Fréttablaðið - 08.08.2014, Qupperneq 10
8. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÚTSALA
25-60%
afsláttur
ÍRAK Herskáir íslamistar úr samtök-
unum Íslamska ríkið hafa síðustu
dagana herjað á íbúa í norðvestan-
verðu Írak. Meðal annars hafa þeir
náð Karakosh, stærstu borg krist-
inna Íraka, á sitt vald, og sömuleið-
is borginni Sindsjar, helstu borg
Jasída-þjóðflokksins, sem aðhyllist
ævaforn trúarbrögð.
Íbúarnir hafa flúið tugþúsund-
um saman upp á fjallið Sindsjar,
sem er heilagt fjall í augum Jasída.
Allt að 50 þúsund Jasídar eru tald-
ir vera fastir uppi á fjallinu, matar-
og vatnslitlir, og hafa bæði börn
og veikburða gamalmenni látist af
næringarskorti.
Bandarísk stjórnvöld skoða nú
hvort varpa eigi matvælum og
öðrum nauðsynjum niður til fólks-
ins úr flugvélum.
Íslamistarnir virðast einnig
hafa náð Mosulstíflunni, stærstu
stíflu landsins, á sitt vald, en hún er
skammt frá borginni Mosul. Stíflan
gegnir mikilvægu hlutverki við að
útvega íbúum landsins bæði vatn og
rafmagn, en er jafnframt hættuleg
öllum sem búa fyrir neðan hana taki
uppreisnarmenn upp á því að eyði-
leggja hana.
Stíflan hefur lengi verið veik-
burða og það eitt að hætta nauðsyn-
legu viðhaldi gæti þýtt að hún brysti
með þeim afleiðingum að vatnsflóð
mikið þeyttist niður yfir byggðina.
Næststærsta stífla landsins,
Hadithastíflan, hefur einnig nokkr-
um sinnum fallið í hendur hinna
herskáu íslamista.
Þá gerðu íslamistar sjálfsvígs-
árás í höfuðborginni Bagdad í gær,
og kostaði hún hátt á annan tug
manna lífið. Einnig sprengdu þeir
tvær bílasprengjur í Kirkuk, höfuð-
borg Kúrdahéraðsins í norðanverðu
Írak, með þeim afleiðingum að hátt
á annan tug manna létu þar einnig
lífið.
Samtökin Íslamskt ríki hafa á
síðustu mánuðum náð stórum hluta
Íraks á sitt vald, en einnig hafa þeir
nokkuð stór svæði í Sýrlandi á sínu
valdi.
gudsteinn@frettabladid.is
Tugir þúsunda sitja
fastir á helgu fjalli
Herskáir íslamistar hafa náð nokkrum borgum og þorpum í norðvestanverðu Írak
á sitt vald. Íbúarnir hafa flúið tugþúsundum saman og hafast margir við uppi á
Sindsjarfjalli, þar sem lítið er um vatn og næringu, og komast hvergi.
FLÚNAR AÐ
HEIMAN
Jasídakonur
bíða átekta í
bænum Dohuk,
en þær flúðu
frá borginni
Sindsjar eftir að
uppreisnarmenn
náðu henni á
sitt vald.
NORDIPHOTOS/AFP
SAGA „Það var alveg magnað að
standa í skyttuturninum og hafa
360 gráðu sýn. Magnað,“ segir
Hjálmar Árnason, framkvæmda-
stjóri Keilis, sem varð þeirrar
ánægju aðnjótandi í gær að sitja
um borð í annarri af tveimur
sprengjuflugvélum af Lancaster-
gerð sem til eru í flughæfu ástandi
í heiminum.
„Manni verður ósjálfrátt hugs-
að til styrjaldarinnar og setur sig
í spor mannanna sem lögðu mikið
á sig um borð í þessum fljúgandi
virkjum. Yfir þrjú þúsund voru
skotnar niður með tilheyrandi
mannfórnum,“ bætir Hjálmar við
spurður vistina um borð.
Lancaster-vélin hafði hér við-
komu í gær á ferð sinni yfir Atl-
antshafið frá Kanada til Bretlands.
Ferðin er til að heiðra minningu
breskra hermanna sem létu lífið í
síðari heimsstyrjöldinni.
Það er ekki ofsagt að Lancaster-
vélarnar hafi gegnt lykilhlutverki
í hernaði Breta eftir 1941. Sú saga
á sér þó tvær hliðar, fórnir flug-
liðanna en ekki síður skuggahlið
sprengjuárása bandamanna á
Þýskaland sem hafa frá stríðslok-
um verið gagnrýndar. - shá
Fræg herflugvél hafði viðkomu á Íslandi:
Flug til heiðurs her-
mönnum sem féllu
FLÝGUR ENN Útsýnið úr byssuturni vélarinnar er tilkomumikið. MYND/HJÁLMAR ÁRNASON
STJÓRNSÝSLA Ragnar Aðalsteins-
son, lögmaður Cardew-fjölskyld-
unnar, hefur sent greinargerð
til innanríkisráðneytisins vegna
ákvörðunar Þjóðskrár Íslands
um að synja Harriet Cardew um
vegabréf. Foreldrar Harrietar
kærðu úrskurð Þjóðskrár fyrr í
sumar.
Í greinargerðinni segir að í
lögum nr. 136/1998 sé kveðið á
um að hver Íslendingur eigi rétt
á að fá útgefið vegabréf. Þjóðskrá
hafi því ekki haft lagaheimild til
að neita Harriet um vegabréf og
þar með svipta hana ferðafrelsi.
Jafnframt segir að nöfn manna
séu hluti af sjálfsmynd þeirra
sem vernduð sé með ákvæðum
stjórnarskrár um friðhelgi og
mannréttindasáttmála Evrópu
sem Ísland er aðili að.
Þar kemur einnig fram að
útlendingar geti fengið íslenskt
ríkisfang og þá haldið nöfnum
sínum. Að neita Harriet um vega-
bréf sé því brot á jafnræðisreglu
stjórnarskrá.
Í greinargerðinni er fullyrt
að ákvörðun mannanafnanefnd-
ar um að hafna nafninu Harriet
eigi sér ekki lagastoð. Nafnið taki
bæði eignarfallsendingu og eigi
sér tæplega aldarlanga sögu hér
á landi en nafnið var fyrst skráð
hér á landi árið 1928.
Innanríkisráðuneytið mun
úrskurða um hvort ákvörðun
Þjóðskrár hafi staðist lög en ekki
hafa fengist upplýsingar um hve-
nær málið verður tekið fyrir.
-ih
Ragnar Aðalsteinsson telur Þjóðskrá ekki mega neita Harriet um vegabréf:
Segir Þjóðskrá brjóta stjórnarskrá
BJÖRGUN Harriet fékk breskt neyðar-
vegabréf svo fjölskyldan kæmist í frí til
Frakklands fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bæjarráð Fjallabyggðar ályktaði
fyrr í vikunni að gera þyrfti átak
vegna neyslu og sölu fíkniefna í
Fjallabyggð svo bæjarfélagið yrði
ekki „griðastaður fyrir fíkniefna-
sala“. Daníel Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri, segir: „Við
höfum fengið kvartanir frá íbúum
yfir ákveðnum einstaklingum á
svæðinu. Við munum koma til með
að skoða það. Á þessu svæði er fólk
sem hefur áður komið við sögu lög-
reglu og við þekkjum til.“
- skó
Bæjarráð vill losna við dóp:
Áhyggjur vegna
fíkniefnasölu
LÖGREGLUMÁL Ökumaður bifhjóls
mældist á 220 kílómetra hraða á
klukkustund þar sem hámarks-
hraði er 90 kílómetrar á klukku-
stund á Jökuldal í gær. Hann féll
af hjólinu og var sjúkraflutn-
ingabíll kallaður á vettvang sem
flutti hann á Heilbrigðisstofnun
Austur lands á Egilsstöðum.
Maðurinn reyndist lítið slas-
aður og var að lokinni skoðun
fluttur á lögreglustöðina á Egils-
stöðum þar sem hann var sviptur
ökuréttindum til bráðabirgða.
- rkr
Sviptur ökuréttindum:
Féll af bifhjóli á
miklum hraða
LÖGREGLUMÁL Tilkynningum um
kynferðisbrot til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu fækkaði um
41 prósent í júlí miðað við sama
tímabil síðustu þriggja ára. Átta
kynferðisbrot voru tilkynnt til
lögreglu í mánuðinum.
Þá hefur fíkniefnabrotum fjölg-
að um 44 prósent samanborið við
sama tímabil síðustu þriggja ára,
en fíkniefnabrot í júlí voru 122.
Þetta kemur fram í nýútkom-
inni skýrslu lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu um helstu
afbrot sem tilkynnt hafa verið til
lögreglu. - rkr
Fíkniefnabrotum fjölgar:
Færri tilkynnt
kynferðisbrot
DÝRALÍF Hrefnuveiðimenn hafa
ekkert haft sig í frammi við að
knýja á um veiðileyfi á hnúfubaki
eins og rætt var um í fyrrasumar.
„Ef þessi umræða kemur
upp þá auðvitað tökum við þátt
í henni en mér skilst að það sé
engin vinna í gangi,“ segir Gunn-
ar Jónsson, framkvæmdastjóri
Hrefnuveiðimanna.
„Menn eru líklega ekkert
spenntir fyrir því að rugga þess-
um báti,“ segir Gunnar. - jse
Hrefnuveiðimenn doka við:
Hnúfubaksveið-
ar settar í súr
HNÚFUBAKUR VEIFAR SPORÐI Þessi
virðist vera að fagna því að umræðan
um hnúfubaksveiðar skuli vera sett í
súr. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÍNA
Andófsmaður látinn laus
Einn þekktasti mannréttindalögmaður
Kínverja, Gao Zhisheng, var látinn
laus úr fangelsi í gær en yfirvöld þar
í landi eru talin fylgjast áfram grannt
með honum. Gao hefur oft gagnrýnt
ríkisstjórn Kína fyrir mannréttindabrot.
Hann var tilnefndur til friðarverðlauna
Nóbels árið 2008.