Fréttablaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 8. ágúst 2014 | SKOÐUN | 15 Grein Silju Daggar Gunnarsdótt- ur, þingkonu Framsóknarflokksins, „Áfengi er engin venjuleg söluvara“, var alls ekki slæm. Silja Dögg gerir til dæmis ekki tilraun til að halda því fram, eins og margir, að verðið muni stórhækka og dreifingin versna við afnám ríkiseinokunar. Ef hvort tveggja væri satt ættu áhugamenn um minni neyslu auðvitað að fagna þessum tillögum því hærra verð og verri dreifing ættu að minnka neyslu. Nei, rök Silju Daggar eru skárri. „Frjáls sala mun þýða betri dreif- ingu. Betri dreifing mun þýða meiri neyslu. Meiri neysla mun þýða meira ofbeldi. Heildaráhrifin eru því skað- leg.“ Silja Dögg kemst svo að þeirri niðurstöðu að við eigum að vera öðrum þjóðum fyrirmynd og halda í einkaleyfi ríkisins á áfengissölu. Ísland sem fyrirmynd? En hversu góð fyrirmynd erum við? Því er stundum réttilega haldið fram að heildaráfengisneysla Íslendinga sé lítil. En það segir ekki alla söguna. Það er munur á því að drekka einn bjór annan hvern dag eða 14 bjóra einu sinni í mánuði. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO reiknar sérstakt skor sem mælir það hve hættulegt drykkju- mynstur þjóða er. Skorið, sem er á kvarðanum 1 til 5, er reiknað út frá nokkrum þáttum, meðal annars því hversu oft menn drekka til að verða fullir, við hvaða aðstæður menn drekka, hversu stórt hlutfall fólks neytir áfengis nánast daglega o.s.frv. Eftirfarandi Evrópuþjóðir eru með skorið 1. Þetta eru þjóðirnar með áhættuminnstu drykkjuhegðunina: Spánn, Portúgal, Holland, Belgía, Lúxemborg, Þýskaland, Frakkland, Sviss, Austurríki, Ítalía, Malta og Kýpur. Þjóðirnar með áhættumestu drykkjuhegðunina, 5, eru m.a. Rúss- land og Úkraína. Af Norðurlöndunum fengu Nor- egur og Finnland skorið 3 (miðlungs áhætta), en Danmörk, Svíþjóð og Ísland skorið 2 (nokkur áhætta). Það er auðvitað margt sem ræður neyslumynstri fólks annað en lög- gjöf. En í engu þessara ríkja þar sem WHO telur að áfengisnotkun sé áhættuminnst sér ríkið um smásölu áfengis. Í mörgum þessara ríkja búa miklar vínþjóðir. Öll þessi ríki hafa vitanlega fullt af lagalegum leiðum til að stýra aðgengi að áfengi: Aldurs- takmörk, verðlagsstefnu og stundum lög um afgreiðslutíma. En ekkert þessara ríkja er með ríkiseinokun á áfengi. Stundum mætti halda að við Íslendingar, og hinar Norðurlanda- þjóðirnar nema Danmörk, værum öðrum þjóðum óumdeild fyrirmynd þegar kemur að áfengisstefnunni. Það er ekki. Enda er ekki eins og árangurinn sé jafn glæsilegur og sumir vilja vera láta. Við drekkum lítið en erum samt oft full. Áfengisverslun Ítalíu? Ítalía er eitt þessara ríkja í áhættu- minnsta flokknum. Þar hefur neysla áfengis verið að minnka hægt og bít- andi seinasta aldarfjórðung án þess þó að veruleg breyting hafi orðið á áfengislöggjöf landsins á þeim tíma. Frá 1990 hefur neyslan minnkað um 40% og er nú svipuð því sem gerist á Íslandi. Segjum nú að einhver stjórnmála- maður á Ítalíu hefði áhyggjur af áfengisneyslu þar í landi og legði til að Ítalir tækju sér Ísland til fyrir- myndar, settu á fót ítalskt ÁTVR, hækkuðu áfengiskaupaaldur upp í 20 ár og svo framvegis. Andstæðingar þessara hugmynda myndu fljótt benda á að ekkert benti til að Íslend- ingum hefði tekist betur til en Ítöl- um við mótun sinnar áfengisstefnu: Árleg heildarvínandaneysla væri svipuð: 6,7 lítrar á Ítalíu – 7,1 lítri á Íslandi. En þegar kæmi að neyslu- mynstri væri munurinn sláandi. Á Ítalíu verða 4,7% þjóðarinnar full að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Á Íslandi er talan 22,7%. Sé litið einungis til þeirra sem á annað borð neyta áfengis er munur- inn enn meiri. Tölurnar eru: Ítalía: 6,2%, Ísland 34,9%. Árangur án einokunar Þeir sem vilja halda í óbreytt kerfi nota gjarnan það slagorð að áfengi sé engin „venjuleg“ söluvara. Það eru sígarettur, rítalín og byssur held- ur ekki en samt látum við einkaaðila selja þær vörur. Sé litið á kort yfir þær þjóðir sem neyta áfengis liggur fyrir að vel er hægt að ná sambæri- legum árangri og Ísland, eða betri, jafnvel þótt aðrir en opinberir starfs- menn afgreiði bjórinn. Heimildir: http://apps.who.int/gho/data/?- sh wonly=GISAH&theme=main-euro Með bestu drykkjumennina? Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Því er stundum réttilega haldið fram að heildaráfengisneysla Íslendinga sé lítil. En það segir ekki alla söguna. Í síðustu viku skipaði utanríkisráðherra tvo nýja sendiherra, þá Geir H. Haarde og Árna Þór Sigurðsson. Talsvert hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum og skip- un þeirra Geirs og Árna verið gagnrýnd, en báðir eru sem kunnugt er fyrr- verandi/núverandi stjórn- málamenn og koma ekki úr röðum starfsmanna utanríkisráðuneytisins. Í fjölmiðl- um hefur auk þess verið fjallað um möguleikann á að auglýsa starfið líkt og önnur störf emb- ættismanna og bent hefur verið á að töluvert halli á kvenfólk í skip- unum í embætti sendiherra. Í gegnum tíðina hefur í reynd verið framgangskerfi í utanríkis- þjónustunni, þ.e. starfsmenn hafa átt þess kost að vinna sig upp eftir hinum diplómatísku stöðuheitum og orðið loks sendiherrar. Er það fyrirkomulag í samræmi við venju í flestum nágrannaríkjum okkar. Gallinn við framkvæmdina í þessu kerfi hefur hins vegar verið sá að utanríkisráðherrann hverju sinni hefur haft um það alræð- isvald að skipa sendiherra, og hefur í þeim efnum ekki þurft að styðjast við mat á hæfni, árangri, starfsreynslu eða öðrum viðmið- unum. Með skipun þeirra Geirs og Árna í embætti sendiherra er aug- ljóslega verið að takmarka mögu- leika núverandi starfsmanna utan- ríkisráðuneytisins til starfsframa, auk þess sem verið er að endur- vekja gamla siði með því að skipa stjórnmálamenn í slíkar stöður. Reynsla og rannsóknir Bent hefur verið á þá leið að aug- lýsa stöður sendiherra, þar sem þeir teljist embættismenn sam- kvæmt skilgreiningu starfs- mannalaganna svokölluðu um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Það tel ég hins vegar ekki vera góða leið. Um er að ræða tæplega fjörutíu stöðu- gildi innan sama ráðuneytis. Ætti þá t.d. að auglýsa sendiherrastöð- urnar í Washington og Moskvu sérstaklega? Auk þess teljast sendifulltrúar í utanríkisþjón- ustunni til embættismanna sam- kvæmt starfsmannalögunum. Ætti þá einnig að auglýsa störf þeirra laus til umsóknar? Hætt er við því að það dragi úr stöðugleika innan stjórnsýslunnar ef auglýsa þarf opinberlega störf á öllum stigum innan utanríkisþjónustunnar, auk þess sem starfsmönnum yrði þá ekki gefinn kostur á að vaxa og dafna í starfi án þess að sækja stöðugt um ný störf á sama vinnu- stað. Reynsla og rannsóknir hafa sýnt að erfitt getur verið að ráða starfsmenn sem eiga að starfa í alþjóðlegu umhverfi. Huga þarf að þáttum eins og aðlögunarhæfni viðkomandi starfsmanns og fjöl- skyldu hans. Brottfall er gjarn- an mikið meðal útsendra starfs- manna og mikill kostnaður sem hlýst af ef viðkomandi starfsmað- ur vill koma heim fyrr en áætlað er. Einnig er þekkt að starfsmenn hætta gjarnan störfum eftir að heim er komið af ýmsum ástæð- um. En eins og flestum er kunnugt felst starf sendiherra ekki bara í vinnu erlendis heldur einnig hér heima í ráðuneytinu. Hæfni og árangur Ef við lítum okkur nær og skoðum utanaðkomandi ráðningar í störf sendiherra hérlendis lítur út fyrir, að þegar sendiherrar hafa verið skipaðir í embætti án þess að hafa unnið í utanríkisþjónustunni, þá hafa þeir í flestum tilvikum farið strax til starfa erlendis í um 4-8 ár en að þeim tíma liðnum farið til starfa á öðrum vettvangi og hætt í utanríkisþjónustunni. Þeir hafa því hvorki verið að störfum í ráðuneytinu í upphafi ráðningar né þegar heim er komið. Á Norðurlöndunum er þessu þannig háttað að í flestum til- fellum er um að ræða framgang í starfi enda má ætla að starfs- menn utanríkisþjónustunnar hafi reynslu af því að starfa og búa erlendis og ekki óalgengt að starfandi sendiherra hafi starfað og búið erlendis í nokkrum lönd- um áður en viðkomandi kemur til greina sem sendiherra. Starfs- menn eru því búnir að gera það upp við sig hvort þessi starfsgrein og flutningar hentar þeim og fjöl- skyldum þeirra. Utanríkisþjónustan ætti að standa að ráðningu starfsmanna sinna með því að auglýsa stöður sendiráðsritara, þar sem gerð væri krafa um ákveðna menntun, þekk- ingu og færni, auk þess sem jafn- réttissjónarmið yrðu höfð til hlið- sjónar við skipun í starfið. Eftir það myndi það ráðast af reynslu, hæfni og árangri í starfi hvort og hversu fljótt starfsmenn ynnu sig upp í það að verða sendiráðunaut- ar, sendifulltrúar og síðan sendi- herrar. Að því leyti væri ekki þörf á því að huga sérstaklega að kynja- sjónarmiðum við skipun sendi- herra, enda hefðu starfsmenn af báðum kynjum jafnan rétt og möguleika til að vinna sig upp í starfi og verða sendiherrar. Til að auka fagmennsku í kring- um skipan sendiherra væri hægt að skipa sérstaka framgangsnefnd innan utanríkisráðuneytisins sem væri skipuð ráðuneytisstjóra, mannauðsstjóra og skrifstofu- stjórum þeirra þriggja skrifstofa sem kynntar eru í skipuriti ráðu- neytisins. Framgangsnefndin hefði það hlutverk að gera tillögu til utanríkisráðherra um skipun embættis manna ráðuneytisins, þ.e. sendifulltrúa og sendiherra, og væri utanríkisráðherra bundinn af því að skipa í embættin á grund- velli tillagna nefndarinnar. Ef ekki finnst einstaklingur með þá þekk- ingu, færni og hæfni sem til þarf, er sjálfsagt að leita utan veggja ráðuneytisins, og myndi það vera hlutverk framgangsnefndar að leggja fram þá tillögu að undan- gengnu mati. Tilgangur framgangskerfis- ins yrði þá fyrst og fremst sá að starfsmenn og almenningur geti treyst því að við skipun í æðstu embætti utanríkisþjónustunn- ar verði byggt á faglegu mati, og að samhliða verði dregið úr póli- tískum áhrifum varðandi þessar skipanir. Skipun sendiherra ➜Með skipun þeirra Geirs og Árna í emb- ætti sendiherra er augljóslega verið að takmarka möguleika núverandi starfs- manna utanríkisráðu- neytisins til starfs- frama, auk þess sem verið er að endur- vekja gamla siði með því að skipa stjórnmálamenn í slíkar stöður. STJÓRNSÝSLA Dr. Svala Guðmundsdóttir lektor DRYKKJUMYNSTUR Í EVRÓPU Áhætta tengd drykkju Minnst Nokkur Miðlungs Mikil Mest Heimild: Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.