninu styrkt-
ust tengsl þeirra enn meir og leiddu
til náinnar vináttu sem síðar náði til
eiginmanna þeirra. Annað sameigin-
legt áhugamál sömu kvenna var og er
prjónaskapur.“
Vinnuferlið er þannig að hópurinn hittist án
afmælisbarnsins og leggur línurnar með snið og liti.
Efnisvalið er alltaf það sama en peysurnar
eru unnar úr íslenskum plötulopa og
einbandi. „Við leggjum áherslu á fjöl-
breytileikann og því eru peysurnar
ólíkar í sniði og litum. Síðan hjálp-
umst við allar að við að prjóna þann-
ig að hver peysa er jafnvel prjónuð af
átta konum. Að lokum fær svo peysan
lógó sem myndað er úr upphafsstöfum
þeirra sem að verkinu koma.“
Eiginmenn hlaupakvennanna eru
heldur ekki skildir út undan. Þegar þeir
verða sextugir fá þeir prjónaðan trefil í afmælis-
gjöf frá hópnum. „Þemað í treflunum er
það sama og engir tveir treflanna eru
eins. Hingað til höfum við prjónað sex
trefla.“
Þessi hefð hefur eðlilega vakið
athygli og kannast Kristrún ekki við
að aðrir hlaupahópar búi yfir svipaðri
hefð. „Peysurnar hafa vakið verðskuld-
aða athygli enda er einstaklega gaman
að klæðast peysu sem hönnuð er og
prjónuð af mörgum góðum vinkonum.“
Þessi kjarni hittist þrisvar í viku og
hleypur saman. „Þar vegur félagsskap-
urinn þungt. Hlaupin eru holl og góð
útivera og við hlaupum í hvaða veðri sem
er. Þau veita svo sannarlega góða hvíld frá hvers-
dagslegu amstri.“
HLAUPAGARPAR
PRJÓNA PEYSUR
SKEMMTILEG HEFÐ Konurnar í Snælandsskokkhópnum prjóna lopapeysu
handa meðlimum sem verða sextugir. Hver peysa hefur sérstakt útlit.
Victoria Beckham ætlar að selja yfir 600
flíkur til styrktar hjálparsamtökunum
Mothers2mothers. Þær verða boðnar
upp á sölusíðunni The Outnet frá 20.-25.
ágúst með stuðningi uppboðsfyrirtækis-
ins Christie’s
Mothers2mothers-samtökin vinna
með HIV-smituðum mæðrum í Suður-
Afríku með það að markmiði að draga
úr líkum á áframhaldandi smiti, og þá
sérstaklega til barna þeirra. Victoria
heimsótti konurnar fyrr á þessu ári og
varð fyrir miklum áhrifum. „Í kjölfarið
ákvað ég að leggja mitt af mörkum til
að styrkja samtökin.“
Victoria hefur að undanförnu farið
gaumgæfilega í gegnum fataskápinn.
„Ég hef velst um af hlátri enda vekja margar
flíkurnar upp skemmtilegar minningar.
Margar þeirra hafa verið sérstaklega hann-
aðar fyrir mig og ég hef notið þess að
klæðast þeim. Nú finnst mér hins vegar
kominn tími til að aðrir fái að njóta
þeirra,“ segir Victoria.
„Við völdum að fara í samstarf
við The Outnet enda hefur síðan
gríðarlega útbreiðslu um allan heim
sem er jafnframt frábær leið til að
vekja athygli á Mothers2mothers.“
Victoria mun bæði selja fatnað og fylgi-
hluti. Þarna verða kjólar, kápur, dragtir,
hattar, skór, töskur, skíðaföt og skart. Þeir
sem vilja taka þátt í uppboðinu þurfa að skrá
sig á theoutnet.com/vbcharitysale.
VICTORIA OPNAR FATASKÁPINN
Tískugyðjan Victoria Beckham ætlar að selja yfir 600 flíkur úr eigin fataskáp
til styrktar hjálparsamtökunum Mothers2mothers.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
ÚTSALAN
í fullum gangi
enn meiri verðlækkun
50% afsláttur af öllum útsöluvörum
(reiknast af upphaflegu verði)
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Útsalan
í fullum gangi
enn meiri verðlækkun
50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
(reiknast af upphaflegu verði)
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Stærðir 38-52
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 10–15.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Verð áður: Verð nú:
Pils 6.900 kr. 3.450 kr.
Pils 13.900 kr. 6.950 kr.
Buxur 6.900 kr. 3.450 kr.
„Pleðurbuxur“ 8.900 kr. 4.450 kr.
Kjóll 7.900 kr. 3.950 kr.
Kjóll 11.900 kr. 5.950 kr.
Flíspeysa 8.900 kr. 4.450 kr.
Kvarterma bolur 4.900 kr. 2.450 kr.
Peysujakki 11.900 kr. 5.950 kr.
Toppur 3.900 kr. 1.950 kr.
Gerið góð kaup á góðum fatnaði á
MJÖG góðu verði.