Fréttablaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 50
7. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42
FÓTBOLTI Mist Edvardsdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu og
leikmaður Vals, greindist með
krabbamein í eitlum fyrr á árinu
en hefur ekki látið það stoppa sig
í boltanum því hún hefur náð að
spila og æfa á fullu meðfram því
að vera í lyfjameðferð. Mist hefur
spilað 814 af 990 mögulegum mín-
útum í boði hjá Valsliðinu í Pepsi-
deildinni í sumar og var aðeins
búin að missa úr 24 mínútur þegar
hún fékk rautt spjald í leik á móti
Þór/KA á dögunum.
„Ég hafði náð að spila alla leiki
þangað til að Garðar Örn tók sig
til og sendi mig í bann,“ segir
Mist í léttum tón en það var Rauði
baróninn Garðar Örn Hinriksson
sem gaf henni rauða spjaldið á 28.
mínútu í leiknum við norðanstúlk-
ur. Mist missti þar með af sínum
fyrsta deildarleik í síðustu umferð
þegar hún tók út leikbann í leik á
móti Aftureldingu.
Spilar og æfir á fullu
„Mér hefur tekist að spila og æfa
á fullu. Ég finn aðeins fyrir þessu
þegar þetta er orðið erfiðara en
ég er heppin að vera miðvörður og
þurfa ekki að hlaupa eins mikið og
miðjumennirnir. Ég finn helst mun
á því að formið er aðeins verra,“
segir Mist.
Hún er á fullu í lyfjameðferð og
fram undan er fyrsta vísbending
um það hvernig gengur. „Þetta
gengur þokkalega. Ég er búin með
fjórar lyfjagjafir af sextán og er
að fara aftur út til Danmerkur í
jáeindaskönnun númer tvö sem er
fyrsta myndataka eftir að ég byrj-
aði í lyfjagjöfinni. Ég fer í það í
næstu viku og þá kemur í ljós hver
staðan er á þessu því þá fær maður
að vita það svart á hvítu hvernig
það gengur allt,“ sagði Mist um
stöðu mála hjá sér.
Heppin ef hún gæti æft
Það að dómarinn hafi stoppað hana
en ekki lyfjagjöfin er til marks um
hinn mikla viljastyrk og ákveðni
sem þessi öflugi leikmaður býr
yfir. „Mér var sagt áður en ég
byrjaði í lyfjameðferðinni að ég
yrði heppin ef ég gæti æft og ég
yrði örugglega að hætta að spila
strax. Ég hef ekki ennþá fundið
neitt þannig fyrir því. Ég æfi á
fullu og spila bara. Það er algjör
snilld. Þrjóskan hjálpar samt
örugglega til,“ viðurkennir Mist.
Skönnun í Danmörku
Mist þarf að fara til Danmerkur í
næstu viku og missir hugsanlega
af einum leik vegna þess.
„Ég fer í þriggja daga ferð til
að fara í skönnunina og kem heim
sama dag og við spilum á móti
Blikum. Ég veit ekki hvort ég verð
með í þeim leik en eins og staðan
er núna þá tek ég þetta bara einn
dag í einu. Ég ætla samt að vera
með þangað til líkaminn segir
stopp og vonandi gerir hann það
ekkert,“ segir hún.
Mist hefur ekki misst af leikj-
um eða mörgum æfingum en
hárið þurfti hins vegar að fjúka.
„Það var farið að þynnast svo
rosalega á mér hárið. Ég fór að
finna fyrir því fyrir tveimur til
þremur vikum að hárið var farið
að losna rosalega mikið. Það var
orðin algjör pína að fara í sturtu
því það komu bara hárboltar úr
burstanum þegar ég var að greiða
mér,“ segir Mist sem lét taka hárið
í byrjun vikunnar.
„Ég gerði samning við sjálfa
mig um að þrauka fram yfir versl-
unarmannahelgi og pantaði svo
bara tíma hjá vinkonu minni í
klippingu í fyrsta tíma eftir versl-
unarmannahelgi,“ segir Mist.
Fær stuðning úr öllum áttum
Hún hefur alltaf verið tilbúin að
ræða baráttu sína opinberlega og
hún hefur fengið góð viðbrögð við
því.
„Það hjálpar mér bara í þessari
baráttu og ég er fyrir vikið að fá
stuðning úr öllum áttum,“ segir
Mist að lokum.
Næsti leikur Valsliðsins er á
móti ÍA í kvöld sem verður fyrsti
leikur miðvarðarins með nýju
klippinguna sína.
ooj@frettabladid.is.
Dómarinn stöðvaði
Mist en ekki lyfj agjöfi n
Mist Edvardsdóttir hefur aðeins misst af einum leik þrátt fyrir að vera í lyfj ameðferð vegna eitlakrabba-
meins og það var vegna leikbanns. Hárið varð að fj úka en Mist er staðráðin í því að klára tímabilið.
HÁRIÐ FARIÐ Mist Edvardsdóttir sýndi nýju hárgreiðsluna sína á Fésbókinni í vikunni. MYND/ÚR EINKASAFNI
FÓTBOLTI „Þessu fylgir alltaf
sama góða tilfinningin – það er
því miður bara alltof langt síðan
ég upplifði þetta,“ segir Elísabet
Gunnarsdóttir, þjálfari kvennaliðs
Kristianstad í sænsku úrvalsdeild-
inni í fótbolta, við Fréttablaðið um
bikarúrslitaleikinn gegn Linköp-
ing í kvöld.
„Ég hef ekki verið mikið í
úrslitaleikjunum síðan ég flutti til
Svíþjóðar,“ segir hún og hlær við,
en Elísabet bjó til nær ósigrandi
Valslið sem varð Íslandsmeistari
þrisvar í röð og tvisvar til viðbót-
ar undir stjórn aðstoðarþjálfara
hennar, Freys Alexanderssonar,
eftir að hún fór út.
„Það eru alveg átta ár síðan ég
vann bikarúrslitaleik þannig að
það er tími til kominn,“ bætir hún
við.
Kristianstad mætir sem fyrr
segir Linköping, sem er fyrir
fram talið sterkari aðilinn. Leið
Kristian stad í úrslitin hefur þó
verið flott, en það vann næstbesta
lið deildarinnar, KIF Örebro, í
undanúrslitum.
„Við erum lítið félag á sænskan
mælikvarða og þetta er stærsti
leikur sem okkar félag hefur spil-
að. Örebro vann Rosengård í átta
liða úrslitum, en við áttum góðan
leik í undanúrslitum og unnum
þær. Það er alltaf skemmtilegra að
komast í úrslit með því að vinna
góð lið á leiðinni,“ segir Elísa-
bet. Hvernig metur hún
möguleika sinna stúlkna?
„Bikarúrslitaleikur er
alltaf bikarúrslitaleikur.
Mín upplifun er að leik-
menn gefa alltaf meira
en þeir eiga í þannig
leik þannig að mögu-
leikarnir hljóta
að teljast jafnir
fyrir bæði lið.
Linköping er
samt sterkara
á pappírnum.“
Sif Atladótt-
ir, Elísa Við-
arsdóttir og
Guðný Björk
Óðinsdóttir
eru á mála hjá
Kristianstad og
leika lykilhlut-
verk hjá liðinu.
Þá var markavél-
in Margrét Lára
Viðarsdóttir í her-
búðum Kristian-
stad áður en hún
tók sér frí vegna
barneigna.
„Þær eru allar búnar að standa
sig mjög vel. Við erum að
spila varnarleikinn
vel og halda hreinu í
helmingi leikjanna í
deildinni. En eftir að
við misstum Margréti
erum við að skora of
lítið. Sif verður svo
ekki með í bikarúrslit-
unum vegna meiðsla.
Það er nánast öruggt,“
segir Elísabet.
Svíar hafa lengi
þótt sérstakir þegar
kemur að móta-
fyrirkomulagi og
engin breyting er
á því þegar kemur
að bikarúrslita-
leiknum
á morg-
un. Hann
fer nefni-
lega fram
á heimavelli
Linköping.
Ástæðan?
„Þetta er þannig
að liðið sem hefur
spilað færri heima-
leiki á leiðinni í úrslit-
in fær heimaleik.
Liðin spiluðu jafn-
marga heimaleiki þannig að það
var kastað upp á þetta,“ segir
Elísabet, en Linköping er um fjög-
urra tíma keyrsla frá Kristianstad.
„Þetta er svolítið kjánalegt. Við
reiknum því miður ekki með neitt
mörgum frá okkur á leiknum, en
vonumst eftir svona 100 manns.“
Leikinn má sjá í beinni útsend-
ingu á sænska ríkissjónvarpinu
annað kvöld, en hann hefst klukk-
an 17.00. tomas@365.is
Spila úrslitaleik bikarkeppninnar á útivelli
Íslendingaliðið Kristianstad spilar stærsta leikinn í sögu félagsins undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur.
ÍSLENSKU STELPURN-
AR Í KRISTIANSTAD
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR
37 ára þjálfari
Hefur þjálfað Kristianstad frá 2009.
SIF ATLADÓTTIR
29 ára fyrirliði og varnarmaður
11 leikir í sænsku deildinni í sumar
ELÍSA VIÐARSDÓTTIR
23 ára varnarmaður
11 leikir í sænsku deildinni í sumar
GUÐNÝ BJÖRK ÓÐINSDÓTTIR
25 ára miðjumaður
8 leikir í sænsku deildinni í sumar
VANN BIKARINN 2006
Elísabet Gunnarsdóttir gerði
Valskonur einu sinni að bikar-
meisturum.
FÓTBOLTI Seinni leikur FH og
Elfsborgar frá Svíþjóð í 3. umferð
forkeppni Evrópudeildarinnar fer
fram á Kaplakrikavelli í kvöld.
Þrátt fyrir 4-1 tap í fyrri leikn-
um ytra sér Heimir Guðjóns-
son, þjálfari FH, sóknarfæri í
leiknum: „Við spiluðum að mörgu
leyti góðan leik úti í Svíþjóð, en
við misstum einbeitinguna undir
lokin og gerðum mistök sem þeir
refsuðu okkur fyrir. Það eru
ákveðnir veikleikar í varnar-
leiknum hjá Elfsborg sem við
þurfum að nýta okkur í kvöld og
svo þurfum við að verjast mjög
vel sem lið,“ sagði Heimir.
Hann bætti við að FH-ingar
gætu tekið ýmislegt jákvætt út úr
fyrri leiknum, en FH-ingar höfðu
í fullu tré við Svíana lengst af.
Aðspurður hvort FH-ingar ætli að
breyta uppleggi sínu fyrir leikinn
í kvöld, í ljósi þess að þeir þurfa
að skora a.m.k. þrjú mörk, sagði
Heimir: „Við munum gera breyt-
ingar á milli leikja. Það er alveg á
hreinu.“ - iþs
Heimir gerir
breytingar
MARKAHÆSTUR Atli Guðnason hefur
bæði skorað flest Evrópumörk FH í
sumar og í sögunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Guðmundur B. Ólafs-
son, formaður HSÍ, og Davíð
Gíslason, varaformaður HSÍ, sátu
tveggja tíma fund með Hassan
Moustafa, formanni Alþjóðahand-
knattleikssambandsins, í höfuð-
stöðvum IHF í Basel í gær. Vara-
formaður IHF og mótastjóri sátu
einnig fundinn.
„Þau ætla að skoða það sín
megin hvort hægt sé að finna
lausn á einhverju af því sem við
veltum upp. Það hefur verið í
umræðunni að fjölga liðum á HM
og svo kemur enn til greina að
leysa úr þessum ágreiningi fyrir
dómstólum,“ sagði Guðmundur
við Fréttablaðið eftir fundinn.
„Þau vildu skoða þetta en
svöruðu okkur ekki af eða á. Við
ætlum að gefa þeim nokkra daga
til að svara okkur,“ sagði Guð-
mundur B. Ólafsson. - tom
Moustafa gaf
engin svör
FORMAÐURINN Guðmundur B. Ólafs-
son sat fund með IHF. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUND Jón Margeir Sverrisson
(100 metra bringusund), Thelma
Björg Björnsdóttir (50 metra
skriðsund) og Kolbrún Alda Stef-
ánsdóttir (100 metra bringusund)
settu öll Íslandsmet þegar þau
syntu í úrslitum á þriðja keppnis-
degi á Evrópumeistaramóti fatl-
aðra í sundi í Hollandi í gær.
Thelma Björg og Kolbrún Alda
settu líka Íslandsmet í undanrás-
unum og Kolbrún Alda náði einn-
ig að setja Íslandsmet með því að
ná flottum millitíma í 50 metra
bringusundi og setti því alls þrjú
Íslandsmet í gær. Það féllu því
alls sex Íslandsmet í gær.
Jón Margeir náði aftur á móti
besta árangri þeirra þriggja
með því að ná fjórða sætinu í 100
metra bringusundi. - óój
Öll settu met